Náttúruvernd

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúruvernd - 01.06.1932, Qupperneq 11

Náttúruvernd - 01.06.1932, Qupperneq 11
11 setja og hvemig eigi að fara að því. Og þegar verkinu er lokið er enn talað til barnanna um þýðingu þess starfs, sem þau hafa leyst af hendi, og eftir á sungin skógræktar- ljóð. íslendingar eiga ekkert skógræktarljóð, þó að nálega annar hvor maður á landinu sé skáld. Loksins er sezt að snæðingi. Börnin fá síðan að leika sér áður en þau leggja af stað heimleiðis. Þau ganga svo í sömu röð og reglu heim á skólaleiksvæðið. Þar kveðja skógræktarmenn börnin með nokkrum orðum. Þá eru sungin ættjarðarljóð. Skilja börnin síðan og fer hvert heim til sín. Það er síður en svo, að börnin þurfi endilega að bera bv'ersdagsklæði sín, eða vinnuföt svokölluð, skógræktar- daginn. Þeirri skoðun á ekki að koma inn hjá fólki, að óviðeigandi sé, að aðrir snerti á moldarverkum en þeir, sem bera vinnuföt eða ganga í lurfum. Fyrir engum í heiminum ber manni frekar að skarta en gróðurmoldinni, því að hún framleiðir meiri fegurð og skart með blóm- skrúða sínum, og öðrum gróðri, en nokkur mannleg sál getur búið til. í Bandaríkjunum eru ekki einungis börn í barna- skólunum, sem gróðursetja tré á opinberum stöðum held- ur líka nemendur æðri skóla. Jafnvel prófessorar og vís- indamenn taka sér verkfæri í hönd og gróðursetja trjá- plöntur á afmælishátíð helztu merkismanna þjóðarinnar, eins og t. d. Washington, Lincoln o. fl. Trén eru síðan nefnd eftir afmælisbaminu. Lengi vel hefir sá siður tíðkast í Reykjavík að leggja sveig á leiði Jóns Sigurðssonar forseta á afmælisdag hans. Öllu heldur hefði afmælisbarninu verið þóknanlegra, og það kosið frekar, ef ráða mætti, að þeir sem fyrir þess- um fánýta sið standa, gróðursettu, þó ekki væri nema

x

Náttúruvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúruvernd
https://timarit.is/publication/1477

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.