Náttúruvernd

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúruvernd - 01.06.1932, Qupperneq 30

Náttúruvernd - 01.06.1932, Qupperneq 30
30 fyrir ógeð manna á fuglavernd gátu þeir ekki komist hjá að meta fuglana meira en nokkra aðra jarðneska skepnu. þeir líktu englunum við fugla að því leyti, að menn hugsuðu sér þá með vængjum og létu þá með fluginu tileinka sér eigin leika fuglsins. A málverkum og teikningum eru englarnir ekki sýndir með klaufir eða hófa, í staðinn fyrir vængi. það er af því að væng- imir — þessir yfirnáttúrlegu limir fuglanna — minntu menn- ina á eittlivað æðra og háleitara í tilverunni en hið sýnilega og jarðbundna. Fuglanir nutu ekki englanna, þeir voru ofsóttir og drepnir jafnt og þétt, þó að trúin tæki vængi þeirra í þjón- ustu sina handa sendiboðum skaparans. Kirkjan hefir ekkert skipt sér af fugladrápi og látið sér alveg á sama standa þó að fuglar yrðu afmáðir af jörðinni. En henni hefði ekki staðið á sama ef fólkið hefði tekið vængina af englunum og látið i stað- inn limi af klaufdýri eða hófdýri. En trúin hefir gert meira en að taka aðeins vængi fuglanna í þjónustu sína, hún hefir látið anda drottins verða sýnilegan í fugls (dúfu) líki. Öllum guðspjöllunum ber saman þetta. Eng- in dýrategund á jörðu hér hefir öðlast annan eins heiður. í þessu felist bending til kristinna manna, að meta fuglana meira en nokkra aðra skepnu. Vel færi á því, að kirkjan beitti sér fyrir verndun allra villifugla. Hverskonar vernd, og ekki síst fuglavernd, er menn- ingar og mannúðarmál, sem kirkjan gæti haft sóma af, að vera riðin við. Færi vel á því að prestar byrjuðu á að koma því til leiðar að bannað yrði fugladráp og hverskonar fuglaveiði, á kirkjujörðum þar sem þeir messa, og á ábúðarjörðum sínum. Og umfram allt að bannað sé að bera eitur út á víðavang, fugl- um og öðrum skepnum til kvalar og dauða. Ég tel víst að margir prestar séu yfirleitt hlynntir fugla-

x

Náttúruvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúruvernd
https://timarit.is/publication/1477

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.