Náttúruvernd - 01.06.1932, Page 19

Náttúruvernd - 01.06.1932, Page 19
19 inn, og hann lagður niður í hana. Verði bil á milli hnauss- ins og holubarmsins, skal fylla það mold og þrýsta henni vel niður kringum hnausinn. Þegar búið er að að gróður- setja er grasrótin skorin ofan af hnausnum kringum plöntuna — að eins þunnt lag. Það er gert til þess, að gras vaxi ekki kringum hana og dragi frá henni of mikla næringu. Það sem hér er sagt er aðallega átt við gróðursetn- ingu 2—4 ára plantna. Ef um eldri plöntur er að ræða, og sem eru ef til vill allt að meter að hæð, gilda aðrar gróðursetningarreglur. Plöntuholurnar ætti lielzt undan- tekningarlaust að grafa að haustinu, og hafa þær nógu víðar og djúpar. Allri moldinni er mokað upp úr holunni, þegar gróðursett er, en laus mold er þó höfð í botni hol- unnar, sem hafður er dálítið hærri í miðjunni. Plöntunni er stungið ofan í miðja holuna, og ræturnar greiddar út í moldina jafnóðum og henni er mokað kringum þær. Reynt er að hagræða rótunum í líkar stellingar og þær hafa áður verið í og þjappa moldinni sem bezt að þeim. Ef moldin er þur, er gott að hella vatni kringum plöntuna áður en við hana er skilið. Að lokum skulu hér teknar fram helztu reglur um gróðursetningu trjáplantna, sem hver maður skyldi hafa í huga, sem fæst við það starf: 1. Ef þess er kostur, skal grafa holurnar haustið áð- ur en gróðursett er. 2. Veljið ungar plöntur til gróðursetningar. 3. Gæta skal þess að ræturnar séu ávalt nógu rakar, áður en gróðursett er. Sól og vindur má ekki leika um þær. 4. Plöntuna má ekki setja lengra ofan í moldina en

x

Náttúruvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúruvernd
https://timarit.is/publication/1477

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.