Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Page 75
Niðurstaðan er neikvæð vegna þess hve dýr mjólkin er sem fóður og lágt verð er
greitt fyrir kjötið. Erlendis er mjólkurkálfakjöt selt margfalt dýrara en hefðbundið
káifakjöt, sem munaðarvara. Hérlendis er þetta kjöt óþekkt á markaði og gerir
núverandi kjötmat ekki ráð fyrir því. Á því þarf að ráða bót svo að mjólkur-
kálfaeldi geti orðið raunhæfur valkostur fyrir þá sem vilja koma umframmjólk í
verð með þessum hætti.
Að lokum er hér tafla sem sýnir verð sem fæst fyrir umframmjólk sem notuð er til
mjólkurkálfaeldis miðað við mismunandi grundvallarverð á kjötinu. Þar sést að
fáist um 1000 kr fyrir kllóið af mjólkurkálfakjöti, fæst nálægt grundvallarverði
fyrir mjólkina, miðað við niðurstöður tilraunarinnar við núverandi aðstæður.
Tafla 3. Verð á umframmjólk við mismunandi grundvallarverð kjöts
Gmndvallarverð kjöts kr/kg Kr/1 fyrir umtrammjólk
300 5,4
400 12,9
500 20,5
600 28,0
700 35,6
800 43,1
900 50,6
1000 58,2
68