Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.09.2020, Page 10

Víkurfréttir - 09.09.2020, Page 10
Fimm uppáhaldsplötur Alexandra Chernyshova La Traviata eftir G. Verdi með Anna Netrebko úr Metropolitain Operu Þessa óperudíva er með rödd sem er ótrúlega kröftug og ógleyman- lega tilfinningarík. Hlutverk Violettu finnst mér vera eins og skrifað fyrir hana – og já, ég get hlustað endalaust á La Traviata eftir Verdi með Önnu Netfebko syngja, dansa og gráta í lokin. Grieg “Peer Gynt” Grieg hefur alltaf sérstakan stað í mínu tónlistaruppeldi. Sem barn var eitt af mínum fyrstu uppáhalds- lögum einmitt Solveig Gesang, nema ég söng það á rússnesku í skólanum, og Morgun úr Per Gunt eftir Grieg er fegursta tónlist sem ég hef heyrt. The Story of fire saga Ég er mikill aðdáandi Euro-vision og þessi lög eru svo flott og skemmtileg og koma manni í gott skap og dans – og það er eitthvað við þetta myndband, tónlistin ekta, sem snerti mikið hjartastrengi. Kristinn S igmundsso n syngur v alin íslensk og erlend lög við undirle ik Jónasar In gimundars sonar Þessir tvei r íslensku tónlistarm enn eru í m iklu í uppáhaldi hjá mér. É g hugsa oft ef Guð gæt i sungið þá myndi hann syng ja með röd d Kristins Sig- mundsson ar. Jónas e r einn af fl ottustu pía nóleik- urum sam tímans sem ég hef hey rt, hann sp ilar eins og læk ur sem ren nur í gegnu m steina, s vo fal- lega og mjú kt. Alexandra Chernyshova (f.1979) sópransöngkona, tónskáld og kennari. Hún er fædd og uppalin í Úkraínu og Rússlandi en fluttist til Íslands árið 2003. Hún býr í Njarðvík ásamt eigin- manni sínum og sonum, kennir tónlist í Stóru-Vogarskóla í Vogum og hefur rekið ásamt eiginmanni menningar- og fræslu- fyrirtækið „DreamVoices“ frá árinu 2006. Alexandra var valin í hóp tíu framúrskarandi ungra Íslendinga árið 2014 fyrir framlag sitt til menningar á Íslandi. Hún lauk M.Mus gráðu frá Listaháskóla Íslands, M.Ed. frá Háskólanum í Kiev, meistaragráðu í óperusöng og söngkennaraprófi frá Odessa tónlistarakademíunni og Kiev Glier High Music Col- lege og sömuleiðis BA frá National Kiev Linguistic University, hún lauk áttunda stigi í píanó frá Kiev Tónlistarskóla N1. Auk þess stundaði Alexandra óperusöng hjá Michael Trimble Opera Institute og Katja Ricciarelli Opera Academy, lied og kammer- söng hjá Pr.Hanno Blascke sömuleiðis. Hún hóf feril sinn á sviði sem einsöngvari hjá Kiev Academical Musical Theater of Opera and Ballet. Alexandra söng með Kiev National Radio Orquestra, New York Contemporary Opera, auk þess sem hún hefur sungið sem einsöngvari með Óperu Skagafjarðar og flr. Alexandra hefur sungið víða um Ísland, Evrópu, New York og líka í Kína og Japan. Alexandra hefur gefið út þrjá einsöngs- diska „Alexandra soprano“ (2006), „Draumur“ með róman- tískum lögum eftir Sergei Rachmaninov (2008) og „You and only you“ (2011). Alexandra komst inn í top tíu bestu með laginu Ave María úr frumsömdu óperunni „Skáldið og biskupsdóttirin“ í World Folk Vision alþjóðalegri tónlistarskeppni í sumar og núna í haust sigraði hún á alþjóðlegri tónskáldakeppni I.O.Dunajevskiy í Moskvu fyrir tónsmíð á óperunnar „Skáldið og biskupsdótt- irin“ við handriti Guðrúnar Ásmundsdóttur. Sergei Rachmaninoff, piano concert no. 2 with Denis Matzuev Tónlist Rachmaninoffs gefur mér svo mikinn innblástur. Ég skil hans tónlist og get tengt mig svo vel við heimþrá, heimspeki nátturubarnsins og fegurð náttúrunnar, sorgina, vonina og róna. Þetta er það sem mér finnst endurspeglast í hans tónlist. 10 // vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.