Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Side 29

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Side 29
ÍSL. LANDBÚN. j. agr. res. icel. 1980 12,1: 27—59 Gróðurbreytingar í Þjórsárdal Guðmundur Guðjónsson Rannsóknastofnun Landbúnaðarins, Keldnaholt v/Vesturlandsveg, Reykjavík. YFIRLIT I ritgerð þessari er gerð grein fyrir gróðurfarsbreytingum, sem orðið hafa á 17 ára tímabili á friðuðu landi í Þjórsárdal. Gerður er samanburður á gróðurkorti höfundar af dalnum frá 1977 og gróðurkorti Rannsóknastofnunar landbúnaðarins frá 1960. Við ákvörðun á beitargildi gróðurs eru notuð meðaltöl úr uppskerumælingum aföllu landinu. Þar er um að ræða niðurstöður úr gróðurrannsóknum á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. A þessu tímabili hefur ýmislegt stuðlað að gróðurfarsbreytingum í dalnum, svo sem eldgos, mannvirkja- gerð, ræktun og friðun. Eftir þeim gögnum sem fyrir liggja, er ekkert hægt að segja til um langtímaáhrif eldgossins, 1970, en eftirþaðjókst sjálfgræðsla mjög. Ræktun er margfalt meiri en nemur eyðingu gróðurs af völdum mannvirkjagerðar. Áhrif friðunar fyrir ágangi búíjár virðast vega þyngst á vogarskálunum. Þótt ræktun í dalnum hafi verið mikil, er sjálfgræðsla enn meiri. Gróðri í dalnum hefur farið mjög mikið fram á tímabilinu, og beitarþol hefur aukist að sama skapi. I. INNGANGUR Ritgerð þessi er að meginstofni til B.S.- verkefni höfundar í landafræði í Háskóla Islands haustið 1977 og er hér birt með leyfi jarðfræðiskorar. Hún fjallar um gróðurbreytingar í Þjórsárdal á árabilinu 1960 til 1977 og er að mestu reist á sam- anburði á gróðurkorti, sem höfundur gerði ásamt Einari Gíslasyni, starfsmanni Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, af dalnum sumarið 1977 og korti af sama svæði, sem starfsmenn Búnaðardeildar Atvinnudeildar Háskólans gerðu sumarið 1960. Ástæður þess, að Þjórsárdalur varð fyrir valinu öðrum svæðum fremur, eru margar. Hinar helstu eru, að Þjórsárdalur hefur verið friðaður í nær fjóra áratugi, lega og hæð y.s., nálægð við Heklu, þ. e. áhrif gosa á gróðurfarið, og talsvert fjöl- breytt gróðurfar. Dalurinn hefur verið friðaður allt frá árinu 1938, en þá var lokið við að girða svæðið. Frá því að friðun hófst, hefur tvisvar orðið mikil gróðureyðing afvöldum vikur- og öskufalls frá Heklugosum. Það var fyrst

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.