Fjölrit RALA - 15.10.2000, Page 18
Niðurstöður mælinga
Niðurstöður mælinga á ólífrænum snefílefnum í landbúnaðaraíurðum koma
fram í 4. töflu og er fæðutegundum raðað í stafrófsröð innan matvælaflokka.
Allar niðurstöður eru byggðar á mælingu á einu safnsýni. í töflunni er gefíð
upp hversu mörg hlutasýni eru í hverju safnsýni. Niðurstöður eru gefnar upp
fyrir ferskvigt og alltaf er miðað við 100 g af ætum hluta. Matvælin eru hrá,
nema annað sé tekið fram. Mælingar á joði og flúor voru voru gerðar á
takmörkuðum fjölda sýna til að spara efnagreiningarkostnað.
Selen
Selen er öllum dýrum og fólki nauðsynlegt en aftur á móti þurfa plöntur ekki á
því að halda. Fyrir selen eru þröng mörk milli skorts og eitrunar hjá dýrum og
fólki en form selens skiptir þó máli. Ráðlagðir dagskammtar Manneldisráðs
Islands fyrir selen eru 50 (ig/dag fyrir fullorðna karla, 40 pg/dag fyrir
fullorðnar konur og 55 pg/dag fyrir konur með bam á bijósti og konur á
meðgöngu.
Niðurstöður selenmælinga koma fram í 4. töflu. Nær engar aðrar niðurstöður
em til fyrir selen í matvælum frá íslenskum landbúnaði. Mikið selen í eggjum,
svínakjöti og kjúklingum vekur athygli. Einnig er mikið selen í lifrarkæfu og
bendir það til þess að mjög mikið selen sé í svínalifur. Líklegt er að þetta megi
að einhverju leyti skýra með því að selen komi úr fiskimjöli sem notað er í
fóðrið en fiskimjöl er mjög góður selengjafi. Lifur og ným lamba em einnig
selenrík. Selen í komvömm er breytilegt en mjög misjafnt er hve mikið selen er
í hveiti. Hveiti sem flutt er frá Ameríku er selenríkt en minna selen er í hveiti
frá Evrópu. Almennt má segja að lítið selen hafi mælst í grænmeti.
Umhverfisþœttir
Misjafnt er hve mikið selen er í jarðvegi. A hinum Norðurlöndum er selen víða
í litlu magni og geta skepnur veikst vegna selenskorts. Hér á landi er meira
selen í jarðvegi en annars staðar á Norðurlöndum (Baldur Símonarson o.fl.
1984). Islenskt berg er víðast basískt og þess vegna selenríkt en í nágranna-
löndunum er nær eingöngu súrt og selensnautt berg. íslenskur jarðvegur er því
selenríkur en hann er víða súr. I súmm jarðvegi myndar selen torleyst
efnasambönd sem em lítið nýtanleg jurtum. Því getur verið að lítið selen verði í
grasi en áfok jarðvegs getur bætt miklu við það sem skepnur fá með töðunni. í
rannsókn 1980 mældist of lítið selen í heyi miðað við þarfamörk sauðfjár
(Guðný Eiríksdóttir o.fl. 1981). Hins vegar fundust vísbendingar um það að
úthagagróður væri selenríkur.
16