Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 56
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Davíðs
Þorlákssonar
BAKÞANKAR
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
KINDAsögur
2. BINDI
CORNY
PROTEIN BAR
45 G
299
KR/STK
6644 KR/KG
Fyrir svanga
ferðalanga
Hópur fólks kallar nú eftir nýrri stjórnarskrá. Eða, réttara sagt, krotar eftir
nýrri stjórnarskrá. Það var ljóst
frá upphafi að það var ekki góð
hugmynd að skipa stjórnlagaráð
með fólki sem hafði flest hvorki
sérfræðiþekkingu né lýðræðislegt
umboð til að skrifa nýja stjórnar-
skrá. Það væri sambærilegt því
að við myndum skipa þríeyki
með áhugafólki til að takast á við
veiruna. Það á við um báða þessa
málaflokka að endanleg afgreiðsla
þarf að vera í höndum lýðræðislega
kjörins fólks, en undirbúnings-
vinna í höndum fagfólks.
Stjórnarskrá kveður á um grunn-
uppbyggingu ríkisins og grunn-
réttindi fólks. Það er ekki þörf á því
að setja nýjar stjórnarskrár nema
til standi að gjörbylta stjórnkerf-
inu, til dæmis breyta konungsveldi
í lýðveldi. Á þeim 76 árum sem
stjórnarskráin hefur verið í gildi
hafa ákvæði hennar verið dýpkuð
og skýrð með beitingu hennar.
Með því að setja nýja stjórnarskrá
væri því öllu hent út um gluggann
og við færum inn í tímabil mikillar
réttaróvissu, til dæmis um mann-
réttindi landsmanna.
Alþingi samþykkti árið 2012
þingsályktun sem nefndist
þingsályktun um ráðgefandi þjóð-
aratkvæðagreiðslu um tillögur
stjórnlagaráðs að frumvarpi til
stjórnarskipunarlaga og tiltekin
álitaefni þeim tengd. Það blasir
við að þeirri atkvæðagreiðslu var
aldrei ætlað að vera bindandi. Í
besta falli gæti hún talist pólitískt
bindandi fyrir það fólk sem greiddi
henni atkvæði sitt, en aðeins þrjú
þeirra sitja enn á þingi.
Stjórnarskráin hefur reynst
okkur vel. Í stað þess að kollvarpa
henni er farsælast að gera nauðsyn-
legar breytingar á henni að lokinni
vandaðri vinnu og í víðtækri sátt.
Ákrot um
breytingar
Heilar þáttaraðir
og úrval kvikmynda
Nýir áhugaverðir
íslenskir þættir
Sjónvarp Símans
appið
Talsett barnaefni
í hæsta gæðaflokki
Kvikmyndir fyrir
alla fjölskylduna
Enski boltinn
á Síminn Sport
Sjónvarp Símans
Premium
Það bera sig allir vel í Sjónvarpi Símans Premium.
Venjulegt fólk snýr aftur, Hver ertu? með Þóru Karítas
og ferskir sjónvarpsþættir á færibandi í allan vetur.
Hellingur af nýju barnaefni og Enski boltinn rúllar
sem aldrei fyrr. Svona á sjónvarp að vera!
Horfðu á Sjónvarp Símans Premium í sjónvarpi
og snjalltækjum, hvar og hvenær sem er. Pantaðu áskrift á siminn.is
Skemmtilegra
vetrarfrí!