Fjölrit RALA - 15.03.1977, Síða 71
65
Skriðuklaustur 1976
Nýjar tilraunir sem undirbúnar voru og sáð til 1976.
í 3 ha girðingu, þar sem heitir Völlur, er tilraunaland II. Þar
voru grænfóður- og kornræktartilraunirnar á landi sem hafði verið brotið
áður og sumpart notað til tilrauna árið áður, en að mestu leyti ógróið.
Um undirbúning að ræktun landsins sjá skýrslu fyrir árið 1975,
bls. 78. Landið, sem tekið var til grasræktartilrauna nú, var plægt í
ca 25 sm dýpt 11. júní og fullunnið með tætara (2 umferðir) strax á
eftir. Sáð var í tilraunirnar með 0yjord sáðvél. Við sáningu var borið
á sem svarar 36-39 kg/ha P í þrífosfati á stofnatilraunir og frætökureiti.
Landið er framræst og flatt. Nokkur hluti þess rís þó hærra en
mýrin í kring og hefur það verið vallendiskennt, sjá einnig athugasemdir
við einstakar tilraunir.
Tilraun nr. 392-76. Samanburður á vaxtarsvörun grastegunda við N, P og
K áburði.
Sáð var þrem grastegundum, Korpu vallarsveifgrasi, Fylking vallar-
sveifgrasi og snarrót í 19 x 30 m2 stórreiti, 2 af hverri tegund.
Stórreitunum verður síðan skipt í 2 x 12 reiti, sláttutima x aburðar-
liði, og áburðarliðirnir eru 3x2x2 NxPxK þáttatilraun.
Sáð 15/6. Borið á 24/6. Áburðarefni kg/ha: 37 N, 44 P, 75 K.
Tilraunalandið á hálfgerðu valllendi, mýrkenndu. Landið hefur verið
ræst og er vel þurrt.
Vallarfoxgrasið spratt vel og var slegið í október. Uppskera var
ekki vegin en var nál. 30 hkg/ha. Hinar tegundirnar voru ekki slegnar.
Vallarsveifgrasið varð vel grænt, en mjöldögg lagðist þungt á það seinni
hluta sumars og dró úr vexti. Snarrótin grænkaði ekki nema á smáblettum.
Landið gæti hafa verið of þurrt til þess.
Tilraun nr. 354-75. Tilraun með grindatað í nýrækt.
Stórreitir: 9 x 13 m, smáreitir 3,5 x 9 m.
Áburður/ha nýræktarár Áburðarefni kg/ha árlega eftir nýræktarár
(Stórreitir) (Smáreitir)
a. Enginn 1. 100 N 20 P 50 K
b. 55N 57P lllK (tilb. áburðuú 2. 0 N 20 P 50 K
c. Grindatað 25 tn/ha 3. 100 N 0 P 0 K
d. " 50
e. " 100
f. " 150
Sáð 14/6 Korpu vallarfoxgrasi.
Borið á b.-lið 24/6. Grindataði dreift haustið 1975.
Slegið 18/10.
Uppskera var ekki mæld. b-, e- og f-liðir gáfu nokkra uppskeru,
nálægt 30 hkg/ha. b-liður jafnast gróinn, f-liður með gróskumiklum
toppum og e-liður einnig. c- og d-liðir allvel grónir, en með eyðum.
a-liður tæpast grænn.