Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.
geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Tónlistar- og tamninga-konan Fríða Hansen gaf út á dögunum lagið Nútíminn og skemmti-legt myndband með. Fríða segist vera sveita-
stelpa í húð og hár, en hún starfar
einnig sem tónlistar- og reiðkenn-
ari. Hún segist hafa sýnt tónlistinni
áhuga snemma. Ein af hennar fyrstu
minningum sé um sig syngjandi
hástöfum í bílnum lagið Nú liggur
vel á mér, með pabba sínum.
„Ég vildi helst hlusta á það aftur
og aftur og söng hærra í hvert
skipti, en þarna hef ég verið svona
fimm ára, giska ég á,“ segir Fríða
hlæjandi. „Í grunnskóla tók ég þátt
í öllum söngkeppnum og leikritum,
byrjaði að læra á blokkflautu eins
og flestir íslenskir krakkar í 2. bekk
og fór svo í gítar-, píanó- og söng-
nám á unglingsárunum. Samkvæmt
systkinum mínum og foreldrum var
ég afar kotroskinn krakki með full-
orðinslegan orðaforða. Bókaormur
og spekingur. Það fór aldrei lítið
fyrir mér,“ bætir hún við.
Ástarjátning til lífsins
Tónlistin sem Fríða er að vinna
þessa dagana er einhvers konar
rólegheita popptónlist, að hennar
sögn.
„Ég sem allt á íslensku. Textinn er
yfirleitt spunninn út frá tilfinning-
um tengdum náttúrunni, veðrátt-
unni og fólkinu í kringum mig. Eins
og lagið mitt Tímamót. Það varð til
á haustdögum fyrir nokkrum árum
þegar farfuglarnir voru að kveðja,
græna grasið að verða gult og hita-
stigið að detta niður fyrir frostmark.
Þetta er einhvers konar ástarjátning
til lífsins sem gengur sinn vanagang,
það kemur alltaf haust eftir gott
sumar og svo vor eftir veturinn. Ég
þarf stundum að minna sjálfa mig á
það. Lagið er popplag með djössuðu
ívafi með fallegum texta, þó ég segi
sjálf frá,“ segir hún.
Lagið Tímamót segir hún marka
ákveðin tímamót í sínu lífi, en lagið
er það fyrsta sem hún gefur út.
„Ég hef lengi verið á leiðinni að
gefa út, en sambland af of frjóum
huga og annríki á öðrum sviðum
lífsins, hefur kannski aðallega staðið
í vegi fyrir að ég hafi klárað þau lög
sem ég á til. En ég vann lagið ekki
ein, Stefán Þorleifsson, vinur minn
til margra ára, spilaði inn píanóið
og tók upp, og kom mér svo í sam-
band við tónlistarmann búsettan
í Kaupmannahöfn, Sigurdór Guð-
mundsson, sem bætti við bassaleik,
hljóðblandaði og fullvann lagið.
Mér finnst okkur bara hafa tekist
nokkuð vel til,“ segir Fríða.
Skemmtileg verkefni
Fríða samdi sitt fyrsta lag þegar hún
var einungis tíu ára gömul og hefur
því verið nokkuð lengi að, þrátt
fyrir ungan aldur.
„Það var píanóverk, samið á
orgel sem afi minn átti, fótstigið
níutíu ára Mannborg stofuorgel. Ég
kann það enn þá og mun vonandi
geta notað það í framtíðinni í ein-
hver verkefni. Fyrsti textinn sem
ég samdi fæddist svo sennilega í
fyrsta bekk, en ég var alltaf að skrifa
sögur,“ segir hún.
Fríða segist vera með stór mark-
mið fyrir næstu árin.
„Mig langar líka að vera fyrir-
mynd annarra stelpna og kvenna,
sýna að allt sé mögulegt og það að
vera maður sjálfur skipti mestu
máli. Með því að láta mína eigin
drauma rætast mun ég vonandi ná
að hvetja aðra í kringum mig.“
Hún segist vera með nokkur ein-
staklega skemmtileg verkefni í píp-
unum.
„Ég er að leggja lokahönd á lag
sem ég er mjög spennt fyrir, og hef
fengið ljóðskáldið og bókmennta-
fræðinginn Hörpu Rún Krist-
jánsdóttur, sem býr hérna hinum
megin við ána, með mér í lið til
að klára textann. Það að skapa er
svo skemmtilegt að ég mun von-
andi senda frá mér alls konar efni á
næstu misserum,“ segir Fríða, sem
kemur frá Leirubakka í Landsveit.
Nýtur náttúrunnar
Í sumar kom út lagið Lítið hús, með
Hreimi úr Landi og sonum og Fríðu.
„Við það lag kom út myndband
sem Eiríkur Hafdal tók upp. Ég átt-
aði mig þá á því að það að gera tón-
listarmyndband þarf ekki að vera
jafn f lókið og ég hafði haldið, og
ákvað að heyra í Eiríki aftur með
myndbandsgerð við lagið mitt. Við
ákváðum að taka það upp í Heið-
mörkinni, niðri við Elliðavatn. Það
var mjög skemmtilegt, fengum fall-
egan dag og náðum góðum skotum
með dróna og myndavél,“ segir hún.
Eins og áður kom fram hefur
Fríða lengi verið í hestamennsku.
„Ég hef verið á hestbaki síðan ég
var barn og verið að þjálfa og keppa
alla tíð síðan. Ég er sem sagt mennt-
aður reiðkennari og tamningakona
frá Háskólanum á Hólum og hesta-
mennskan á nánast hug minn allan
þegar ég er ekki að vinna við tónlist-
ina. Mér finnst nauðsynlegt að eiga
fjölbreytt líf og þessi tvö áhugamál
og lifibrauð vinna enn þá mjög vel
saman. Ég er líka mikil útivistar-
kona, og er þess vegna frábært að
geta slegið tvær flugur í einu höggi
og verið úti að þjálfa hross og njóta
náttúrunnar.“
Lagið Tímamót er hægt að nálg-
ast á öllum helstu streymisveitum.
steingerdur@frettabladid.is
Tónelsk tamningakona úr Landsveit
Á dögunum kom út lagið Tímamót, sungið og samið af tamninga- og tónlistarkonunni Fríðu Hansen. Hún segist
hafa vera syngjandi frá því hún man eftir sér. Fríða samdi sitt fyrsta lag á níutíu ára gamalt fótstigið orgel þegar
hún var einungis tíu ára gömul. Hún hefur verið í hestamennskunni frá barnæsku og kennir reiðmennsku.
Fríða, sem er mikill dýravinur, með íslenska fjárhundinum Sunnu á fallegum haustdegi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TEXTINN ER YFIR-
LEITT SPUNNIN ÚT
FRÁ TILFINNINGUM TENGDUM
NÁTTÚRUNNI, VEÐRÁTTUNNI
OG FÓLKINU Í KRINGUM MIG.
MIG LANGAR LÍKA AÐ
VERA FYRIRMYND
ANNARRA STELPNA OG
KVENNA, SÝNA AÐ ALLT SÉ
MÖGULEGT OG ÞAÐ AÐ VERA
MAÐUR SJÁLFUR SKIPTI MESTU
MÁLI.
2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð