Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Blaðsíða 10
VEÐURFAR OG GRÓÐUR 1993
Edda Þorvaldsdóttir
Árferði
Að vanda voru tölulegar upplýsingar um veðurfar á Hvanneyri þetta ár fengnar
frá Veðurstofu íslands. Einnig lét Veðurstofan í té meðaltalstölur um veðurfar á
staðnum frá því að veðurmælingar hófust hér árið 1963 til ársins 1991. Þær upp-
lýsingar sem hér birtast eru unnar upp úr þessum gögnum.
Árið 1993 var fremur erfitt frá sjónarhóli ræktunar, þar sem afar kalt var í maí og
júlí eins og kemur fram í töflunni hér að neðan, þegar bornar eru saman meðal-
hitatölur ársins og viðmiðunaráranna. Einnig sést að apríl, júlí og ágúst voru
óvenju þurrviðrasamir þetta árið.
Tafla 1. Hiti, úrkoma og vindhraði á Hvanneyri 1993
Mánuður Meðal- hiti Vikffá meðalt. Úrkoma (rnm) % af meðált Vindhraði hnútar
Janúar -4,35 -1,85 80,4 103 12,1
Febrúar 0,23 1,43 150,6 167 15,1
Mars 0,78 1,68 117,1 147 10,3
Apríl 2,97 1,07 47,4 69 10,1
Maf 4,81 -0,69 145,3 337 16,3
Júnl 8,87 0,27 56,9 105 9,1
Júlí 8,97 -1,33 13,6 26 9,7
Ágúst 9,05 -0,65 37,0 52 7,5
September 8,53 2,33 97,3 140 7,0
Október 3,48 0,48 96,1 93 10,2
Nóvember 3,65 4,05 417,7 480 14,1
Desember -4,54 -2,74 43,0 48 8,3
Meðaltal (alls) 3,54 0,34 108.6 (1302.7) 146 10,8
Maí var eins og fyrr getur allkaldur og framanaf var hann einnig votviðrasamur,
en seinni hluta mánaðarins var lítil úrkoma. Þá var fyrri hluti júní þurrviðra-
samur, eri síðan gerði ágætar gróðraskúrir upp úr 20. þess mánaðar. Júlí var með
eindæmum þurr og kaldur. Ágúst var fremur kaldur, en þurr, það sem hafði mest
áhrif á gróður þann mánuð, var næturfrost sem gerði 10., 11. og 14. ágúst Síðari
hluti ársins var með hlýrra móti, sérstaklega september og nóvember.
Haustúrkoman þetta árið var fremur mikil, en nóvember sló öllu við, þá rigndi
417,7 mm, sem er margfalt meira en í meðalári, enda gefa tölur áranna 1963-
1991 meðalúrkomu 87,0 mm í nóvember.
3