Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Page 93

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Page 93
KALKÞÖRUNGAR í HÚNAFLÓA 91 Hallsson 1969, Karl Gunnarsson 1977) vegna hugmynda um nýtingu. Sam- setning mjöls úr kalkþörungaseti úr Arn- arfirði er sýnd í II. töflu. Dreifingu kalkþörunga í Húnaflóa hef- ur ekki verið lýst sérstaklega. Lengi hefúr þó verið vitað, að þeir fyndust þar. og Adey (op.cit.) gerði athuganir sínar á kalkþörungum m. a. á fjórum stöðum í Steingrímsfirði og Hrútafirði. II. TAFLA. Samsetning mjöls úr kalkþörungum úr Arnarfirði (Greining: Júlíus Guðmundsson skv. beiðni Sig- urðar Hallssonar): Kaisíumkarbónat (CaCOs) ........... 79.3% Magnesíumkarbónat (MgC03) 9.7% Vatn .................................. 0.7% Köfnunarefni (N) ..................... 0.25% Sandur (óuppl. í saltsýru) ........ 1.5% Lokaorð Ef áhugavert þætti að reyna vinnslu áburðarkalks úr Húnaflóa, væri eðlilegt að hefja aðgerðir með því að fá dæluskip til tilraunadælingar í Hrútafirði og e. t. v. víðar. Mætti síðan prófa að þurrka og SUMMARY. Occarrence of maerl in Húnaflói, N.-Iceland, and its possible utilization. Kjartan Thors and Guðrún Helgadóttir. Marine Research Institute, Skúlagata 4, Reykjavík. Grab samples taken in Húnaflói in 1979 indicate that maérl deposits cover con- siderable areas of the sea floor in the mala það set, sem upp fengist, og gera með því viðeigandi tilraunir. Könnun, sú sem hér hefur verið lýst, gefur ekki svör um magn kalkþörungasets á svæðinu eða árlega framleiðni kalk- þörunga. Þá er ýmislegt óljóst varðandi umhverfisáhrif kalkvinnslu. Þessi atriði þyrfti að kanna, a. m. k. áður en lagt yrði út í stórframkvæmdir á þessu sviði. Pakkarorð Karl Gunnarsson, Erlingur Hauksson og Sigurður Hallsson lásu þessa grein í handriti, og viljum við þakka þeim góðar ábendingar. Inga Lárussyni skipstjóra og áhöfn r/s Drafnar þökkum við hjálpina. Kalkáburður sá, sem unninn er úr kalkþörungaseti, er notaður í landbúnaði víða í Vestur-Evrópu með góðum árangri. Notkun hans nemur að jafnaði um einu tonni á hektara á þriggja ára fresti, en minna, ef um er að ræða kartöflu- eða grasrækt. ,,Mærlingur“ (maérl) er einnig notaður til blöndunar í skepnufóður og til síunar á súru neyzluvatni, en við það vex sýrumagn vatnsins, og ýmsir málmar (Pb, Cu, Zn) falla út (Neveu, 1961). southern part of the bay. These sediments are made up predominantly of Litho- thamnium tophiforme associated with L.glaciale and crustose corallines. Maérl was found in greatest abundance along the shores of the Miðfjörður and Hrútafjörður fjords (Fig. 1) where it oc- curs at depths ofless than ca. 30 metres. In deeper water the mud content of the sedi- ment increases and the algae disappear. In other fjords, such as Bitrufjörður and

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.