Fjölrit RALA - 15.10.2000, Side 48

Fjölrit RALA - 15.10.2000, Side 48
lambainnmat dreifðust með öðrum hætti og mosarannsóknin gefur því ekki vísbendingar um kadmín í íslenskum lambaafurðum. Osennilegt er að kadmín úr tilbúnum áburði skýri breytileika í kadmíni fyrir íslenskar lambaafurðir. Aburður sem framleiddur er í Gufunesi inniheldur lítið kadmín. A Nýja-Sjálandi og Astralíu hefur verið notaður áburður með nokkru af kadmíni. Kadmín í jarðvegi á Nýja-Sjálandi hefur aukist frá því sem áður var vegna notkunar á fosfat-áburði (Grace o.fl. 1993). Tilraunir þar í landi hafa einnig sýnt að kadmín í áburði eykur kadmíninnihald bæði jarðvegs og gróðurs (Roberts o.fl. 1997). I ástralskri rannsókn á lifur og nýrum sauðfjár (Langlands o.fl. 1988) kom fram landshlutamunur á styrk efnisins. Höfundamir töldu að muninn mætti rekja til þess að jarðvegur sem skepnumar innbyrtu hefði verið mengaður kadmíni úr áburði. Robert o.fl. (1997) fundu hins vegar að lítill hluti kadmíns sem sauðfé fékk kom úr jarðvegi, heldur kom kadmínið að langmestu leyti úr plöntum. Styrkir kadmíns í lifur lamba frá bæjunum Skarði, Hólum og Næfurholti í nágrenni Heklu vom 0,015, 0,022 og 0,053 mg/kg. Lömbin áttu að hafa verið á beit í nágrenni við svæði þar sem aska féll í Heklugosinu 1991. Kadmín í öðmm sýnum sem tekin vom af lifur frá bæjum á Suðurlandi sama ár (1991) var á bilinu 0,009 til 0,053 mg/kg. Þessi sýni vom átta og vom úr lömbum frá bæjum víða á Suðurlandi (Fljótshlíð, Landeyjum, Holtahreppi, Hmnamanna- hreppi, Gnúpveijahreppi, Biskupstungum og Ölfusi). Styrkir kadmíns í nýmm lamba frá Skarði, Hólum og Næfurholti vom 0,027, 0,063 og 0,076 mg/kg en niðurstöður frá öðmm bæjum á Suðurlandi þetta ár vom á bilinu 0,010 til 0,058 mg/kg. Kadmín í nýmm lamba frá Hólum og Næfurholti er nokkm hærra en mældist í öðmm sambærilegum sýnum frá Suðurlandi en ekki verður fullyrt hvort um áhrif frá eldgosinu er að ræða. Alla vega em áhrifín ekki umtalsverð í þessum tilfellum. Samanburður við hámarksgildi í reglugerð I reglugerð um aðskotaefni er sett hámarksgildi fyrir styrk kadmíns í innmat. A Islandi er hámarksgildið fyrir innmat 0,5 mg kadmín/kg. Sama hámarksgildi gildir hjá Evrópusambandinu. Hæsta gildið úr þeirri rannsókn sem hér er kynnt var 51% af hámarksgildinu. í rannsókn á Nýja-Sjálandi 1993 fór kadmín í nýram sauðfjár yfir leyfilegt hámark í 22-28% tilfella en á þeim tíma var hámarkið tvöfalt hærra eða 1 mg/kg. Styrkur kadmíns í nýmm fór eftir aldri skepnanna. Þannig innihélt 1% af nýmm lamba og 30% af nýmm fullorðins fjár meira en leyfilegt magn kadmíns (Roberts o.fl. 1994). I ástralskri rannsókn fór kadmín í lambanýram í engu tilfelli yfir hámarksgildið, sem þá var 2,5 mg/kg, en 2% sýnanna fóm yfir 1 mg Cd/kg (Morkombe o.fl. 1994). Kadmín í 72% sýna af nýmm úr fullorðnu fé fór yfir hámarksgildi. Kadmín í lifur og nýmm sauðfjár jókst með aldri, var hærra á þungbeittum svæðum og hæst í Suður- og Vestur-Astralíu. 46

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.