Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Blaðsíða 62
BEITARTILRAUN MEÐ HROSS
Anna Guðrón Þórhallsdóttir og Ingimar Sveinsson
Inngangur
Hrossabeitartilrauninni sem hófst sumarið 1992 var fram haldið samkvæmt
áætlun á árinu. Tilraunin ei samvinnuverkefni Bændaskólans og Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins og hefur Framleiðnisjóður styrkt fTamkvæmd hennar.
Áætlað er að tilraunin standi til ársins 1996.
Framkvæmd
Tilraunin fer fram á tveimur stöðum, að Hesti í Andakíl og Litlu-Drageyri í
Skorradal. Á hvorum stað var girt 16.9 ha, fimm strengja rafmagnsgirðing
sumarið 1992. Hvorri girðingu var síðan skipt í þrjú hólf með tveimur strengjum,
7.1 ha, 5.0 ha og 3.8 ha. Beitarhólfin í Skorradal eru staðsett á gömlu túni sem
ekki hefur verið borið á í um 20 ár, Á Hesti eru beitarhólfin á framræstri rnýri
sem að hluta vai' brennd fyrir nokkrum árum.
Fyixi hluta ársins var greint úr gróðursýnum sem safnað var af föstum reitum
sumarið 1992 (12 reitir í beitarhólfi, adls 72 reitir. Sjá tilraunaskýrslu 1991).
Hvert sýni var greiní til tegunda og þurrvigt hverrar tegundai’ innan reitsins
ákvörðuð.
Hross voru sett í tilraunahólfin 22.-24. júní, og var það seinna en áætlað hafði
verið vegna hversu seint voraði. Hross voru fengin frá 8 bæjum í Andakíl,
Skorradal, Lundarreykjadal og Reykholtsdal, auk hrossa frá Hesti og Hvanneyri.
Fimm hross voru sett í hvert hólf sem gaf 1.3 hross/ha í minnsta hólfinu
(þungbeitt), 1.0 hross/ha í miðhólfinu (miðlungsbeitt) og 0.7 hross/ha í stærsta
hólfinu (léttbeitt). Var þess gætt að aldur, þungi og kyn væru jöfn í hólfunum.
Öll voru hrossin 4 vetra eða eídri og bandvön. Fyrsta tilraunatímabil hófst strax
er hrossin voru komin í hólfin. Var þeim safnað saman daglega og hverju hrossi
gefin 50 g af fóðurkögglum blönduðum alkanamerkiefnum (C-32 n-
dotriacontane, C-34 tetratriacontane og C-36 hexatriacontane). Voru kögglamir
gefnir í 14 daga, en síðustu 5 dagana var einnig safnað saur frá hverju hrossi til
efnagreiningar. Gekk saursöfnun vonum framar, en fyrirfram voru áhyggjur af
þessum þætti tilraunarinnar. Þegar ekki gekk að fá sýni sjálfkrafa var það sótt og
gekk það að jafnaði án fyrirhafnar. Gefnir voru merkiefnakögglar og tekin
saursýni alls fjórum sinnum á síðastliðnu sumri, með tveggja vikna millibili.
Síðustu sýnatöku lauk 24. september. Samhliða hverri saursýnatöku var uppskera
mæld í hverju hólfi og klippt gróðursýni til efnagreininga. Þá voru og hrossin
vigtuð vikulega. Jafnframt mælingum á átmagni hrossanna var fylgst með atferli
þeirra í tilraunarhólfunum. Útbúnir voru 5 síritar sem festir voru á hrossin til
skiptis og mældu þeir beitartíma hrossanna. f lok júlímánaðar var hins vegar svo
55