Náttúruvernd - 01.06.1932, Síða 36
I
36
handa þjóðgarðinum. Ríkið veitti féð, og er nú skóginum borgið
um aldur og æfi úr klóm gróðabrallaranna.
Liklega verður ekki sérlega vinsælt að halda uppi vörn fyrir
tilverurétti sumra villtra dýra og jurta í náttúruríki íslands, og
ei það undarlegt ef svo yrði. Sami höfundur er þó að öllu sem
lifir og hrærist á jörðinni, og allt sem hann skapaði var full-
komið og gott, að hans dómi — nerna ef vera skyldi einhver
mannskepnan —. það er óeðlilegt að fordæma og uppræta eina
tegund dýra jafnframt því sem önnur er ræktuð og tamin. Eða
því má ekki dýrategund, sem nú þykir gagnslaus og skaðleg fá
að lifa þangað til menn komast á það stig þekkingarinnar, að
þeir verði færir um að rækta hana sér til gagns? Með því að út-
rýma jurt eða dýri, sem skaðlegu og einskis nýtu, er sama og
lcasta burtu nokkrum af verkum skaparans og telja þau gagns-
laus.
Tilgangur og stefna rits þessa er meðal annars, að taka mál-
stað smælingja og olnbogabarna í náttúru Islands, sem hingað
til hafa notið lítilsvirðingar og miskunnarleysis hjá almenningi.
]?ess er vænst, að i hverri sveit á Islandi séu til karlar og
konur, eldri og yngri, sem hafi áhuga á náttúruvernd og vilji
hlynna að henni, með því að kaupa rit þetta og hjálpa til að
gera það svo úr garði, að það nái tilgangi sínum.
Undir því er komið, hvenær næsta bók kemur út, hvernig
þessari verður tckið.