Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 30
Erla og Jónatan reka sauma-stofuna Ystagil í Garði. Þau hafa í gegnum tíðina verið
mikið í því að laga tjöld.
„Við höfum verið að nota gömul
tjöld í viðgerðirnar, af því þau
eru búin að hlaupa og veðrast, en
núna þegar uppblásin tjöld eru
mikið að koma inn þá er minna
um tjaldviðgerðir,“ útskýrir Erla.
„En við eigum svo mikið af
tjöldum sem okkur hafa verið
gefin eða við höfum keypt í Góða
hirðinum. Það eru svo mikil verð-
mæti í þeim að við tímum ekki
að henda þeim. Maðurinn minn
segir þess vegna: Hvernig væri að
nota þessi tjöld og búa til marg-
nota poka undir dósir og ýmis-
legt? Og við slógum til.“
Pokarnir sem þau hjónin sauma
eru á stærð við venjulega svarta
ruslapoka. Á þeim er lykkja svo
hægt sé að hengja þá upp og band
til að binda fyrir þá. Pokarnir eru
sterkir og sæmilega vatnsheldir.
„Tjöld eru vatnsheld, en pok-
arnir eru samt ekki gerðir til að
geyma úti í langan tíma,“ útskýrir
Erla. „En það getur til dæmis lekið
úr f löskunum og dósunum í efnið
og það er hægt að þvo pokana. Það
má til dæmis setja þá í þvott með
vinnufötunum.“
Erla segist hafa látið krakkana
sína hafa poka en hún hefur líka
reynt að selja þá þar sem þau
hjónin eiga ógrynni af tjöldum og
poka á lager.
„Ég veit að margir hafa verið
að nota gömul sængurver og þess
háttar fyrir svona poka, en þau
eru ekki eins sterk og tjöldin. Ég
hef verið að selja pokana á 2.000
krónur stykkið en þrjá á 5.000.
Þannig að þú græðir smá ef þú
kaupir f leiri,“ segir Erla.
Hún segir mestu vinnuna við
pokasauminn vera að klippa
tjaldið niður.
„Ég er að vísu ekki að taka upp
saumana, ég hef þá bara. En suma
poka er ég lengi að sauma því ég
nota allar pjötlur, hann verður þá
kannski þrílitur eða röndóttur,
svo eru sumir pokar einlitir. Ég
reyni bara að nýta efnið eins og
ég get.“
Erla segir að þau hjónin séu
bara nýbyrjuð á að sauma tjald-
pokana, en hún hefur þó verið að
sauma alls kyns poka í mörg ár.
„Ég hef saumað jólapoka lengi.
Ég kaupi aldrei jólapappír. Ég
sauma poka úr efni með jóla-
mynstri og set gjafirnar í pokann.
Efnið kaupi ég yfirleitt á útsölum.
Svo saumaði ég innkaupapoka
handa systrum mínum, það eru
örugglega 23 ár síðan. Ég hef
saumað innkaupapoka í mörg ár
og til dæmis gefið öllum krökk-
unum mínum,“ segir Erna og
bætir við að henni hafi alltaf verið
illa við plast, en hún hefur greini-
lega verið á undan sinni samtíð í
notkun fjölnota innkaupapoka.
„Ég reyni að komast hjá því
að nota plast. Ég nota plastpoka
undir ruslið ef ég á ekkert annað,
en ég kaupi þá ekki. Þessir burðar-
pokar eru bara þvílík sóun, að
kaupa einhverja fimm til sex poka
undir vörurnar. Frekar set ég þær
bara í innkaupakörfuna og tíni
upp úr henni þegar ég kem í bílinn
ef ég gleymi fjölnotapokunum
mínum.“
Burðarpokar eru þvílík sóun
Erla Vigdís Óskarsdóttir rekur saumastofu með manninum sínum Jónatani Ingimarssyni. Nýlega
fóru þau að sauma ruslapoka úr gömlum tjöldum, en Erlu hefur alltaf verið illa við plastpoka.
Erla Vigdís með pokana sem hún saumar úr gömlum tjöldum. MYND/AÐSEND
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Ég reyni að komast
hjá því að nota
plast. Ég nota plastpoka
undir ruslið ef ég á
ekkert annað, en ég
kaupi þá ekki.
STERKIR Í
BROTAJÁRNI
Við erum leiðandi í endurvinnslu brotajárns
Hefur bíllinn þjónað sínum tilgangi?
Fáðu greitt fyrir ónýta bílinn
og Hringrás sér um ferlið við
að farga honum.
Kíktu inn á www.hringras.is
6 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RENDURVINNSLA