Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 24
Ly f jaf y r ir t æk ið Cor ipharma vinnur að því að ganga frá umfangsmikilli fjármögnun sem ætlað er að renna stoðum undir þróun á sam
heitalyfjum. Ef ætlanir Cori pharma
ganga eftir – en starfsemin byggist á
þeirri gríðarmiklu þekkingu á lyfja
þróun sem uppgangur Actavis hafði
í för með sér – mun það velta um 75
milljónum evra, jafnvirði 12,3 millj
arða króna, árið 2025 og skapa 260
störf í þekkingargeiranum.
Jónína Guðmundsdóttir, sem tók
við sem forstjóri Coripharma í apríl,
hefur farið vandlega yfir framtíðar
plön lyfjafyrirtækisins, enda krefst
lyfjaþróun mikillar fyrirhyggju.
Hún segir mikinn áhuga á því að
reisa við burðugt þekkingarfyrir
tæki á Íslandi.
„Við sjáum fram á að vera komin
með stöðugan rekstur í lok árs 2023
en þangað til stefnum við á að fjár
festa talsvert í lyfjaþróun,“ segir
Jónína í samtali við Markaðinn.
Coripharma sótti 2 milljarða
króna í nýtt hlutafé í febrúar og
hefur nú hafið annað fjármögn
unarferli sem er í umsjón Kviku
eins og hið fyrra. Umfang fjármögn
unarinnar, sem félagið stefnir á að
klára snemma á næsta ári, nemur
2,5 milljörðum króna.
Viðræður hafa átt sér stað við
núverandi hluthafa, innlenda fjár
festa og einnig innlenda fagfjár
festasjóði sem lífeyrissjóðir koma
að. Aðspurð segir Jónína ólíklegt að
erlendir fjárfestar taki þátt í þessari
fjármögnunarumferð.
„Við teljum okkur enn eiga inni
hjá íslenskum fjárfestum og það má
segja að Coripharma haki í mörg box
sem eru í umræðunni í dag. Þetta er
félag í þróunar og tæknigeiranum
sem stefnir að því að tvöfalda starfs
mannafjöldann á næstu fimm árum.
Við erum að byggja upp þekkingu og
endurvekja lyfjaframleiðslu í land
inu. Það er erfitt að finna góð fjár
festingatækifæri þegar vaxtastigið er
svona lágt og fá félög í Kauphöllinni
eru á miklu vaxtarskeiði. Raunar
held ég að Coripharma gæti vel
átt heima í Kauphöllinni eftir árið
2025,“ segir Jónína.
Stærstu hluthafar Coripharma
eru framtakssjóðurinn TFII, sem er
í stýringu Íslenskra verðbréfa, félag
ið BKP Invest, sem er í jafnri eigu
Bjarna og Kenneths Peterson, stofn
anda Norðuráls, tryggingafélagið
VÍS og Eignarhaldsfélagið Hof, í eigu
bræðranna Sigurðar Gísla og Jóns
Pálmasona.
Á meðal fjárfesta sem bættust í
hluthafahópinn á síðasta ári voru
fjárfestingarfélögin Stálskip, Brim
garðar, sem eru í eigu systkinanna
Eggerts Árna, Guðnýjar Eddu,
Gunnars Þórs og Halldórs Páls Gísla
barna, og Eldhrímnir, en það er í
eigu hjónanna Ingimundar Sveins
sonar arkitekts og fjölskyldu. Þá
er Pretium, félag í eigu Guðbjargar
Eddu Eggertsdóttur, fyrrverandi
forstjóra Actavis á Íslandi, einnig á
meðal stærstu hluthafa.
Skyndilegt tækifæri
Coripharma hóf undirbúning
verktökuframleiðslu á lyfjum fyrir
alþjóðleg lyfjafyrirtæki með kaup
um á verksmiðju Actavis í Hafnar
firði á miðju ári 2018.
Við kaup þess á lyfjaþróun Actavis
í maí á síðasta ári, eignaðist Corip
harma allar þróunar og framleiðslu
einingar Actavis á Íslandi og starfa
þar nú tæplega 100 starfsmenn, en
nær allir eru fyrrverandi starfs
menn Actavis. Lyfjaþróun Actavis
átti að fylgja með risasölu á Medis,
dótturfélagi Actavis sem heldur utan
um sölu á hugviti samstæðunnar, til
alþjóðlegs lyfjafyrirtækis, en þegar
hætt var við söluferlið var ákveðið að
ganga til viðræðna um sölu á þróun
ardeildinni til Coripharma.
„Upphaflega var gert ráð fyrir að
Coripharma myndi einbeita sér að
verktökuframleiðslu og byggja svo
upp þróun til lengri tíma litið. En
þegar skyndilega myndaðist tæki
færi á að kaupa lyfjaþróun Actavis
þá var stokkið til. Þetta var mikið
gæfuspor því nú erum við með tví
þætt viðskiptalíkan þar sem hvort
vegur annað upp.“
Eins og hugtakið gefur til kynna
snýst verktökuframleiðsla um
framleiðslu fyrir önnur lyfjafyrir
tæki, sem eiga hugvitið á bak við
lyfin. Framlegðin er ekki mjög há en
með kaupum á lyfjaþróun Actavis
kemst rekstur Coripharma hins
vegar upp á næsta stig.
„Afurð lyfjaþróunar eru skrán
ingarskjöl (e. dossier), sem eru í
raun hillumetrar af pappírum með
uppskriftum og öllum þeim prófun
um sem staðfesta að samheitalyfið
virki nákvæmlega eins og frum
lyfið. Þarna erum við að tala um
frumlyf með einkaleyfi sem rennur
út á næstu árum og samheitalyfið
getur þá komið inn á markaðinn,“
útskýrir Jónína.
„Við sjáum um þróun lyfsins,
skráningu og framleiðslu en gerum
samninga við erlend lyfjafyrirtæki
um að þau fái að dreifa lyfinu undir
sínum eigin vörumerkjum. Sem
sagt, við segjum við kúnnann að
hann geti farið inn á markaðinn
með okkar hugvit en á móti fáum
við hlutdeild í sölunni.“
Markaður í miklum vexti
Yfirleitt tekur þróunarferlið, það
er frá því að þróunin er hafin og
þangað til markaðsleyfið fæst, hátt
í fjögur ár. Lyfjaþróun Actavis var
hins vegar komin langt á veg með
þróun nokkurra lyfja þegar hún var
keypt yfir til Coripharma.
„Við munum fá markaðsleyfi
fyrir fyrsta samheitalyfið, sem er
f logaveikilyf, áður en einkaleyfið
rennur út í júní 2021 og höfum nú
þegar skrifað undir samninga við
viðskiptavini í SuðurEvrópu þar
sem frumlyfið hefur verið hvað
mest notað. Við klárum síðan þriðja
„dossierinn“ á þessu ári og fjóra
á næsta ári. Þetta er allt að fara á
f leygiferð.“
Næstu ár munu því annars vegar
helgast af því að afla verktökusamn
inga við önnur lyfjafyrirtæki til að
nýta framleiðslugetu verksmiðju
félagsins í Hafnarfirði sem best og
hins vegar að klára þróun og gera
samninga um markaðssetningu á
samheitalyfjum félagsins. Áform
Coripharma gera ráð fyrir að fyrir
tækið þrói fimm til sex lyf á ári.
„Við erum búin að velja lyf til að
setja á markað á árunum 2021 til
2025 og nú erum við að horfa á árin
2026 til 2030. Við veljum verkefni
sem henta okkar verksmiðju og
vélakosti,“ segir Jónína. Hún bendir
á að markaðurinn sé í miklum vexti.
„Ef við horfum á allan lyfja
markaðinn á alþjóðavísu þá er gert
ráð fyrir að hann vaxi að meðal
tali um 2,6 prósent fram til ársins
2029. Samheitalyfin vaxa hraðar,
um 3,8 prósent, og taka þannig til
sín markaðshlutdeild á kostnað
frumlyfja. Ef við köfum enn dýpra
og skoðum þann markað sem Cori
pharma er að einblína á, það er
Coripharma sækir milljarða fyrir
metnaðarfull áform í lyfjaþróun
Lyfjafyrirtækið Coripharma vinnur að 2,5 milljarða króna fjármögnun til að renna stoðum undir lyfjaþróun. Rúmlega 12 milljarða
króna tekjur á árinu 2025 samkvæmt viðskiptaáætlun og 260 störf. Byggja upp þekkingarfyrirtæki á grunni þess sem uppgangur
lyfjageirans á Íslandi hafði í för með sér. Íslendingar verði atkvæðamiklir í alþjóðlegum lyfjaiðnaði og flestir vilja heim fyrir rest.
Jónína Guðmundsdóttir starfaði fyrst hjá félagi sem var tekið yfir af Delta, sem varð síðar að Actavis. Þar starfaði hún á markaðssviðinu fram til ársins
2003 þegar hún fór til Medis, dótturfélags Actavis, og leiddi þar meðal annars viðskiptaþróun. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Það er mikil ástríða
fyrir því að byggja
upp þekkingarfyrirtæki í
lyfjaiðnaði á Íslandi. Og ég
er í sambandi við fólk sem er
starfandi hjá lyfjafyrir-
tækjum úti um allan heim
og það langar alla heim fyrir
rest. Fólk minnir á sig.
Stórt hlutfall starfsmanna í lyfjaframleiðslu sinnir gæðaeftirliti.
2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN