Náttúruvernd - 01.06.1932, Page 20

Náttúruvernd - 01.06.1932, Page 20
20 hún hefir staðið upphaflega. Moldin má ekki ná upp á bolinn eða greinarnar. 5. Greiða skal vel úr rótunum, en láta þær ekki tvö- faldar eða í böggli ofan í holuna. 6. Moldinni á að þrýsta vel að rótunum, jafnt efst sem neðst, svo að plantan fái góða festu. Hvergi má húsa frá rótunum. 7. Þegar búið er að gróðursetja, má engin hola eða lægð vera í kringum plöntuna, sem vatn gæti staðið í. 8. Grasrótina skal leggja kringum plöntuna, strax og gróðursetningu er lokið, eða á haustin áður en frost og snjóar koma. Ef grasrót er ekki við hendina, er betra en ekki neitt að láta sand eða smámöl kringum plöntuna, frostið lyftir henni síður upp úr moldinni. 9. Strax og klaka leysir úr jörð að vorinu þarf að lagfæra gróðursetning fyrri árs plantna. Rétta við þær, sem hafa fallið út af og lyftst hafa upp. Og gróðursetja í staðinn fyrir þær, sem dáið hafa. 10. Volduga og trygga girðingu þarf kringum trjá- gróðursreit. Komizt nokkrar kindur inn í slíkan reit geta þær spillt margra ára starfi, þó ekki dvelji þar nema stutta stund.

x

Náttúruvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúruvernd
https://timarit.is/publication/1477

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.