Fjölrit RALA - 15.10.2000, Blaðsíða 13
Efni og aðferðir
Val sýna
Rannsókn Manneldisráðs á neyslu landsmanna 1990 var hagnýtt við val á
sýnum. Eftirfarandi var haft að leiðarljósi: (1) Byrjað var á því að velja þær
fæðutegundir sem leggja mest til neyslunnar mælt út ffá orku og áætuðu magni
snefilefnanna samkvæmt erlendum heimildum. Mest var byggt á jámi þar sem
takmarkaðar upplýsingar vom til um sum efnanna. (2) Bætt var við nokkmm
fæðutegundum sem sumir einstaklingar neyta í umtalsverðu magni, t.d. kjöti af
sjófuglum og eggjum þeirra. (3) Loks var bætt við séríslenskum matvælum
með óþekkta samsetningu, svo sem hangikjöti. Heildarfjöldi landbúnaðarsýna
varð 102.
Framkvæmd sýnatöku
Við sýnatökuna var lagt til gmndvallar að sýnin væm dæmigerð fyrir matvæli
sem Islendingar neyta. Til þess að fá sem marktækust sýni og til að halda
efnagreiningakostnaði niðri vom sýni útbúin í öllum tilvikum sem safnsýni úr
nokkmm hlutasýnum. Miðað var við að fjöldi hlutasýna væri 10, nema fyrir
unnin matvæli með nokkuð stöðuga samsetningu en fjöldi hlutasýna var þá
a.m.k. fimm. Lágmarksþyngd hlutasýnis var 200 g en fyrir unnin matvæli var
miðað við eina pökkunareiningu. Þessar sýnatökureglur vom byggðar á
leiðbeiningum Greenfield og Southgate (1992). Sýnataka fór eingöngu fram á
Stór-Reykjavíkursvæðinu og var álitið að með því fengist viðunandi mat fyrir
landið allt.
Flest sýnin voru keypt í verslunum en í nokkrum tilfellum vom sýni fengin frá framleiðendum.
Hlutasýnum var skipt á framleiðendur eftir áætlaðri markaðshlutdeild. Stundum þurfti að áætla
markaðshlutdeildina eftir hilluplássi í verslunum en markaðshlutdeild í prósentum var venjulega ekki
þekkt nákvæmlega. Þegar matvæli vom alfarið unnin og pökkuð í matvælafyrirtækjum var hvert
hlutasýni talið vera ein pökkunareining merkt með ákveðinni dagsetningu eða lotunúmeri. Þessi sýni
vom ýmist fengin hjá ffamleiðendum eða keypt í verslun. Sýnum af matvælum sem vom unnin eða
pökkuð í verslunum var skipt þannig: Hagkaup (þrjú sýni), Bónus (tvö sýni), Nóatún (tvö sýni),
Fjarðarkaup (eitt sýni), Þín verslun (1 sýni) og Tíu-ellefu verslanir (1 sýni).
Hér fara á eftir viðbótampplýsingar um nokkur sýnanna. Lambaframhryggjarsneiðar vom úr 10
skrokkum (þremur frá Borgameskjötvömm, fjórum frá Kjötumboðinu og þremur ffá Höfn-
Þrihymingi), sex sneiðar úr hvetjum. Hangikjöt var frá Húsavík, SS, Borgameskjötvömm og
Kjötumboðinu. Pítsur vom ffá Ömmubakstri (þrjár með skinku, þrjár með pepperóní, fjórar með
hakki). Hænuegg vom ffá fjórum ffamleiðendum, samtals 61 egg. Sýni af Brie ostum var Dalabrie,
bóndabrie, hvítlauksbrie, Dalayrja og kastali. Skyr án ávaxta var dósaskyr frá MBF. Mysa var frá MBF
og var ekki súrsunarmysa. Rjómais var Skafís (14% fita) með vanillu ffá Emmess ís. Kaffi og te var
lagað við raunvemlegar aðstæður, fimm sýni á heimilum og fimm á stofnunum. Súkkulaði var
rjómasúkkulaði frá Nóa-Siríus. Poppkorn var Stjömupopp frá Iðnmarki. Avaxtajógúrt var óskajógúrt,
skólajógúrt og Húsavíkurjógúrt og var fituinnihald á bilinu 3,3-3,5%.
Vinnsla sýna
Fylgt var ströngum vinnureglum til að koma í veg fyrir mengun sýnanna.
Plastdósir og lok fyrir sýni vom skoluð rækilega með afjónuðu vatni. Við
ll