Fréttablaðið - 30.12.2020, Síða 15
Kia Xceed Urban PHEV að verðmæti 4.990.777
43051
Gjafabréf - Örninn að verðmæti 600.000 kr. hver vinningur
2100 3611 18266 30603 32601
Gjafabréf Icelandair hótel að verðmæti 300.000 kr. hver vinningur
183 5656 12300 18276 22253 29170 37398 48367 52954 58729
650 6802 12704 18561 23099 29769 38106 48716 55200 58943
1183 8581 13493 19443 23796 30415 38617 49679 55590 59755
1311 9105 14162 19539 24987 30536 42861 50177 56013 60773
2255 9352 14311 19586 25541 30613 43897 51014 56434
2427 9890 15553 19641 26630 31369 45507 51825 56643
3347 10474 15696 19757 27181 32935 46495 52070 56860
3449 10981 16656 20186 27477 34664 47100 52523 57181
4184 12059 17654 20433 28089 35737 47551 52526 57855
4843 12269 17684 22173 28486 35808 48225 52629 58278
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning
og óskar vinningshöfum til hamingju.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðar að
Háaleitisbraut 13, Reykjavík. Sími 535-0900. Skrifstofa félagsins opnar 5. janúar 2021.
Vinningaskrá er einnig birt á heimasíðu félagsins www.slf.is
Dregið hefur verið í
Jólahappdrætti
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
ÍÞRÓTTIR Kvennalandslið Íslands
í knattspyrnu sem tryggði sér í
byrjun desember sæti í lokakeppni
EM 2022 er lið ársins 2020. Íslenska
kvennalandsliðið fékk 148 stig af
150 mögulegum hjá íþróttafrétta-
mönnum .
Íslenska U-21 árs landsliðið í
knattspyrnu Íslands sem mun í
mars á næsta ára leika í úrslita-
keppni EM 2021 hafnaði í öðru sæti
með 84 stig og Íslandsmeistaralið
Breiðabliks í kvennaknattspyrnu í
þriðja sæti með 14 stig.
Á sama tíma var tilkynnt að
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari
kvennaliðs Kristianstads í knatt-
spyrnu, væri kjörin þjálfari ársins.
Elísabet fékk 133 stig í kjörinu en
undir hennar stjórn hafnaði Kristi-
anstads í þriðja sæti sænsku úrvals-
deildarinnar sem er besti árangur í
sögu félagsins. Kristianstads mun
þar af leiðandi leika í Meistaradeild
Evrópu í fyrsta skipti næsta haust.
Elísabet sem hóf störf hjá Kristi-
anstads árið 2009 var valin þjálfari
ársins í sænsku úrvalsdeildinni
fyrir síðasta keppnistímabil. Það
er í annað skipti sem hún hlýtur
þá nafnbót.
Arnar Þór Viðarsson, sem leiddi
U21 árs landslið karla í knatt-
spyrnu í lokakeppni EM 2021 á
árinu sem er að líða, varð svo í
öðru sæti í kjörinu en hann hlaut
55 stig. Heimir Guðjónsson, sem
gerði karla lið Vals að Íslands-
meisturum í knattspyrnu karla á
sínu fyrsta ári við stjórnvölinn hjá
Hlíðarendafélaginu varð í þriðja
sæti í kjörinu. – hó
Kvennalandsliðið og
Elísabet hlutskörpust
Kvennalandsliðið vann fimm sigra í átta leikjum á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍÞRÓTTIR Sara Björk Gunnarsdóttir,
fyrirliði íslenska kvennalandsliðs-
ins og leikmaður Lyon, var í gær-
kvöld valin íþróttamaður ársins í
annað sinn á síðustu þremur árum.
Um leið varð hún fyrsta konan til
að hljóta nafnbótina íþróttamaður
ársins í kjöri Samtaka íþróttafrétta-
manna tvisvar. Hún er áttundi
einstaklingurinn sem vinnur til
þessara verðlauna tvisvar en fimm
einstaklingar hafa hlotið þessi verð-
laun oftar, þar af Vilhjálmur Einars-
son sem vann verðlaunin fimm
sinnum, oftast allra.
Þrjátíu meðlimir greiddu atkvæði
þetta árið og fékk Sara Björk fullt
hús stiga í fyrsta sætinu. Er þetta í
tólfta sinn sem einstaklingur fær
fullt hús stiga í atkvæðagreiðslunni
og verður Sara um leið níundi ein-
staklingurinn sem nær því afreki.
Heilt yfir fengu 25 íþróttamenn úr
níu mismunandi sérsamböndum
atkvæði þetta árið og voru karlar
fjölmennari á listanum eða fimm-
tán.
Sara átti frábært ár með félagsliði
sínu þegar hún vann tvöfalt með
Wolfsburg í Þýskalandi fjórða árið
í röð áður en hún skipti yfir til Lyon
í Frakklandi. Með franska liðinu
tókst Söru að vinna Meistaradeild
Evrópu fyrst íslenskra kvenna og
annar Íslendingurinn frá upp-
hafi. Hafnfirðingurinn skoraði eitt
marka Lyon í úrslitaleiknum og
var einn besti leikmaður vallarins
þegar hún varð fyrsti Íslendingur-
inn til að skora í úrslitaleik Meist-
aradeildarinnar. Sara, sem hefur
orðið landsmeistari sjö ár í röð,
hefur verið í leikmannahóp í Lyon í
öllum leikjum tímabilsins til þessa
hjá einu sterkasta félagsliði heims.
Hjá kvennalandsliðinu var Sara í
lykilhlutverki þegar Ísland tryggði
sig inn í fjórðu lokakeppni EM í
röð. Sara bætti leikjamet Katrínar
Jónsdóttur fyrr á árinu þegar hún
lék 134. leik sinn fyrir Íslands hönd
og heldur áfram að bæta metið með
hverjum leik sem líður. Þá er Sara
komin í fimmta sætið yfir marka-
hæstu leikmenn kvennalandsliðs-
ins frá upphafi með 23 mörk. Þar
tók hún einnig fram úr Katrínu en
Ásthildur Helgadóttir er rétt fyrir
ofan Söru með 24 mörk í fjórða
sæti. Mörkin tvö sem Sara skoraði
komu bæði gegn Slóvakíu á útivelli
en þá voru átján mánuðir liðnir frá
síðasta marki miðjumannsins fyrir
landsliðið.
Þetta er í fjórða sinn á síðustu tíu
árum sem kona hlýtur nafnbótina
íþróttamaður ársins og áttunda
sinn frá upphafi. Fjöldi kvenna
sem hafa hlotið nafnbótina íþrótta-
maður ársins hefur því tvöfaldast á
tíu árum. Sigríður Sigurðardóttir
handboltakona var fyrst kvenna
kosin íþróttamaður ársins árið
1964. Ragnheiður Runólfsdóttir
sundkona varð önnur kvenna til
að hljóta titilinn árið 1991 og níu
árum seinna var Vala Flosadóttir
stangarstökkvari kosin íþrótta-
maður ársins. Margrét Lára Við-
arsdóttir varð fyrst knattspyrnu-
kvenna til að hljóta nafnbótina
árið 2007 en síðan þá hafa Eygló Ósk
Gústafsdóttir (2015), Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir (2017) og Sara Björk
Gunnarsdóttir (2018, 2020) hlotið
nafnbótina íþróttamaður ársins.
kristinnpall@frettabladid.is
Fullt hús stiga hjá Söru Björk
Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir var valin íþróttamaður ársins í annað sinn í gærkvöld.
Sara fékk fullt hús stiga og varð um leið fyrsta konan til að vera tvisvar kjörin íþróttamaður ársins.
Sara Björk sem fagnaði þrítugsafmæli fyrr á árinu er leikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sara er fyrst íslenskra
kvenna til að vera kjörin
íþróttamaður ársins tvisvar.
Tap Börsunga í gær var
fyrsta tap liðsins í öllum
keppnum í eitt og hálft ár.
HANDBOLTI Aron Pálmarsson og
félagar í Barcelona þurftu að láta
silfrið duga í Meistaradeild Evrópu
eftir xx-xx tap gegn þýska félaginu
Kiel í úrslitaleik Meistaradeildar
Evrópu í gærkvöld. Þetta var fyrsta
tap Barcelona í fimmtán mánuði
sem taldi rúmlega sextíu leiki og
kom tapið gegn fyrrum liði Arons.
Börsungar hafa verið hreint út sagt
óstöðvandi undanfarið ár með Aron
fremstan í flokki og kom hann Bör-
sungum á blað með fyrsta marki
Barcelona í gær. Það reyndist eina
mark hans en Aron lagði upp fimm
mörk í gær.
Leikurinn var jafn og spennandi
framan af en Kiel var yfirleitt með
frumkvæðið. Niklas Landin byrjaði
að taka fleiri og fleiri bolta í mark-
inu og með því tókst Kiel að sigla
fram úr.
Aron bíður því eftir þriðja Meistara-
deildaratitlinum hjá Barcelona en
hann vann keppnina tvisvar sem
leikmaður Kiel. - kpt.
Kiel hafði betur
í úrslitaleiknum
Aron kom Börsungum á bragðið í
Köln í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT