Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 40
Sitjiði róleg
bara, sitjiði
róleg. Þetta var
alvöru sko.
Steingrímur J.
Sigfússon, for-
seti Alþingis
20.10.2020
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 21. október 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Helgi Vífill
Júlíusson
SKOÐUN
Stjórnarskrárfélagið, sem berst fyrir því að drög að stjórnarskrá sem Feneyja
nefnd Evrópuráðsins gaf fallein
kunn árið 2013 verði leidd í lög, er
skipað færum pólitískum aðgerða
sinnum. Áhrifaríkar auglýsingar
frá þeim bera þess glöggt vitni.
Tímasetningin, þegar þjóð
félagið er í sárum vegna COVID
19, er varla tilviljun. Meðlimir
Stjórnarskrárfélagsins hafa eflaust
hugsað sér gott til glóðarinnar
enda spruttu tillögurnar upphaf
lega úr jarðvegi óróleika og reiði
sem bankahrunið 2008 skapaði.
Athygli vekur að ekki hefur
verið ákall um breytta stjórnar
skrá fyrir undanfarnar alþingis
kosningar. Þar hafði sitt að segja að
Feneyjanefndin sagði að tillög
urnar væru óljósar, almennt orð
aðar, stjórnarkerfið flókið og án
samræmis. Ekki bætti úr skák að
kosningar til stjórnlagaráðs voru
dæmdar ólöglegar og tillögurnar
ekki bornar undir þjóðina.
Hve stóran sess vinstri hug
myndafræði á í hjörtum höf
unda tillagnanna og forsprakka
Stjórnarskrárfélagsins er hluti af
vandanum. Stjórnarskráin var ekki
þjóðarinnar allra heldur þeirra.
Katrín Oddsdóttir, formaður
hópsins, sagði í Silfrinu á sunnu
daginn að hún gæti ekki sætt
sig við að forsætisráðherra
myndi leggja fram frumvarp um
breytingar á tveimur ákvæðum
stjórnarskrárinnar sem lúti
að auðlindum og náttúru og
umhverfisnefnd.
Katrín, sem tók þátt í að semja
drögin fyrir átta árum, sættir sig
einungis við að tillagan verði lög
leidd í heild sinni. Að öðrum kosti
sé verið að ramma inn ósanngirni.
„Við þurfum alvöru auðlinda
ákvæði í stjórnarskrá sem kveður
á um að það megi ekki veðsetja og
framselja aflaheimildir, og ekki
nýta þær nema gegn fullu verði.“
Það er margt dapurlegt við
þessa afstöðu, eins og til dæmis að
stjórnarskráin höfði ekki bæði til
vinstra og hægra fólks, enda munu
að öllum líkindum ríkisstjórnir
sem horfa með ólíkum augum á
kvótakerfið stýra landinu á næstu
áratugum.
Tillaga Katrínar mun stórskaða
atvinnulífið og draga úr lífskjörum
landsmanna. Sjávarútvegur er eina
stóra útflutningsgrein þjóðarinnar
sem mögulega getur stigið ölduna
í COVID19. Það mun hann ekki
geta í spennitreyju Stjórnarskrár
félagsins. Gangi hugmyndirnar
eftir verður það stórt skref í átt að
fátækara samfélagi.
Snúum dæminu við. Með tíð
og tíma skammast listamenn sín
stundum fyrir sitt fyrsta verk. Það
ættu fulltrúar í stjórnarlagaráði
að gera í þessu tilviki. Í ljósi þess
hve mikla athygli tillögurnar fá
núna væri við hæfi að þeir myndu
biðjast afsökunar á óljósum texta
og vinstri pólitík. Það væri heiðar
legt.
Sýni auðmýkt
SÉRHÖNNUM OG SÉRMERKJUM STARFSMANNAGJAFIR
MEÐ UPPLIFUN AÐ ÞÍNU VALI
Hafðu samband og við útbúum persónulega starfsmannagjöf
með kveðju frá fyrirtækinu, í þeim verðflokki sem þú óskar.
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
GEFÐU
STARFSFÓLKI
UPPLIFUN
Í ÖSKJU
Leigufélagið Alma, sem áður hét Almenna leigufélagið, hefur verið sett í formlegt söluferli. Það er
Kvika banki sem hefur umsjón með
ferlinu, samkvæmt heimildum Markað
arins, og var stutt fjárfestakynning send
út til ýmissa fjárfesta fyrr í vikunni
Heildareignir Ölmu, sem er næst
stærsta leigufélag landsins með um
1.200 íbúðir, námu um 46,6 millj
örðum króna um mitt þetta ár og var
eigið fé um 12,4 milljarðar. Rekstrartekjur
voru 1.335 milljónir á tímabilinu og drógust
saman um 146 milljónir frá fyrra ári.
Leigufélagið er í eigu fagfjárfestasjóðs
í rekstri GAMMA, dótturfélags Kviku, og
hefur verið stefnt að því að slíta sjóðnum
á næsta ári. Upphaflega stóð til að skrá
Ölmu á markað en horfið var frá þeim
áformum í fyrra en rekstur félagsins hafði
þá verið undir væntingum og aðstæður á
mörkuðum ekki taldar fýsilegar. – hae
Leigufélagið Alma sett í söluferli
María Björk
Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri
Ölmu