Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Blaðsíða 85
Rýgresi: Til þess var sáð í júníbyrjun í gamalræktaða og frjósama túnspildu, sem
hafði verið plægð haustið áður. Rýgresið spratt jafnt og vel. Það var
slegið 2. september. Notuð var siáttuvél með múgtæti. Vinnslubreidd
hennar er 2,4 m og lagði hún heyið í liðlega 1 m breiðan múga. Þannig lá
rýgresið í einn sólarhring í hlýju og kyrru dumbungsveðri áður en það var
bundið í rúllur beint úr múgunum.
Engin hjálparefni voru notuð við verkun heysins. Rúllubaggamir (1,2 m Krone-
125) voru hjúpaðir sexföldu plasti. Þeir voru geymdir utandyra án yfirbreiðslu en
á þurrlegu undirlagi, háin í tveggja laga stæðu en rýgresið í einni baggaröð.
Aflöguðust rýgresisbaggamir fljótlega og mikið við geymslu.
6. tafla. Verkun háar og rýgresis í rúUuböggum
Há Rýgresi
Uppskera af hektara, kg þurrefnis 1690 4660
Meðalþungi bagga, kg 659 797
Meðalþurrefnismagn í bagga, kg 254 118
Þurrefni f fúllverkuðu heyi, % 28-32 15-19
Sýrustig heysins, pH 5,4-5,7 4,2-4,3
Baggar með sýnilegum mygluskemmdum, % 0 0
Ekki eru allar mælitölur komnar til skila þegar þetta er skrifað. Fóðrið í báðum
flokkum reyndist vel verkað, eins og tölumar í töflunni bera með sér.
Rýgresisbaggarnir léttust vemlega vegna safa sem seytlaði út um plasthjúpinn.
Meðallétting fjögurra mælibagga á verkunar- og geymslutíma nam um 170 kg.
Súrefni virðist þó ekki hafa komist að heyinu sem reyndist vel verkað og
myglulaust með öllu.
Þann 22. nóvember 1993 hófst mælifóðrun í heyflokkunum með 2x5 mjólkurkýr
sem stóð fram í janúar 1994. Var hún gerð með sarna hætti og árin á undan, sjá
Tilr.sk. 1991 bls. 26 og 1992 bls. 27-28. Að þessari mælifóðrun lokinni verða
gögn athugunaráranna þriggja gerð upp sameiginlega.
78