Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Blaðsíða 47
Afbrigði af jarðarberjum ræktuð í tröppukössum. Ath. 496 - 93
27. tafla. Uppskera og flokkun jarðarberja.
Meðaluppskera kg/m2 Meðaluppskera afplöntu, (g) Meðal fjöldi berja á plöntu
Glíma 2,16 305 60
Jonsok 1,98 280 47
Senga Sengana 2,69 380 58
Zephyr 1,62 230 31
Meðalþyngd áberif l.flokki (g) Uppskera af l.flokks beijum, % Skemmd ber, %
Glima 5,6 71 27
Jonsok 6,5 81 13
Senga-Sengana 8,1 78 14
Zephyr 8,8 80 19
Árið 1993 var fjórða uppskeruárið. Hver planta hafði 0,14 vaxtarrými. Berin
voru úðuð einu sinni gegn myglu, en samt skemmdist töluvert af berjum. Byrjað
var að tína berin 6. júlí nema af Senga-Sengana, en af því afbrigði var byijað að
tína 12. júlí. Lokið var að tína berin 9. ágúst.
Ræktun hindberja í óupphituðu plasthúsi. Ath. XII-93.
Hindberjaplöntur af stofninum Baldur, sem gróðursettar voru sumarið 1990 dafna
vel í gróðurhúsinu. Uppskera var 0,55 kg af beijum af hverjum m^. Meðalþyngd
á beri í 1. flokki var 3,S g. í 1. fiokk fóru 91% af berjunum.
40