Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Blaðsíða 71
SAUÐFJÁRRÆKTARTILRAUNIR
Ólöf Björg Einarsdóttir
Framleiðsla á fersku lambakjötí
Haustið 1993 sóttu Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Afurðastöð KB í
Borgamesi, Bændaskólinn á Hvanneyri og á Hólum saman um fjárveitingu til
fagráðs sauðfjárræktarinnar til rannsókna á framleiðslu fersks lambakjöts.
Verkefnið ber yfirskriftina "Framleiðsla á fersku lambakjöti" og skiptist það í
eftirfarandi undirverkefni.
1. Bætt flokkun feitra sláturlamba.
Keldnaholt.
2. Haust og vetrarfóðrun sláturlamba
a) Hópfóðrun á Hvanneyri
b) Hópfóðrun hjá bændum í Borgarfirði
c) Einstaklingsfóðrun á Keldnaholti
d) Hópfóðrun á Hólum
3. Gæðamælingar og bragðprófanir, samstarf við sláturleyfishafa,
verkefnisstjóm.
4 Sölu og kynningarmál.
Áætlaður verktími þessara verkefna er 1993-1994. Hér á eftir verður vikið að
þeim hluta verkefnisins sem framkvæmdur er á Hvanneyri eða á vegum
bændaskólans.
Hópfóðrun á Hvanneyri
Tilgangur verkefnisins er að safna þekkingu og reynslu varðandi það hvemig
fóðra eigi sláturlömb frameftir vetri á sem hagkvæmastan hátt m.t.t.
fóðurkostnaðar og afurða.
Efniviður tilraunarinnar eru 48 gimbrar. Þær vom teknar á hús 13.okt., vigtaðar
(að meðal-tali 33,8 kg), holdastigaðar og rúnar (ull vigtuð). Eftir að lömbin höfðu
verið vanin við heyið var þeim skipt milli 6 meðferða, 8 gimbrar í hverri meðferð
og 4 lömb saman í stíu, Við-miðunarhóp (8 gimbmm) var slátrað um leið og
tilraun hófst, 26. okt. Lömbin em vigtuð og holdastiguð vikulega.
Fóðuráætlun miðast við að fjórir tilraunaflokkar fái orku til u.þ.b. 100 g vaxtar á
dag að jafnaði en próteinmagn er breytilegt milli flokkanna. Fimmti flokkurinn er
64