Fjölrit RALA - 15.03.1977, Qupperneq 65
59
Skriðuklaustur 1976
Tilraun nr. 289-75. Framhald.
Aburði tvískipt, 20. maí borinn á Græðir I 400 kg/ha, þ.e. 56 kg N,
32 kg P og 60 kg K. 16. júní bætt við 50 kg N/ha í Kjarna (150 kg Kjarna) .
Beitta landið lá undir þungu beitarálagi af sauðfé fram að miðjum
júní og var þá rótnagað. Einnig beitt haustið 1975.
Skráðar voru athugnir á gróðri við slátt. Tegundir, sem sáð var halda
sér að mestu leyti. Á túnvingulsreitum var íblöndun ca 1/3, aðallega
vallarsveifgras, en einnig vallarfoxgras og arfi. Á beittum reitum var
íblöndun í vallarfoxgras ca. 1/5. Ekki fannst þó við athugunina mismunur
á hlutdeild vallarfoxgrass á friðuðum og beittum A-blöndu reitum, en þess
ber að gæta að þær athuganir voru ekki gerðar samtímis.
Tilraun nr. 421-76. Samanburður á grænfóðurtegundum og -stofnum.
Uppskera, hkg/ha (85% þ.e.)
Alls. Blaðvöxtur Rótarvöxtur
a. Bygggras, Akka 43,7
b. Hafrar, Maris Quest 84,2
c. Sumarrepja, Fora 104,9
d. Sumarrepja, Giant Rape 116,7
c. Fóðurnæpur, Civasto-R 135,9 74,1 61,8
Mt. 97,1
Sáð og borið á 3/6. Áburðarefni kg/ha 170N 74P 142K (1000 kg 17-17-17).
Slegið: a-liður 23/8, hinir 25/9.
Endurtekningar 3 Meðalfrávik 6,82
Frítölur f. skekkju 8
Tilraunalandið er ræst mýrlendi, vel þurrt (Tilraunaland II,
sjá Nýjar tilraunir).
Byggið spíraði illa og varð gisið. Ýmsar fleiri athuganir voru
gerðar á vaxtartímanum.