Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.09.2020, Qupperneq 54

Víkurfréttir - 09.09.2020, Qupperneq 54
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta „Í bókinni er að finna mjög góðar leiðbeiningar um að hvernig best er að nýta þörunga á öruggan og sjálf- bæran hátt og á hvaða árstíma best er að nýta mismunandi tegundir. Ef tína á tegundir sem vaxa neðst í fjörunni, eins og til dæmis söl eða þara, þarf að byrja á að skoða flóða- töflu og finna hentugan dag þegar stórstreymt er og finna klukkan hvað mesta fjaran er svo þörungarnir séu ekki undir vatni. Það er passlegt að halda í fjöruna um það bil klukku- stund áður en mesta fjaran er og svo passa að festast ekki á flæði- skeri þegar fellur aftur að. Ég reyni að finna aðgengilegar fjörur sem eru tiltölulega auðveldar yfirferðar þegar ég skipulegg fjöruferðir. Það er góð regla að forðast það að stíga ofan á þangvaxna steina, það er betra að skorða fótinn vel á milli þeirra til að tryggja góða fótfestu. Ég legg einnig mikla áherslu á að gæta að sjálfbærri nýtingu. Það er mikilvægt að skera þal þörungsins af fyrir ofan festuna. Sé festan skilin eftir getur þörungurinn vaxið upp aftur og þá er hægt að koma aftur ár eftir ár á sama svæðið til að tína. Það er mjög auðvelt að gleyma sér og tína meira magn en maður kemst yfir og því mikilvægt að reyna að hafa stjórn á sér og sýna nægjusemi í tínslunni,“ segir Eydís. Sjávartrufflan í uppáhaldi Sjávartrufflan, eða þangskeggið, hefur notið vinsælda á mörgum virtum veitingastöðum á undan- förnum árum vegna þess hversu keimlík hún er hinni eftirsóttu trufflu, sem er tiltekin jarðsveppa- tegund og vex óvíða – til dæmis ekki hér á Íslandi. „Sjávartrufflan er í uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Það þarf í rauninni ekki að gera neitt sérstakt við hana til að ná fram trufflubragðinu. Mér finnst trufflukeimurinn í raun sterkastur af henni ferskri, niður í fjöru – en til að geyma hana til að nota í eld- húsinu er best að skola hana vel til að losna við ásætur og loftþurrka, annað hvort á handklæði eða við lægsta hita í blástursofni. Mikið er af ásætum á henni á haustin og því best að tína hana á vorin. Þurrkuð geymist sjávartrufflan árum saman og bragðið endist mjög vel. Það sem mér hefur reynst best, til að bragðið skili sér sem best í matinn, er að setja sjávartruffluna ekki út í matinn á meðan á eldun stendur, heldur krydda matinn með henni eftir eldun. Þá kemur trufflubragðið sterkast fram,“ segir Eydís. Lambalæri hjúpað þara „Ég held persónulega mest upp á gömlu góðu sólþurrkunina við verkun á þörungunum. Mér finnst sólþurrkuð söl til dæmis vera bragðbetri en þau sem ég þurrka inni. Ég á til að mynda ekki þurr- kofn en ég veit að Hinrik notar þá mikið. Ég þurrka eingöngu innan- dyra þegar rakt er í veðri. Einu mis- tökin í þurrkun sem ég hef gert er að prófa að þurrka á gólfhita. Bæði söl og þari soðna ef þau eru lögð til þurrkunar á gólfhita. Þurrktíminn fer eftir þykkt þörungsins og loftraka. Sjávartrufflan er til dæmis þunn og þráðlaga og þornar á eldhúsborðinu yfir nótt. Hrossaþari og beltisþari, sem báðir eru stórgerðir og tiltölu- lega þykkir, geta tekið nokkra daga. Þegar ég sólþurrka söl og veðrið er ákjósanlegast, tekur það yfirleitt um tvo daga en ég tek sölina inn fyrir kvöldið svo dögg falli ekki á hana og legg hana aftur út seinni daginn,“ segir Eydís en í lok spjalls spurðum við Silju þingkonu hvort hún væri dugleg að nota þörunga í eldhúsinu heima. „Þó ég sé búin með þessum hópi að skila af mér heilli bók um þörunga verð ég að viðurkenna að ég hef ekki verið dugleg við það, eitthvað þó, en ég hugsa að það hafi kveikt í mér að smakka hjá Hinriki þarahjúpað lambalæri. Hann notaði ekkert annað krydd nema beltis- þara og það var rosalega gott, djúpt og gott bragð sem kom af þaranum,“ sagði Silja. Ráðgjafaþjónustu á Suðurnesjum Ráðgjafaþjónusta Krabbameinsfélagsins býður upp á ráðgjöf og stuðning í Reykjanesbæ fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur. Þjónusta býðst einnig þeim sem hafa misst ástvin úr krabbameini. Boðið er upp á viðtöl eða einstaklingsslökun Hægt er að panta tíma á radgjof@krabb.is eða í síma 800-4040 Stuðningshópur kvenna sem greinst hafa með krabbamein byrjar miðvikudaginn 16. september kl. 13–15 á Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ. Allar konur eru velkomnar. Jafningjastuðningur er eitt helsta verkfæri fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og hvetjum við konur að koma og hitta aðrar sem gengið hafa í gegnum það sama. Þjónustuskrifstofan er opin á mánudögum og miðvikudögum frá 12 til 16. Krabbameinsfélag Suðurnesja Smiðjuvöllum 8, 230 Reykjanesbæ – Sími: 421-6363 – sudurnes@krabb.is ... en ég hugsa að það hafi kveikt í mér að smakka hjá Hinriki þara­ hjúpað lambalæri. Hann notaði ekkert annað krydd nema beltisþara og það var rosalega gott, djúpt og gott bragð sem kom af þaranum ... Ljósmynd: Karl Petersson 22 // vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.