Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Page 68
66 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
3. TAFLA.
Fervikagreining eftir aðferð minnstu kvaðrata.
TABLE 3.
Analysis of variance (least-square).
Breytileikaþáttur Frítölur Kg. mjólk X 103 Kg. mjólkurfita Flæsta dagsnyt
Source of variation D. F. Milkyield kg X 103 Milkfat, kg Maximum daily yield
Burðartími ....................... 5 15.190 2.948 5.314
Time of calving
Aldur ............................ 1 24.849 59.737 76.608
Age
(aðhvarf regression)
Búsmeðaltal ...................... 1 213.075 655.083 334.549
Herd effect
(aðhvarf regression)
Skekkja ....................... 2949 380 768 66
Error
R2 ........................... 0.223 0.277 0.168
X2 = búsmeðaltal fullmjólka kúa á
hlutaðeigandi búi í þeim
ársfjórðungi, sem kvígan ber.
Um mestu dagsnyt er notað búsmeðal-
tal fyrir mjólkurmagn. Eins og fram kem-
ur í töflunni, er fjölfylgnin (R2) fyrir þetta
módel verulega hærri (0,22) en í hliðstæðri
rannsókn á afurðatölum frá nautgripafé-
lögum (0,18) (JÓN VlÐAR JÓNMUNDSSON
et. al., 1977a). Meginskýring þess er sú, að
hér er tekið tillit til búsmeðaltalsins í
rannsókninni, eins og nánar verður vikið
að síðar, en í áðurnefndri rannsókn eru
áhrif aldurs og burðartíma metin innan
búa.
Fjölfylgnin er aftur á móti mjög lík
þeirri, sem fundin er í nýlegri sænskri
rannsókn (Danell, 1976), þar sem notuð
voru mjög lík módel og í þessari rannsókn.
Sá þáttur, sem mest áhrif hefur á afurðir
kvígnanna, er burðartími þeirra. Stuðlar
þeir, sem metnir voru um áhrif burðar-
mánaðar á afurðir með áðurgreindu
líkani, eru sýndir í 4. töflu.
4. TAFLA.
Ahrif burðarmánaðar á afurðir.
TABLE 4.
Effect of month 'of calving.
Burðarmánuður Fjöldi Kg. mjólk Hæsta dagsnyt Mjólkurfita
Month of calving Number Milkyield, kg Maximum daily yield (kg) Milkfat (kg)
Jan.-febr................ 486 169±25 0.20±0.11 8.24± 1.15
Mars-apríl ............... 757 - 81 ±22 0.18±0.09 - 3.39±0.98
Maí-júní ................. 487 - 225±26 0.41 ±0.11 — 11.13± 1.16
Júlí-ágúst ............... 341 - 103±29 0.01 ±0.12 - 6.10± 1.33
Sept.-okt................ 449 110±26 — 0.31 ±0.11 4.62±1.20
Nóv.-des................. 437 130±27 - 0.49±0.11 7.75± 1.20