Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 40
Sitjiði róleg bara, sitjiði róleg. Þetta var alvöru sko. Steingrímur J. Sigfússon, for- seti Alþingis 20.10.2020 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 21. október 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Helgi Vífill Júlíusson SKOÐUN Stjórnarskrárfélagið, sem berst fyrir því að drög að stjórnarskrá sem Feneyja­ nefnd Evrópuráðsins gaf fallein­ kunn árið 2013 verði leidd í lög, er skipað færum pólitískum aðgerða­ sinnum. Áhrifaríkar auglýsingar frá þeim bera þess glöggt vitni. Tímasetningin, þegar þjóð­ félagið er í sárum vegna COVID­ 19, er varla tilviljun. Meðlimir Stjórnarskrárfélagsins hafa eflaust hugsað sér gott til glóðarinnar enda spruttu tillögurnar upphaf­ lega úr jarðvegi óróleika og reiði sem bankahrunið 2008 skapaði. Athygli vekur að ekki hefur verið ákall um breytta stjórnar­ skrá fyrir undanfarnar alþingis­ kosningar. Þar hafði sitt að segja að Feneyjanefndin sagði að tillög­ urnar væru óljósar, almennt orð­ aðar, stjórnarkerfið flókið og án samræmis. Ekki bætti úr skák að kosningar til stjórnlagaráðs voru dæmdar ólöglegar og tillögurnar ekki bornar undir þjóðina. Hve stóran sess vinstri hug­ myndafræði á í hjörtum höf­ unda tillagnanna og forsprakka Stjórnarskrárfélagsins er hluti af vandanum. Stjórnarskráin var ekki þjóðarinnar allra heldur þeirra. Katrín Oddsdóttir, formaður hópsins, sagði í Silfrinu á sunnu­ daginn að hún gæti ekki sætt sig við að forsætisráðherra myndi leggja fram frumvarp um breytingar á tveimur ákvæðum stjórnarskrárinnar sem lúti að auðlindum og náttúru­ og umhverfisnefnd. Katrín, sem tók þátt í að semja drögin fyrir átta árum, sættir sig einungis við að tillagan verði lög­ leidd í heild sinni. Að öðrum kosti sé verið að ramma inn ósanngirni. „Við þurfum alvöru auðlinda­ ákvæði í stjórnarskrá sem kveður á um að það megi ekki veðsetja og framselja aflaheimildir, og ekki nýta þær nema gegn fullu verði.“ Það er margt dapurlegt við þessa afstöðu, eins og til dæmis að stjórnarskráin höfði ekki bæði til vinstra og hægra fólks, enda munu að öllum líkindum ríkisstjórnir sem horfa með ólíkum augum á kvótakerfið stýra landinu á næstu áratugum. Tillaga Katrínar mun stórskaða atvinnulífið og draga úr lífskjörum landsmanna. Sjávarútvegur er eina stóra útflutningsgrein þjóðarinnar sem mögulega getur stigið ölduna í COVID­19. Það mun hann ekki geta í spennitreyju Stjórnarskrár­ félagsins. Gangi hugmyndirnar eftir verður það stórt skref í átt að fátækara samfélagi. Snúum dæminu við. Með tíð og tíma skammast listamenn sín stundum fyrir sitt fyrsta verk. Það ættu fulltrúar í stjórnarlagaráði að gera í þessu tilviki. Í ljósi þess hve mikla athygli tillögurnar fá núna væri við hæfi að þeir myndu biðjast afsökunar á óljósum texta og vinstri pólitík. Það væri heiðar­ legt. Sýni auðmýkt SÉRHÖNNUM OG SÉRMERKJUM STARFSMANNAGJAFIR MEÐ UPPLIFUN AÐ ÞÍNU VALI Hafðu samband og við útbúum persónulega starfsmannagjöf með kveðju frá fyrirtækinu, í þeim verðflokki sem þú óskar. 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is GEFÐU STARFSFÓLKI UPPLIFUN Í ÖSKJU Leigufélagið Alma, sem áður hét Almenna leigufélagið, hefur verið sett í formlegt söluferli. Það er Kvika banki sem hefur umsjón með ferlinu, samkvæmt heimildum Markað­ arins, og var stutt fjárfestakynning send út til ýmissa fjárfesta fyrr í vikunni Heildareignir Ölmu, sem er næst­ stærsta leigufélag landsins með um 1.200 íbúðir, námu um 46,6 millj­ örðum króna um mitt þetta ár og var eigið fé um 12,4 milljarðar. Rekstrartekjur voru 1.335 milljónir á tímabilinu og drógust saman um 146 milljónir frá fyrra ári. Leigufélagið er í eigu fagfjárfestasjóðs í rekstri GAMMA, dótturfélags Kviku, og hefur verið stefnt að því að slíta sjóðnum á næsta ári. Upphaflega stóð til að skrá Ölmu á markað en horfið var frá þeim áformum í fyrra en rekstur félagsins hafði þá verið undir væntingum og aðstæður á mörkuðum ekki taldar fýsilegar. – hae Leigufélagið Alma sett í söluferli María Björk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Ölmu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.