Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Qupperneq 65
RANNSÓKN Á AFURÐATÖLUM 63
1. TAFLA. Meðaltal og meðalfrávik fyrir einstaka eiginleika. TABLE 1. Mean and standard deoiation oj traits.
Eiginleiki Meðaltal Meðalfrávik
Trait Mean Standard deviation
Mjólkurskeiðsafurðir (305 dagar) Milkyield, kg 2 842 698
Mjólkurfitumagn Milk Jatyield, kg 118.5 32.6
Hæsta dagsnyt Maximum daily yield, kg 15.54 2.80
Fjöldi daga frá fyrsta til annars kálfs Calving interval 392 61
algerlega að handvinna, hlaut það að
takmarka umfang rannsóknarinnar.
Byrjað var á að fara yfir allar skýrslur
nautgriparæktarfélaganna á öllu landinu
frá árunum 1974 — 1977. Valin voru þau
bú, þar sem allmargar kvígur komu á
skýrslu á þessum árum. Auk þess var gert
að skilyrði, að um þessar kvígur væru
upplýsingar um fæðingarmánuð og fæð-
ingarár, auk þess sem ættfærsla væri í
góðu lagi. Þessi skilyrði þrengdu mjög
þann hóp, sem til meðferðar kom. Síðan
þurfti að finna öll mjólkurskýrsluspjöld
um þessar kvígur, þar til þær báru öðrum
kálfl. Einnig voru ætternisupplýsingar um
einstakar kýr gataðar sérstaklega. Þá
þurfti að gata spjöld um öll búin með
upplýsingum um búsmeðaltöl einstakra
ársfjórðunga fyrir fullmjólka kýr á þessum
árum. öll þessi spjöld voru síðan lesin inn
á seguldisk og þannig búin til skrá með
alla tiltæka vitneskju um einstakar kýr í
þessum gögnum.
Samtals voru það upplýsingar um 2957
kýr á 316 búum, sem náðist til á þennan
hátt. Sett voru þau aldursmörk, að aðeins
voru teknar með kvígur, sem voru 20 - 40
mánaða gamlar, þegar þær báru fyrsta
kálfi. I einstökum útreikningum falla
nokkrar kýr. út vegna skorts á upplýsing-
um.
Meðaltöl og meðalfrávik fyrir þá eigin-
leika, sem rannsóknin náði til, eru sýnd í 1.
töflu. Meðalfrávikið, sem sýnt er, er
heildarmeðalfrávik og sýnir því bæði
breytileika innan og milli búa.
2. TAFLA.
Skipting kúnna eftir aldri við mat á aldursáhrifum.
TABLE 2.
Classification according to age of calving when estimating
the age effect.
Aldur við burð Age at calving Fjöldi Number
20-22 mánuðir (months) 128
23-24 — — 700
25-26 — — 884
27-28 — — 552
29-30 — — 311
31-35 — — 327
36-40 — — 55