Náttúruvernd - 01.06.1932, Page 5

Náttúruvernd - 01.06.1932, Page 5
5 tók moldin sig upp líka og flutti sig í burtu. Skógur og mold á þessum stað gátu hvorugt án annars verið. Sköll- óttir hraunhólar skutu upp kollinum, þeir báru vitni um starf meinvættanna. Sumstaðar breiddi grámosinn sig yf- ir hraunskallana, lyngið læddist eftir honum og birkiræt- ur teygðu sig undir hann og skutu upp plöntum hér og hvar, en urðu að niðurbældum og kræklóttum runnum. Lengra komst ekki starf náttúrnunar. Góðvættirnir megnuðu ekki, vegna rántekjunnar, að hefja skóginn til þroska, sem honum var eðlilegur. Á seinni tímum hefir verið reynt að starfa á Þing- völlum í anda hollvætta landsins. Árangur þeirrar starf- semi eru friðunarlögin frá árinu 1928. Með þeim lögum er illvættunum sagt stríð á hendur. Það er gert ráð fyrir að hollvættimar ráði þar ríkjum í næstu 1000 ár. Friðhelgi Þingv'alla á að skapa þar grið öllum villi- gróðri og villtu dýralífi. En því aðeins getur þetta orðið, að náttúran fái að njóta þar fulkominnar verndar. En hversvegna er verið að stofna til þessarar friðunar, munu margur spyrja. Er það ekki gagnstætt lögum náttúrunn- ar, að bægja þar húsdýrunum frá skóginum og öðrum gróðri, eða banna skógarhögg, fuglaveiði, eggjatekju og annað hlunnindarán ? Eiga ekki mennirnir að lifa á því, sem náttúran framleiðir á Þingvallalandi, sem annars- staðar? Handa hverjum ætti hún annars að framleiða grös og skóga ef ekki handa mönnum og húsdýrum þeirra? Vitanlega er mönnum skylt að færa sér í nyt gæði lands og lagar, en það er ekki þar með sagt, að þeir hafi heimild til að ræna þeim eftir vild eða uppræta þau ef verkast vill. Það er sitthvað: rán eða ræktun. Hlunnindi

x

Náttúruvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúruvernd
https://timarit.is/publication/1477

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.