Náttúruvernd - 01.06.1932, Page 12

Náttúruvernd - 01.06.1932, Page 12
12 eitt tré á ári hverju þennan dag, sem helgað væri minn- ingu forsetans. Ef lánið væri með, gæti vaxið upp allfögur skógartré, er stæðu um aldur og æfi, helguð forsetanum, þar sem sveigur ár dauðum eða lifandi blómum eyðist af vindi og vatni og er horfinn eftir nokkra daga. Hver sveit og kaupstaður á landinu ætti að eiga af- girtan blett á vel völdum stað, þar sem bæði ungir menn og gamlir ættu kost á að gróðursetja trjáplöntur og hlynna að þeim meðan þær eru á æskuskeiði. Blettur sá skyldi vera það stór, að hvert heimili hefði sinn afmark- aða reit til gróðursetningar. Með réttu lagi ætti ekkert barn að útskrifast úr skóla, eða ferma, sem ekki væri búið að gróðursetja, innan 14 ára aldurs, minnsta kosti 100 trjáplöntur. Ef embættismenn og aðrir menntamenn í landinu tækju sér fyrir hendur að gróðursetja árlega fáeinar trjá- plöntur, yrðu margir til að feta í fótspor þeirra, og þætti þá engum, þó að í skarlatsklæðum væri, minkun að því að lúta móðurmoldinni. Og vel sómdi það Höskuldi Hvíta- nesgoða að bera skarlatsskikkju, er hann sáði korni í akur sinn. Margur mun spyrja: Hvaðan eiga plöntur að koma? Hver útvegar þær? Og hvaða trjátegundir á að gróður- setja? Tii skógræktar er árlega veittar úr ríkissjóði ná- lega kr. 30000,00. Fyrir eitthvað af þessu fé mætti útvega innlendar og erlendar trjáplöntur. Ríkið ætti að sjá um að skógverðir útveguðu að minnsta kosti 10—15 þús. íslenzk- ar birkiplöntur, handa skólum, bæja- og sveitafélögum. Erlent trjáfræ og plöntur, t. d. fjallafuru, skógfuru og barrfellir, mætti kaupa frá Noregi eða öðrum norðlægum

x

Náttúruvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúruvernd
https://timarit.is/publication/1477

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.