Náttúruvernd - 01.06.1932, Side 28
28
Bandaríkin. Það hefir rannsakað ítarlega lifnaðarhætti
fugla og komizt að þeirri niðurstöðu, að margar fuglateg-
undir, sem áður voru ofsóttar og drepnar, sem skaðlegar,
gera þjóðinni ómetanlegt gagn með lífi sínu úti í náttúr-
unni. Menn gátu t. d. sannað að minnsta kosti 100 kr.
gróði var á ári, að hverri lifandi uglu og hauk, sem áður
voru talin gera skaða og réttdræp. Fuglar þessir eyða
sem sé ótal skordýrategundum skaðlegum fyrir jurta-
gróðurinn.
Félagið hefir orkað því, að breyta að mun skoðun
manna á náttúrunni. Fuglaveiði þykir sumstaðar varla
samboðin siðuðum mönnum. Fjöldi manna notar sjón-
auka og myndavélar til að afla sér fræðslu um lifnaðar-
hætti fugla úti á víðavangi, í staðinn fyrir að skjóta
fuglana og nota síðan dauðan skrokkinn, sem fræðsluá-
hald í skólunum. Einkunnarorð félagsins eru þessi:
„Betri eru tveir fuglar í skógi en einn í hendi“. Félagið
hefir beitt sér fyrir endurbótum á fuglafriðunarlöggjöf-
inni. Og nú síðasta árið, 1930, var að tilhlutun félagsins
lagt frumvarp fyrir Sambandsþingið í Washington um að
alfriða Bandaríkja-örninn (Bald Eagle). Ótal margt fleira
hefir félagsskapur þessi starfað í þágu fugianna.
Þá má nefna annan félagsskap, sem þegar er farinn
að ryðja sér til rúms víða um lönd meðal siðaðra þjóða.
Það er Alþjóða-fuglaverndarfélag. Það er stofnað í London
árið 1922 í því skyni að skapa samvinnu meðal allra þjóða
í fuglavernd. Það heldur þing annaðhvort ár. Árið 1930
kom þingið saman í júnímánuði í Amsterdam. Næst á und-
an var það háð í Geneva. Á þingum þessum mættu full-
trúar frá 20 ríkjum í Evrópu og öðrum heimsálfum. Full-
trúar frá öllum Norðurlöndum mæta þar, nema frá Is-