Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 11
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Pólitísk
ábyrgð er
álitin
skaðleg
velferð
þjóðarinnar.
Eitt mikil-
vægasta
verkefni
næsta árs er
að leysa
þjóðina úr
vistarbandi
sérhags-
munaelít-
unnar.
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur @frettabladid.is
Þú færð Bolla Bollason á næsta
flugeldamarkaði björgunarsveitanna
Gullhalar skóta upp
marglita kúlum. Fer
yfir í fallegt silfurregn
aftur í fjörugar
sprengingar og endar á
kröftugu silfurregni.
skot
66
SEK
4
5
14
100
kg
Árið 2020 syngur sinn svanasöng. Við fögnum, minnumst hins liðna og sköpum okkur andlegt rými fyrir það sem koma skal. Þó tilefnið sé hluti af
taktföstu flæði tímans eru aðstæðurnar aðrar en þær sem
við eigum að venjast. Fögnuðurinn takmarkast við lág-
stemmdari útgáfu en við hefðum viljað. Samtakamáttur-
inn hefur fleytt okkur yfir þá nærri óyfirstíganlegu hjalla
sem sum lönd eru að kljást við vegna faraldursins.
Því er það hreinlega óþolandi þegar fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins hegða sér eins og um þá gildi sérsamningur.
Kannski ætti það ekki að koma á óvart frá þeim sem
smíða samfélagið út frá eigin þörfum og sérhagsmunum
vina sinna. En í ljósi þess að um blóðkalda alvöru lífs og
dauða er að ræða og fyrir liggja áhrif fordæma ráðamanna
á hegðun fjöldans hefðum við líklega búist við meiru.
Óábyrg hegðun formanns Sjálfstæðisflokksins er
einungis kirsuberið sem tyllt er á rjómafroðuna af hættu-
legum COVID-kokteil sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
boðið upp á allt þetta ár. Stjórnarþingmenn leyfa sér að
grafa undan sóttvarnaaðgerðum sem ráðherrar sama
flokks hafa stimplað. Eftir að sameinast meirihlutanum
um viðspyrnuaðgerðir vegna COVID kasta borgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins fram fullkomlega veruleikafirrtri
tillögu um ráðningabann, eins og það að binda hendur
borgarinnar til að bregðast við velferðarkröfum vegna
veirunnar sé einhver lausn. Ráðherrar flokksins spranga
svo um eins og COVID sé stormur sem komi þeim ekki við
sem standa undir regnhlíf valdsins.
Flokkur sem skreytir sig með fjöðrum stöðugleika og
festu á tyllidögum býður upp á tryllt og tilviljunarkennt
alsæluteknóreif sem svar við einum ófyrirsjáanlegustu
og óöruggustu tímum sem þjóðin hefur lifað. Þegar
liggur á að sýna þennan margumtalaða stöðugleika með
raunhæfum lausnum glymur við holur hljómur rökþrota
og málefnaleysis úr ringulreiðinni sem einkennir Sjálf-
stæðisflokkinn þessa dagana.
En sólin hefur náð sínum lægsta punkti og handan við
hornið er nýtt ár með nýjum og bjartari möguleikum.
Eitt mikilvægasta verkefni næsta árs er að leysa þjóðina
úr vistarbandi sérhagsmunaelítunnar. Að úr öskurústum
íhaldsins rísi Fönix ábyrgrar stjórnar réttlætis og tæki-
færa.
Úr ösku íhaldsins
Dóra Björt
Guðjónsdóttir
oddviti Pírata
í borgarstjórn
Reykjavíkur
Víst
Fyrstu bólusetningarnar eru
sagðar hafa farið fram á skrif-
stofu sóttvarnayfirvalda í
gær. Það er merkur atburður
og einn þeirra sem var með
þeim fyrstu líkti afrekinu við
að fara til tunglsins. Þetta er
rétt. Meðal þess merkilegasta
í geimferðasögu mannkyns er
fyrsta tunglgangan – sem ýmsir
reyndar efast um að hafi farið
fram. Hún hafi verið tekin
upp í myndveri í Hollívúdd,
Svæði 51 eða hvar það nú var.
Hvar sem er í heiminum telst
það til stórtíðinda að lang-
þráðar bólusetningar hefjist
og allt gert til að fjölmiðlar
taki myndir og fréttamenn
mæti. En ekki hér. Aðgangur
ljósmyndara var bannaður en
RÚV okkar allra sýndi. Ætli
þetta hafi kannski verið leikið
af myndbandi?
Orðan
Þrátt fyrir allt verður fálkaorð-
unni útdeilt og hefst af hending
á nýársdag. Nú bregður svo
við að út af dottlu er ekki hægt
að safna þeim saman sem
verða orðuberar. Nei, nú þarf
að hafa önnur tök. Þeir sem
upphefðina hljóta mæta einir,
hver af öðrum, þar til listinn
er tæmdur. Sá fyrsti kemur á
Bessastaði klukkan korter yfir
tvö eftir hádegi á nýársdag.
Reiknað er með að sá síðasti
fái orðuna sína síðdegis þann
17. júní.
Heilbrigðisráðherra Nýja-Sjálands sagði af sér í júlí eftir að hafa farið með fjöl-skyldu sinni á ströndina í trássi við sóttvarnareglur. Hann mat það svo að áframhaldandi seta hans í ríkisstjórn myndi hafa truflandi áhrif á baráttu
stjórnvalda við faraldurinn.
Í ágúst sagði landbúnaðarráðherra Írlands af sér
eftir að hafa setið 80 manna kvöldverðarboð, þegar
aðeins sex máttu koma saman. Þingforseti landsins
sagði sömuleiðis af sér vegna þátttöku í sama boði. Í
sama mánuði sagði þingmaður og aðstoðarráðherra
í ríkisstjórn Gana af sér embætti eftir sóttvarnabrot
meðan hann var sýktur af COVID-19.
Þá sagði fulltrúi Ung verja lands á Evrópu þinginu af
sér í lok nóvember eftir þátttöku í 25 manna kynlífs-
orgíu í Brussel í trássi við reglur um fjöldasamkomur í
borginni.
Skosk þingkona var rekin úr skoska þjóðar-
flokknum eftir að hafa notað almenningssamgöngur
sýkt af veirunni. Fyrr í vor hafði landlæknir Skotlands
sagt af sér eftir brot á reglum um útgöngubann og Neil
Ferguson, prófessor og einn helsti ráð gjafi bresku
ríkis stjórnarinnar í baráttunni við faraldurinn, sagði
einnig af sér eftir að í ljós kom að hann og hjákona
hans höfðu ítrekað brotið reglur um útgöngubann,
sem hann hafði sjálfur lagt þunga áherslu á að sett yrði
á.
Í ágúst þurfti bæjarstjóri Luton á Englandi að taka
pokann sinn eftir að mynd fór í dreifingu sem sýndi
hann í fjölmennri garðveislu, í andstöðu við reglur um
að aðeins sex mættu koma saman utandyra. Kóróna-
veiru til fellum í Luton hafði fjölgað nokkuð um það
leyti sem garð veislan var haldin og því þótti þátttaka
bæjarstjórans í veislunni sýna skeytingarleysi gagn-
vart heilsu og lífsafkomu landsmanna.
Í sama mánuði sagði Michael Cawley, einn æðsti
embættismaður ferðaþjónustumála á Írlandi, af sér
eftir að hafa farið með fjölskyldu sinni til Ítalíu. Ferðir
þangað voru ekki óheimilar en írsk yfirvöld höfðu
ráðið fólki frá óþarfa ferðalögum til útlanda. „Til að
málið standi ekki í vegi fyrir mikilvægum verkefnum
stofnunarinnar hef ég ákveðið að segja af mér eftir sex
ár í starfi,“ sagði Cawley um afsögn sína.
Hjá flestum lýðræðisþjóðum tíðkast að kjörnir
fulltrúar og embættismenn sem brugðist hafa trausti
almennings axli ábyrgð strax. Litið er svo á að nærvera
viðkomandi hafi skaðleg áhrif á mikilvæg verkefni
stjórnvalda. Á Íslandi er þessu öfugt farið. Það er fast-
mótað viðhorf ríkjandi afla hér á landi að telja verkin
fram undan of ærin til að missa megi mann fyrir borð.
Pólitísk ábyrgð er álitin skaðleg velferð þjóðarinnar.
Stjórnarandstöðuflokkar hafa hins vegar ekki
komið sér upp neinu fastmótuðu ferli í þessum efnum.
Kröfur um afsögn, stjórnarskipti eða kosningar fara
eftir hentugleik hverju sinni, ýmist persónulegum
aðstæðum einstakra þingmanna eða mati á því hvaða
flokkar séu líklegastir til að tapa mestu fylgi á tilfall-
andi hneykslismáli, hversu langt sé í kosningar og
hverjir séu fýsilegir samvinnuflokkar að þeim loknum.
Íslenska leiðin
3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN