Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Blaðsíða 57
ÖRVERURANNSÓKNIR
Aðalsteinn Geirsson
Árið 1993 voru rannsökuð alls 230 sýni vegna örvera og skiptust þau
þannig:
Vothey í rúlluin 63
Kindaskítur 2
Gras 24
Hey á velli 12
Árvatn 112
Hey í krukkum v/Usteria 5
Vothey í rúlluböggum v/Listeria 12
Alls 230
Rannsóknir á örverum á grasi og í heyi eru liður í heyverkunartilraunum. Vatns-
sýnin voru tekin vegna könnunar á örverumengun í borgfirskum ám og vötnum.
Vatnsverkefni þessu er ekki lokið en það er styrkt af Pokasjóði Landvemdar.
Vatnssýnin voru tekin á eftirtöldum stöðum:
Dragliálsá/Þverá/Laxá í Leirársveit
(1) Draghálsá 1,4 km frá vegi upp á Geldingadraga.
(2) Þverá, rétt ofan nýrrar brúar, vestan ár.
(3) Laxá, ós úr Eyrarvatni, vestan ár.
(4) Laxá, ofan við sláturhús SS, sunnan ár.
(5) Laxá, neðan við sláturhús SS, sunnan ár.
Sýni voru tekin 11.7.; 19.8.; 4.10.; 29.11.
Fitjaá/Skorradalsvatn/Andakflsá
(6) Fitjaá framundan Efstabæ, norðan ár.
(7) Fitjaá frannmdan Sarpi, norðan ár.
(8) Skorradalsvatn framan við óshólma Fitjaár.
(9) Skorradalsvatn á nesi um 800 innan Háafellsbæjar.
(10) Skorradalsvatn við útfall.
(11) Andakílsá rétt ofan við brú í Andakíl, norðan ár.
Sýni voru tekin 1.7.; 19.8; 4.10.; 29.11.
Tunguá
(12) Ofan við vað að línuvegi og nýjan orlofsbústað.
(13) Ofan við brú hjá Brautartungu, austan ár.
Sýni voru tekin 11.7.; 19.8.; 3.10.; 30.11.
50