Fréttablaðið - 19.09.2020, Side 90

Fréttablaðið - 19.09.2020, Side 90
ÞAÐ HEFUR VERIÐ MIKIÐ FERLI AÐ KOMA SKIPULAGI Á DÁNARBÚIÐ OG ARFLEIFÐ HANS Á SVO MÖRGUM SVIÐUM.Þetta er alveg búið að vera dýrmætt ferðalag. Í fimm ár,“ segir Kristín Andrea Þórðardóttir um heimildar my nd sína Er ást, sem hún frumsýnir á Skjaldborgarhátíðinni í Bíó Paradís í dag. Myndin fjallar um sterka ást Helenu Jónsdóttur kvikmyndaleik- stjóra og Þorvalds Þorsteinssonar, skálds og myndlistarmanns, sem jafnvel dauðinn fær ekki aðskilið, en í myndinni fylgir Kristín Andrea Helenu þegar hún leitar að styrk til að halda áfram með líf sitt og list- sköpun samhliða því að koma arf- leifð Þorvaldar í örugga höfn, eftir ótímabært andlát hans 2013. „Ég kynntist Þorvaldi í byrjun árs 2007 og við vorum góðir vinir,“ segir Kristín Andrea, sem síðan kynntist Helenu í gegnum Þorvald og eftir andlát hans og vinnuna við mynd- ina er vinátta þeirra orðin svo náin að Kristín segist hiklaust líta á þær sem fjölskyldu. Saga um sorg og ást Helena og Þorvaldur höfðu búið í Antwerpen í Hollandi í um það bil eitt og hálft ár þegar Þorvaldur lést í febrúar 2013. „Það hefur verið mikið ferli að koma skipulagi á dánar- búið og arfleifð hans á svo rosalega mörgum sviðum. Það eru leikverk, myndlist og bókverk. Það er tónlist og ótal textar og hugmyndafræði í skapandi skrifum og mennta- málum. Hugmyndin var að fylgjast með henni koma öllu í örugga höfn á mismunandi vígstöðvum og fara með henni í gegnum sorgarferlið meðfram því,“ segir Kristín og bætir við að undirliggjandi sagan sé svo hin sterka ástarsaga Þorvaldar og Helenu. „Þetta er mjög persónuleg mynd og Helena hleypir áhorfand- anum mjög nærri sér. Þessi persónu- legu efnistök voru mjög krefjandi fyrir Kristínu í hennar fyrsta leik- stjórnarverkefni, eftir að hafa verið kvikmyndaframleiðandi um árabil. Helena kom af og til heim til Íslands eftir að Þorvaldur lést en Kristín segir þær heimsóknir hafa verið henni erfiðar. „Þannig að hún var kannski ekkert að stoppa lengur en hún þurfti. Helena hefur kennt leikstjórn með hreyfimið- aða nálgun við Listaháskólann um árabil og þetta voru yfirleitt styttri vinnuferðir tengdar þeirri kennslu.“ Hugljómun í ljósabúri Kristín Andrea segir þær Helenu hafa eytt talsverðum tíma saman í þessum stuttu ferðum og það var í einni slíkri, rúmlega tveimur árum eftir að Þorvaldur lést, sem hug- myndin að heimildarmyndinni kviknaði hjá henni, á Listahátíð 2015. Þá var opnuð myndlistarsýning á verkum Þorvaldar í Hverfisgalleríi og að kvöldi þess dags voru haldnir tónleikar í Gamla Bíói með lögum úr Ósómaljóðum, lagabálki sem Þorvaldur samdi á námsárunum í Hollandi í kringum 1990. Kristín var Helenu til halds og trausts á tónleikunum, þar sem hún sá um sjónræna þáttinn. „Ég var með henni uppi í ljósabúri og það var þarna sem hugmyndin kom, þegar það rann upp fyrir mér hversu mikil ábyrgð er skilin eftir hjá eftirlifandi maka listamanns sem hefur skilið jafn mikið eftir sig og Þorvaldur gerði á svo mörgum sviðum. Svo að það er ekki bara sorgin og allt sem þarf að huga að eftir andlát einhvers nákomins, heldur fylgir því sú aukna ábyrgð að halda arf- leifðinni og nafni listamannsins á lofti. Yfir mörk lífs og dauða Þorvaldur snerti við svo mörgum á lífsleiðinni og mörgum finnst þeir eiga hlut í honum og hann heldur áfram að hafa áhrif á fólk um ókom- in ár. Líf og dauði eru landamæra- laus að þessu leyti.“ Myndin dregur upp svipmyndir af tveimur listamönnum á meðan hún segir sögu ástar, sorgar og sorg- arúrvinnslu, þar sem Kristín notast mikið til við ómetanlegt safn efnis úr einkasafni Helenu. „Ég leitaði víða fanga en það er einmitt þetta persónulega mynd- efni sem er svo dýrmætt. Það minn- ir mann líka á að fanga hversdagsleg augnablik með sínum nánustu. Því þó þau þyki ekki endilega dýrmæt þegar þau eru tekin þá geta þau orðið það löngu seinna, þegar þau geta hafa öðlast aukið tilfinninga- legt gildi.“ Kosmískir kraftar Það var ekki til að auðvelda Kristínu efnisöflunina að þegar Þorvaldur og Helena f luttu til Antwerpen 2011 dreifðist búslóð þeirra á nokkra staði. „Ég vissi af tilvist ákveðins mynd- efnis sem við vorum búin að leita að alveg ótal sinnum í geymslum hérna á Íslandi, heima hjá móður hennar og eins úti í Antwerpen, og bara fundum þetta ekki. Ég var um það bil búin að gefast upp þegar þetta kom svo í ljós, lengst inni í skáp heima hjá móður hennar. Þetta var lítil DV-spóla sem hafði dottið á bak við þil, en það var síðla sumars í fyrra sem efnið kemur í ljós. Þá fannst mér við getað farið að huga að því að læsa klippinu. Ég held að kosmósið hafi aðeins verið að vinna með mér þarna,“ segir Kristín Andrea, sem er loksins komin í höfn eftir fimm ára ferða- lag með þessa mjög svo persónulegu mynd. „Ég er svo þakklát öllum þeim sem hafa lagt krafta sína í þetta verkefni,“ segir leikstjórinn og nefnir sérstaklega kvikmyndatöku- manninn Bjarna Felix Bjarnason, klipparann Sighvat Ómar Krist- insson, Úlf Eldjárn, sem samdi tón- listina, og hljóðhönnuðinn Kjartan Kjartansson „Umfram allt hefur þetta ferðalag með Helenu verið mér ómetanleg reynsla, en hennar helsti hvati til að taka þátt í þessu verkefni var að opna umræðuna um sorgina, því það eru ekki svo mörg verkfæri sem syrgjendur geta gripið í á leið sinni um þennan erfiða dal, Íslendingar hafa verið fremur gjarn- ir á að bíta á jaxlinn, setja hausinn undir sig og knýja sig áfram, en ég held að við verðum að fara að gefa okkur pláss til að vera f lóknari til- finningaverur en svo.“ toti@frettabladid.is Sterk ást lifir í auðugu dánarbúi hugverkanna Heimildarmyndin Er ást, eftir Kristínu Andreu Þórðardóttur, fjallar um ástarsamband Helenu Jónsdóttur og Þorvalds Þor- steinssonar og vinnu hennar við að koma listrænni arfleifð Þor- valds í örugga höfn og halda áfram eftir ótímabært andlát hans. Kristín Andrea var fimm ár að gera heimildarmynd um ástarsamband Helenu Jónsdóttur og Þorvalds Þorsteins- sonar, ótímabært andlát hans og hvernig hún hélt áfram og kom arfleifð Þorvalds í örugga höfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nánari upplýsingar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is FYRIRTÆKJAGJAFIR Veglegt sérblað um jólagjafir til starfsmanna og viðskiptavina fyrirtækja kemur út 9. október nk. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í mes lesna dagbl ði landsins. 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.