Víkurfréttir - 09.09.2020, Síða 54
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
„Í bókinni er að finna mjög góðar
leiðbeiningar um að hvernig best er
að nýta þörunga á öruggan og sjálf-
bæran hátt og á hvaða árstíma best
er að nýta mismunandi tegundir.
Ef tína á tegundir sem vaxa neðst
í fjörunni, eins og til dæmis söl eða
þara, þarf að byrja á að skoða flóða-
töflu og finna hentugan dag þegar
stórstreymt er og finna klukkan hvað
mesta fjaran er svo þörungarnir séu
ekki undir vatni. Það er passlegt að
halda í fjöruna um það bil klukku-
stund áður en mesta fjaran er og
svo passa að festast ekki á flæði-
skeri þegar fellur aftur að. Ég reyni
að finna aðgengilegar fjörur sem eru
tiltölulega auðveldar yfirferðar þegar
ég skipulegg fjöruferðir. Það er góð
regla að forðast það að stíga ofan á
þangvaxna steina, það er betra að
skorða fótinn vel á milli þeirra til að
tryggja góða fótfestu.
Ég legg einnig mikla áherslu á að
gæta að sjálfbærri nýtingu. Það er
mikilvægt að skera þal þörungsins
af fyrir ofan festuna. Sé festan skilin
eftir getur þörungurinn vaxið upp
aftur og þá er hægt að koma aftur
ár eftir ár á sama svæðið til að tína.
Það er mjög auðvelt að gleyma sér
og tína meira magn en maður kemst
yfir og því mikilvægt að reyna að
hafa stjórn á sér og sýna nægjusemi
í tínslunni,“ segir Eydís.
Sjávartrufflan í uppáhaldi
Sjávartrufflan, eða þangskeggið,
hefur notið vinsælda á mörgum
virtum veitingastöðum á undan-
förnum árum vegna þess hversu
keimlík hún er hinni eftirsóttu
trufflu, sem er tiltekin jarðsveppa-
tegund og vex óvíða – til dæmis ekki
hér á Íslandi. „Sjávartrufflan er í
uppáhaldi hjá mér þessa dagana.
Það þarf í rauninni ekki að gera
neitt sérstakt við hana til að ná
fram trufflubragðinu. Mér finnst
trufflukeimurinn í raun sterkastur
af henni ferskri, niður í fjöru – en
til að geyma hana til að nota í eld-
húsinu er best að skola hana vel til
að losna við ásætur og loftþurrka,
annað hvort á handklæði eða við
lægsta hita í blástursofni. Mikið er
af ásætum á henni á haustin og því
best að tína hana á vorin. Þurrkuð
geymist sjávartrufflan árum saman
og bragðið endist mjög vel. Það
sem mér hefur reynst best, til að
bragðið skili sér sem best í matinn,
er að setja sjávartruffluna ekki út
í matinn á meðan á eldun stendur,
heldur krydda matinn með henni
eftir eldun. Þá kemur trufflubragðið
sterkast fram,“ segir Eydís.
Lambalæri hjúpað þara
„Ég held persónulega mest upp
á gömlu góðu sólþurrkunina við
verkun á þörungunum. Mér finnst
sólþurrkuð söl til dæmis vera
bragðbetri en þau sem ég þurrka
inni. Ég á til að mynda ekki þurr-
kofn en ég veit að Hinrik notar þá
mikið. Ég þurrka eingöngu innan-
dyra þegar rakt er í veðri. Einu mis-
tökin í þurrkun sem ég hef gert er
að prófa að þurrka á gólfhita. Bæði
söl og þari soðna ef þau eru lögð til
þurrkunar á gólfhita. Þurrktíminn fer
eftir þykkt þörungsins og loftraka.
Sjávartrufflan er til dæmis þunn og
þráðlaga og þornar á eldhúsborðinu
yfir nótt. Hrossaþari og beltisþari,
sem báðir eru stórgerðir og tiltölu-
lega þykkir, geta tekið nokkra daga.
Þegar ég sólþurrka söl og veðrið er
ákjósanlegast, tekur það yfirleitt um
tvo daga en ég tek sölina inn fyrir
kvöldið svo dögg falli ekki á hana
og legg hana aftur út seinni daginn,“
segir Eydís en í lok spjalls spurðum
við Silju þingkonu hvort hún væri
dugleg að nota þörunga í eldhúsinu
heima. „Þó ég sé búin með þessum
hópi að skila af mér heilli bók um
þörunga verð ég að viðurkenna að
ég hef ekki verið dugleg við það,
eitthvað þó, en ég hugsa að það hafi
kveikt í mér að smakka hjá Hinriki
þarahjúpað lambalæri. Hann notaði
ekkert annað krydd nema beltis-
þara og það var rosalega gott, djúpt
og gott bragð sem kom af þaranum,“
sagði Silja.
Ráðgjafaþjónustu á Suðurnesjum
Ráðgjafaþjónusta Krabbameinsfélagsins býður upp á ráðgjöf og stuðning í
Reykjanesbæ fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur.
Þjónusta býðst einnig þeim sem hafa misst ástvin úr krabbameini.
Boðið er upp á viðtöl eða einstaklingsslökun
Hægt er að panta tíma á radgjof@krabb.is eða í síma 800-4040
Stuðningshópur kvenna sem greinst hafa með krabbamein byrjar miðvikudaginn
16. september kl. 13–15 á Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ. Allar konur eru velkomnar.
Jafningjastuðningur er eitt helsta verkfæri fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein
og hvetjum við konur að koma og hitta aðrar sem gengið hafa í gegnum það sama.
Þjónustuskrifstofan er opin á mánudögum og miðvikudögum frá 12 til 16.
Krabbameinsfélag Suðurnesja
Smiðjuvöllum 8, 230 Reykjanesbæ – Sími: 421-6363 – sudurnes@krabb.is
... en ég hugsa að
það hafi kveikt í
mér að smakka
hjá Hinriki þara
hjúpað lambalæri.
Hann notaði ekkert
annað krydd nema
beltisþara og það
var rosalega gott,
djúpt og gott
bragð sem kom
af þaranum ...
Ljósmynd: Karl Petersson
22 // vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR