Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Blaðsíða 53
tekinn með. Gert var ráð fyrir að hvert sýni táknaði þann plöntuhluta sem myndi
bítasL Túnvingli og blávingli var safnað sem einni tegund.
Efnagreiningar
í sýnishornum var mælt innihald (% af þurrefni) af kalsíum, magnesíum, kalí,
natríum, fosfór, hrápróteini, glúkosa, fruktosa, glúkani, frúktani, ADF og NDF.
Auk þess var meltanleiki rnældur. Þessar mælingar voru framkvæmdar
samkvæmt aðferðum Bændaskólans á Hvanneyri.
Úrvinnsla
Hólmgeir Bjömsson á Rala sá um tölfræðilega úrvinnslu gagnanna. Þriggja þátta
fervikagreining var notuð. Af því að endurtekningar vantaði í tilrauninni var
tveggja- og þriggjaþátta samspil skoðað til að finna skekkju (valid error). F-
prófun var gerð og p-gildi reiknað.
Helstu niðurstöður
Komsúran var með mest og varanlegast næringargildi yfir sumarið. í hinum
tegundunum minnkaði næringargildi eftir því sem á leið. í túnvingli minnkaði
næringargildið meb a, með auknum plöntuþroska heldur en í hinum tegundunum.
Fosfórinnihald var mest í plöntunum sem uxu í þurrlendi (mynd I á næstu síðu).
Þetta getur verið vegna meiri leysanleika fosfórs þar. Við góða loftun jarðvegsins
eykst niðurbrot lífrænna efna og meir fosfór verður nýtanlegur plöntunum.
Mýrastör hafði meira innihald af kalsíum og kalí í þurrlendi (mynd 2 á næstu
síðu). Meltanleiki var meiri en innihald af glúkosa og fruktosa (mynd 2) var
minna á sama svæði. Munurinn á milli vaxtaistaða hjá mýrastörum getur stafað
af streitu. Streituþættir sem koma til greina em súrefnisskortur, lágt hitastig og
almennur næringarskortur.
Úthagaplöntur haga sér öðruvísi hvað varðar næringargildi og breytileika með
vaxtartíma. Plöntumar haga sér á ólíkan hátt við mismikla jarðvegsbleytu.
Úthagagróður er mikið nýttur til beitar á íslandi og míkilsveit er að hafa lítið
beitarálag til að skepnur geti valið á milli plantna. Framræsla og
köfnunarefnisáburður geta breytt samsetningu plöntutegunda í úthögum þannig að
grös verði ríkjandi. Þá þarf beitarálagið sennilega að vera meira til að halda
næringargildi beitar yfir vaxtartfmann.
46