Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Blaðsíða 60
Samkvæmt efnagreiningum reyndist tilraunarheyið vera:
Gæði 1 0.75 FE/kg þurrefnis
Gæði 2 0.69 FE/kg þurrefnis
Gæði 3 0.42 FE/kg þurrefnis
Var ákveðið að gefa 4 kg, 6 kg og 8 kg af heyi á tilraunaxtímanum. Hversu mikið
hvert iiross fékk á hverju tímabili var fundið með því að ganga útfrá grunnplani
Snedecor og Cochran (1976, bls 312) með -1 2 3-, -2 3 1-, -3 1 2-.
Var dregið irinan hvers flokks um röðunina samkvæmt tillögum Snedecor og
Chochran (1976) og Hólmgeirs Bjömssonar. Niðurröðunin varð eftirfarandi:
Tímabil 1 Tímabil 2 Tímabil 3
Börkur 8kg 6 kg 4 kg
Gæði 1 Sleipnir 6kg 4kg 8kg
Mósi 4kg 8kg 6 kg
Rauður 6 kg 4kg 8 kg
Gæði 2 Tígull 8 kg 6kg 4 kg
Hrafnkell 4kg 8kg 6 kg
Hersir 4 kg 6 kg 8 kg
Gæði 3 Orion 6kg 8 kg 4kg
Kolbrúnn 8 kg 4 kg 6kg
Gefið var samkvæmt þessu plani frá 30 október til 20 desember. Hvert tímabil
stóð í 17 daga. Mest fóður fengu þau hross sem voru í hópi 1 þá daga sem þeim
voru gefin 8 kg eða alls 6 FE, eða í 17 daga. Minnst fóður fengu hrossin í hópi 3
þá daga sem þeim voni gefin 4 kg eða 1.68 FE. Hverju tímabili var skipt í tvennt,
forgjöf og söfnunartíma. Forgjöf stóð í 10 daga og var þá hrossunum gefið
heymagn samkvæmt plani, en þeim hleypt út í rétt daglega 13.00-17.00. Síðustu
7 daga hvers tímabils var sýnum safnað og stóðu þá hrossin á bás óhreyfð. Tað
og þvag var vigtað frá hverju hrossi og sýni tekið. Taðsýni fóm daglega í frysti,
en þvagsýnum var safnað saman frá hverju hrossi allt söfnunartímabilið og fryst í
lok þess.
öllum lirossum var gefið merkiefni síðustu 14 daga hvers tímabils. Gefnir vom
50 g af fóðurkögglum blönduðum alkanamerkiefnum (C-32 n-dotriacontane, C-34
tetratriacontane og C-36 hexatriacontane) og krómoxíð-hylki, til að kanna
áreiðanleika þessara merkiefna við útreikninga á átmagni hjá hrossum.
Hrossin voro vigtuð tvisvar í lok hvers tímabils.
Heysýni vom tekin úr hverjum gæðaflokki jafnt yfir tímabilið. Söfnunarpoki
fyrir hvem gæðaflokk var hafður til taks hjá hrossunum og við gjafir var smá
viskur tekinn frá hveiju hrossi í gæðaflokknum og settur í pokann. Safnað var
53