Náttúruvernd - 01.06.1932, Síða 9
9
Þannig ganga, að jafnaði, hinir eldri og reyndari á
undan með hvatnirigarorð og lögeggjan til fólksins.
I mörgum barnaskólum í Bandaríkjunum er annar
dagur hátiðlega haldinn, samhliða skógræktardeginum,
sem vel mætti nefna fuglaverndardag, því að hann er
helgaður fuglunum. En ekki verður minnst hér frekar á
hann að sinni, en hinsveg’ar skal hér leitast við að skýra
frá, hvernig skógræktardagurinn er gerður hátíðlegur í
bamaskólunum.
Það er eins og stórhátíð sé í vændum fyrir börnin,
þar sem þau eiga von á að fá að taka þátt í skógræktar-
deginum. Þau hlakka svo til hans. Enda er allt gert af
þeim, sem hlut eiga að máli, tii þess að gera daginn sem
hátíðlegastan, bæði fyrir börnin og aðra, sem taka þátt í
lionum.
Undirbúningur er gerður löngum tíma áður en dagur-
inn rennur upp. Börnin útvega sér gróðursetningaráhöld,
svo sem haka eða skóflur. Það verða þau að leggja til.
Aðrir sjá um úvegun á trjáplöntum og trjáfræi, einnig
snúrum, sem þurfa með. Fellur venjulega í hlut búnaðar-
félags eða skógræktarfélags að annast þetta. Félög þessi
ákveða einnig, hvaða blett skuli velja til skóggræðslunnar.
Þegar allt er undirbúið og dagurinn rennur upp, safn-
ast börnin, að morgni dags heim að skólanum. f staðinn
fyrir námsbækur hafa þau nú með sér nesti til dagsins.
Áhöld og plöntur er flutt á undan þeim á gróðursetning-
arstað. Börnin eru kölluð inn í stærsta salinn í skólanum.
Þar eru þau ávörpuð með stuttri ræðu af kennara eða
skógræktarmanni, sem jafnan er sjálfkjörinn að hjálpa til
og leiðbeina við gróðursetninguna. Stundum er einhver
nemandi látinn búa sig undir að lesa upp eða mæla fram