Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Síða 5
ÍSL. LANDBÚN.
J. AGR. RES. ICEL. 1980 12,1: 3—10
Þungmálmar í íslensku grasi
Björn Guðmundsson
°g
Þorsteinn Þorsteinsson
Tilraunastöð háskólans í meinafrteði, Keldum.
YFIRLIT
Co, Cu, Fe, Mn, Ni og Zn var mælt í 77 sýnum víðs vegar að af Islandi. Borið var saman, hve mikið af
þessum málmum var í sýnum af túnum með skeljasandsjarðvegi og sýnum annars staðar frá. Allir
málmarnir nema kopar voru í minna magni af skeljasandinum. Eftir niðurstöðum að dæma gæti víða verið
hætta á, að skepnur vantaði kopar, og hugsanlega gæti þær vantað kóbalt á bæjum, þar sem mikið er af
skeljasandi. Ekki má heldur minna vera af zinki miðað við þarfir skepna fyrir þetta efni.
INNGANGUR
Nokkrir þungmálmar eru lífsnauðsynlegir
skepnum í mjög smáum skömmtum.
Sumir eru eitraðir, efofmikið er afþeim,
en ekki eru þess dæmi hér á landi, að svo
mikið verði af þungmálmum í grasi, að
skepnur bíði tjón af. Oft hefur verið reynt
að meðhöndla skepnur með snefilefnum
við ýmsum kvillum hér á landi, en vissu
um þungmálmaskort hefur þó sjaldan
verið til að dreifa. Sannað er þó, að íjöru-
skjögur svonefnt stafar af koparskorti (5).
Koparskortur hefur verið staðfestur í
sauðfé, sem ekki gengur í íjöru, ogjafnvel í
nautgripum samkvæmt óbirtum athug-
unum.
í tilraunum á Hvanneyri hefur verið
mælt kopar og mangan í áburðartil-
raunum (8) og í sýnum af úthaga og engi
(3,7) og í sýnum af töðu frá ýmsum bæjum
í Borgarfirði (9). I Ijós kom, að kölkun
hafði áhrif á mangan í gróðri, en ekki á
kopar. Fremur lítið var af kopar í mörgum
sýnum, og var það allt niður í 0.8 ppm.
árið 1965 í heilgrösum af tilraun nr. 19 —
56 (3).
Áslaug Helgadóttir og Friðrik Pálma-
son hafa rannsakað Mn, Zn, Fe og Cu í
grasi af kölkunartilraunum og í heyi víðs
vegar af landinu af kölkuðum og ókölkuð-
um túnum. Niðurstöður þeirra eru svip-
aðar og í þeim mælingum, sem hér verða
kynntar, nema gildi þeirra á kopar eru
miklu meiri, 11-13 ppm. Ekki verður séð,
hvað veldur þessum mun (4).
Þær sneíilefnamælingar, sem hér er
greint frá, tengjast mælingum á kóbalti í
grasi, sem áður hefur verið lýst (2). Þar er
m. a. lýst niðurstöðum mælingar á Co í