Fréttablaðið - 30.12.2020, Page 17
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Framhald af forsíðu ➛
Við bíðum örugglega mörg með eftirvæntingu eftir því að hefja nýtt ár, því í huga
okkar markar það nýtt upphaf.
Margir nýta sér tækifærið við
þessi tímamót og taka á móti
nýju ári með breyttu viðhorfi og
áherslum. Hver kannast ekki við
að strengja heit um að huga betur
að heilsunni og umbreyta lífi sínu
til hins betra um áramót? Þegar
við gefum okkur sjálfum loforð
um breytingar sem snúa að því að
styðja við heilsuna er mikilvægt
að njóta ferðalagsins í stað þess
að hugsa eingöngu um áfanga-
stað. Mikilvægt er að taka til í
mataræðinu samhliða hreyfingu
og öðrum þáttum og einnig getur
það gagnast okkur að taka inn
valin bætiefni til að styðja þessa
vegferð.
Það hefur orðið algjör bylting í
áherslum á heilsuna og í kjöl-
farið er komið stórkostlegt úrval
af heilsuvörum og vönduðum
bætiefnum á markaðinn. Ég er
sannfærð um að það geti verið
gagnlegt, samhliða heilsusamlegu
mataræði, að taka inn bætiefni
til að tryggja að við fáum allt það
sem við þurfum. Það er þó mikil-
vægt að vanda valið og forgangs-
raða þeim bætiefnum sem eru
talin vera nauðsynleg fyrir okkur.
Better You D-vítamín
D-vítamín trónir á toppi listans
yfir mikilvæg vítamín og er það
vítamín sem ég legg ávallt mesta
áherslu á. D-vítamín gegnir lykil-
hlutverki fyrir beinheilsu okkar
og getur jafnvel haft jákvæð áhrif
á vöðvastarfsemi og ónæmis-
kerfið. Rannsóknir á D-vítamíni
hafa gefið til kynna að það gegni
mun víðtækara hlutverki en talið
var og að skortur á því geti haft
alvarlegar af leiðingar til lengri
tíma. Einnig eru vísbendingar um
að D-vítamín geti verið nauð-
synlegt fyrir andlega heilsu,
sérstaklega nú í skammdeginu og
því gott fyrir okkur Íslendinga.
D-vítamínin frá Better You eru til
í mörgum styrkleikum og koma
í munnúðaformi sem er afar
þægileg og einföld leið til að taka
inn vítamín.
Natures Aid Krill
Það er gríðalega mikilvægt fyrir
okkur að fá nóg af lífsnauðsyn-
legum fitusýrum sem kallast
Omega-3 og það getur því verið
gagnlegt fyrir okkur að taka þær
inn sem bætiefni. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að Omega-3 hafi
góð áhrif á hjarta og æðakerfið
og sumar rannsóknir benda til
þess að þær geti einnig haft góð
áhrif á miðtaugakerfið og jafnvel
ónæmiskerfið.
Krill eða ljósáta er lítið krabba-
dýr sem er neðst í fæðukeðjunni
og er talið að Omega-3 olía sem
unnin er úr henni sé sú hreinasta
sem finnst í hafinu þar sem
aukning hefur orðið á upptöku
þungmálma og öðrum efnum hjá
fiskum. Krillolían er einnig afar
rík af EPA og DHA fitusýrum og
inniheldur náttúrulegt andoxun-
arefni sem heitir Astaxanthin sem
gefur olíunni rauða litinn, skapar
mikinn stöðugleika og veitir
vörn gegn þránun. Krillolían frá
Natures Aid er sótt í Suðurskauts-
hafið sem er hreinasta hafsvæði
veraldar og leggur fyrirtækið
höfuðáherslu á vistvænar og sjálf-
bærar veiðar.
Astaxanthin
Astaxanthin er
talið vera eitt
af öf lugustu
andoxunar-
efnum sem
finnast í nátt-
úrunni og er
eitt af þessum
bætiefnum
sem ég hef
mikla trú á og
tek inn dag-
lega og finn
að það hefur
virkilega góð
áhrif á mína líðan. Astaxanthin
frá Algalíf er hágæða bætiefni,
framleitt á sjálf bæran hátt með
hreinu íslensku vatni og unnið úr
örþörungum sem kallast Hae-
matococcus pluvialis. Astaxant-
hin sem unnið er úr þessum
þörungum hefur mun meiri
andoxunargetu en það sem búið
er til með öðrum aðferðum, en
talið er að öf lug andoxunarefni
geti verndað frumur líkamans
gegn skaðlegum sindurefnum.
Áhugi vísindamanna á áhrifum
Astaxanthin á heilsuna er alltaf
að aukast og hafa rannsóknir
sérstaklega beinst að jákvæðum
áhrifum þess á húðina og mögu-
legri vörn gegn sterkum útfjólu-
bláum geislum sólarinnar. Astax-
anthin er einnig orðin vinsæl
vara hjá íþróttafólki sem notar
Astaxanthin í auknum mæli með
það að markmiði að f lýta fyrir
endurheimt og árangri.
Bio-Kult Góðgerlar
Ég mæli
heilshugar
með að fólk
taki inn góð-
gerla fyrir
bæði melt-
ingarveginn
og varnir
líkamans.
Góðgerlar
geta byggt
upp þarma-
f lóruna en
heilbrigð
þarmaf lóra
ver okkur
gegn óæski-
legum örverum, ef lir ónæmis-
kerfið og viðheldur heilbrigðum
meltingarvegi. Það er því afar
mikilvægt að þarma f lóran okkar
sé heilbrigð og ein leið til þess
er að taka inn gagnlega stofna af
góðgerlum á hverjum degi.
Ég vel Bio-Kult vörurnar fyrir
mig og mína fjölskyldu en þær eru
háþróaðar og fjölvirkar góðgerla-
blöndur sem henta allri fjölskyld-
unni. Bio-Kult línan býður upp
á sérhæfðar blöndur með jurtum
og vítamínum með mismunandi
heilsuef landi áherslum.
NA Beetroot
Rauðrófan er
afar vinsæl
ofurfæða
og ekki að
ástæðulausu
þar sem hún
er stútfull af
vítamínum,
trefjum og
andoxunar-
efnum.
Rauðrófur
innihalda
mikið magn
af nítrötum
sem hafa æðaútvíkkandi áhrif og
auka á blóðf læði. Aukið blóð-
f læði bætir súrefnisupptöku og
getur aukið orku og úthald. Rauð-
rófan hefur því fengið verðskuld-
aða athygli íþróttafólks fyrir
eiginleika sína og er orðin hluti af
daglegri rútínu margra sem huga
að heilbrigðum lífsstíl.
Rauðrófuduftið frá Natures Aid
er unnið úr lífrænum rauðrófum
og kemur í
hylkjum sem
hægt er að taka
inn eða opna
og bæta út
drykki.
Enzymedica
Digest
meltingar-
ensím
Af eigin
reynslu og í
starfi mínu
sem næringarþerapisti hef ég
upplifað hvernig meltingarensím
hafa hjálpað fólki sem upplifir
óþægindi tengd meltingunni.
Inntaka öf lugra meltingarensíma
eins og Digest geta hjálpað til við
niðurbrot fæðunnar, auðveldað
meltingu og upptöku á næringar-
efnum og hjálpað til við að slá á
óþægindi tengd meltingunni. Það
sem gerir ensímin frá Enzyme-
dica einstök er einkaleyfisvarin
aðferð, þar sem fjölstofna ens-
ímum er blandað saman og verða
virk við þau mismunandi sýrustig
sem er að finna í meltingar-
veginum. Melting og upptaka á
fjölbreyttri fæðu verður þannig
mun betri. Góð melting er algjört
lykilatriði fyrir heilsu okkar og
ég mæli heilshugar með Digest
ensímunum því þau eru öf lugustu
ensím sem ég hef prófað og eru án
allra aukaefna. Þeir sem eru vegan
geta einnig notað þessi ensím því
þau eru eingöngu unnin úr jurta-
ríkinu.
Magnesíum Muscle
Magnesíum er eitt af mikil-
vægustu steinefnum líkamans og
er nauðsynlegt fyrir m.a. eðli-
lega starfsemi hjarta, vöðva og
taugakerfis. Magnesíum getur
dregið úr stíf leika, harðsperrum
og f lýtt fyrir endurheimt vöðva
eftir álag. Þar sem magnesíum er
einnig vöðvaslakandi er það mjög
gott fyrir svefninn til að ná betri
slökun og meiri svefngæðum.
Líkaminn getur auðveldlega tekið
upp magnesíum í gegnum húðina
og því getur það verið einstaklega
áhrifaríkt og notalegt að fylla á
magnesíumbirgðirnar með því
að bæta magnesíum út í baðið,
til að endurnæra líkamann eftir
erfiðan dag. Magnesium Muscle
frá Better You er einnig hægt að
fá í úðaformi sem inniheldur
magnesíumklóríð, sítrónuolíu,
græðandi arniku og papriku til
að örva blóðf læðið og f lýta fyrir
endurheimt vöðva eftir mikil
átök. Fullkomið að úða á þreytta
vöðva eftir hlaup, jóga eða önnur
átök til að draga úr stíf leika,
bólgum og harðsperrum. Tilvalið
fyrir íþróttafólk sem stundar
langar og strangar æfingar.
Vítamín og fæðubótaefni eru
ekki ætluð til þess að lækna sjúk-
dóma eða koma í staðinn fyrir
fjölbreytt og hollt mataræði.
Kristín segir tilvalið að byrja nýtt ár á heilsueflandi nótum. MYND/AÐSEND
Nýtum kraftinn
sem býr í þessum
tímamótum sem ára-
mótin eru til að gera
breytingar sem færa
okkur meiri lífsgæði og
vellíðan.
Árið 2021 á vonandi eftir að
vera stórkostlegt ár fyrir okkur
öll og ég vona að við leggjum
áherslu á það sem skiptir
mestu máli, sem er að hlúa að
okkur sjálfum, okkar nánustu
og setja andlega líðan og heilsu
okkar í fyrsta sæti.
Mikilvægt er að
taka til í mataræð-
inu samhliða hreyfingu
þegar við tökum heils-
una föstum tökum á
nýju ári en það getur
einnig gagnast okkur að
taka inn valin bætiefni
til að styðja þessa veg-
ferð.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R