Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 21
1Maðu r ársins 2020 í íslensku viðskiptalífi er Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, fyrir það að hafa leitt Icela nd a ir, ker f islega mikilvægt fyrirtæki, í gegnum vel heppnaða endurskipulagningu og hlutafjárútboð. „Ef verkefnið hefði mistekist væri ekki sama bjartsýni núna í íslensku viðskiptalífi og raun beri vitni,“ sagði í rökstuðningi frá einum af þeim sem skipa dómnefnd Markaðarins. Endurskipulagning Icelandair, sem fól í sér viðamikla samninga við fjárfesta, kröfuhafa, starfs­ menn, stjórnvöld og aðra haghafa, var nauðsynleg forsenda fyrir því að félagið gæti sótt 23 milljarða króna í hlutafjárútboði sínu í september. „Á þessu ári tókst honum ásamt sínu fólki að koma Icelandair í þá stöðu að vera tilbúið að spyrna hratt við þegar tækifærið kemur,“ segir í rökstuðningi eins álitsgjafa Markaðarins. „Annars vegar með því að hafa náð að auka hlutafé í félaginu með ótrúlegri þátttöku almennings og hins vegar að hafa tekist að ná fram kjarsamningum við f lugstéttir félagsins og sýnt af sér þor til að taka ákvarðanir sem eru erfiðar en góðar fyrir félagið sem hann er í forsvari fyrir,“ bætir hann við. Mikil eftir­ spurn var eftir hlutum frá almenn­ um fjárfestum og var eignarhlutur þeirra í félaginu um 50 prósent í kjölfar útboðsins Flestir þeirra sem tilnefndu Boga vísa til persónueiginleika eins og úthalds og þrautseigju. Einn dóm­ nefndarmaður tilnefnir Boga fyrir „ótrúlegt úthald, ró og bjartsýni í gegnum erfiða tíma sem leiddu okkur á endanum að frábærri niður­ stöðu“. „Á tímabili átti félagið í átökum við f lesta af mikilvægustu hag­ höfum sínum. Bogi hélt ró sinni og leiddi félagið í gegnum þennan erfiða tíma,“ segir einn álitsgjafinn. Enn annar tilnefnir Boga vegna „þrautseigju og aðdáunarverðs úthalds í afar erfiðri stöðu við að bjarga lykilfyrirtækinu Icelandair“. Bogi er jafnframt sagður hafa „staðið af sér ótrúlegar hremm­ ingar“, og sýnt „seiglu og sannfær­ ingarkraft“ til að klára þetta risa­ vaxna verkefni. „Það er mitt mat að sú þrautseigja sem hann sýndi á erf­ iðum tímum geri hann að viðskipta­ manni ársins,“ hafði einn álitsgjafi á orði. Þá er Bogi sagður hafa staðið sig „með af brigðum vel með því að koma heiðarlega og vel fram og halda öllum gríðarlega vel upp­ lýstum um framgang mála ásamt því að ná að spila vel úr f lóknum starfsmannamálum í útboðinu“. Nýir kjarasamningar við f lug­ menn, f lugfreyjur og f lugvirkja, auka sveigjanleika í rekstri Ice­ landair og vinnuframlag áhafna, og lækka þannig rekstrarkostnað flug­ félagsins á næstu misserum. Það er talið Boga til mikilla tekna að hafa „tekið slagi sem margir hafa veigrað sér við að taka“. Þannig hafi hann spilað frábærlega úr þeirri stöðu sem félagið var komið í. „Þvílíkt og annað eins, að berjast við flugvirkja, flugmenn, flugfreyjur og starfsmenn Icelandair sem hafa alltof lengi haldið að félagið snérist um þau. Viðskiptavinir og hluthafar eru núna loks að eygja að þeir verði í stærra hlutverki,“ segir einn álits­ gjafi og bætir við að Bogi hafi glímt við margfalt erfiðari áskorun en aðrir sem voru tilnefndir. Annar álitsgjafi tekur svo til orða að Bogi hafi náð að forða Icelandair frá brotlendingu í haust. „Það var langt í frá sjálfgefið að svo færi, ekki síst þar sem hluti verkalýðshreyf­ ingarinnar beitti sér harkalega gegn björgun Icelandair og hélt væn­ legum fjárfestingarkosti frá sjóð­ félögum – almenningi í landinu.“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar: „Hann og hans fyrirtæki hafa örugglega ekki riðið feitum hesti fjárhagslega frá þessum sýnatökum þetta árið – en til lengri tíma þá gæti málið snúist við.“ „Ef ekki hefði verið fyrir árvekni Kára Stefánssonar væri staða samfélagsins vegna kórónuveir- unnar mun verri og Amgen sam- stæðan byggi ekki yfir þeim verð- mætum sem vinna og rannsóknir deCODE hafa alið af sér. Þetta frumkvæði og einstaka samstarf hafa vakið verðskuldaða athygli víða.“ „Það er óneitanlega snjallt að öðlast vald á heilu þjóðfélagi en safna á sama tíma ómetanlegu magni af upplýsingum sem nýtist félaginu, þar sem aðgangur að upplýsingum er forsenda og lykill framþróunar þess, næstu árin.“ Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða: „Enn og aftur er hann að sýna snilld sína í fjárfestingum og ekki síður að stíga inn í félögin sem stjórnarmaður, beita sér og snúa þeim. Stoðir eru öflugasta fjárfestingarfélag landsins og Jón mastermind þar inni.“ „Skuggastjórnandi Íslands. Ekkert virðist gerast í íslensku viðskiptalífi án ýmist þátttöku eða vitundar hans!“ Sigurður Bollason fjárfestir: „Kom eins og stormsveipur inn á hlutabréfamarkað í byrjun ársins, flaggaði yfir 5% og yfir 10% eignarhald að hluta til í illseljan- legum bréfum á markaði á borð við Sýn og Heimavelli. Hluta af þessum viðskiptum var svo lokað í miklum hagnaði á nokkrum dögum, eitthvað sem flestir hefðu talið ógerning. Hafði mjög jákvæð áhrif á dýpt á markaði, sérstaklega fyrir COVID.“ Bogi Þór Siguroddsson fjárfestir: „Hægt og hljótt hefur Bogi unnið ötult starf síðastliðin 17 ár í að sameina félög sem þjónusta byggingariðnaðinn með af- bragðsárangri. Félög undir hans forystu skora jafnan hæst allra í starfsánægjukönnunum, þau hafa skýra sýn og stefnu. Á árinu fjárfesti Bogi í Icelandair og varð stærsti hluthafi félagsins úr hópi einstaklinga.“ Ríkisstarfsmaðurinn: „Alveg sama hvað gengur á þá fitnar hann eins og púkinn á fjósabitanum og þarf aldrei að finna til eða sýna ábyrgð.“ Björn Hjalte sted, forstöðu- maður eignastýringar LSR: „Undir hans forustu jók LSR verulega við sig í inn- lendum hluta- bréfum þegar markaðurinn var allt að því í frjálsu falli í vor. Þessi kaup hafa skilað sjóðnum tuga prósenta ávöxtun.“ „Hélt beinlínis innlendum markaði á floti í gegnum þreng- ingarnar í vor.“ Jói Fel: „Fyrir að færa sönnur fyrir þeirri skoðun sinni og Landssambands bakarameistara að samþykkt þriðja orkupakkans myndi rústa rekstrargrundvelli íslenskra bakaría.“ Gísli Herjólfsson, forstjóri Controlant: „Mjög gaman að sjá hvernig fé- lagið hefur nú komist í fremstu röð í heiminum í aðfangastýringu fyrir lyfjageirann. Mörg af stærstu lyfjafyrirtækjum heims reiða sig nú á tækni og starfsemi fyrir- tækisins til að stýra dreifingu á mótefni við COVID-19. Það hlýtur að teljast góður mælikvarði á árangur Controlant.“ Fannar Jónsson, sjóðsstjóri hjá Akta: „Er með langhæstu ávöxtun árs- ins af innlendum sjóðum – hann þorði þegar aðrir horfðu á.“ Þvílíkt og annað eins að berjast við flugvirkja, flugmenn, flugfreyjur og starfsmenn Icelandair sem hafa alltof lengi haldið að félagið snérist um þau. Viðskipta- vinir og hluthafar eru núna loks að eygja að þeir verði í stærra hlutverki. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Meiri bjartsýni vegna þrautseigju Boga Nils Álitsgjafar Markaðarins segja að Bogi Nils, maður ársins, hafi sýnt þor til að taka erfiðar ákvarðanir í endurskipulagningu Icelandair sem skipti sköpum fyrir efnahagslífið. Þrautseigja hans hafi bjargað félaginu frá brotlendingu. Stóð með hugmyndinni og uppskar ofurhagnað 2. Ævintýraleg velgengni Davíðs Helgasonar, eins af stofn- endum hugbúnaðarfyrirtækisins Unity, vakti mikla athygli á seinni hluta ársins. Hann hafnaði í öðru sæti í vali dómnefndar Markaðar- ins á manni ársins í íslensku við- skiptalífi. „Það er ekki að sjá að aðrir hafi verið að gera það svo gott að vörslusafnið þeirra hafi bólgnað út um rúmlega 200 milljarða líkt og gerðist í tilfelli Davíðs,“ segir einn af álitsgjöfum Markaðarins. Davíð, sem kom að stofnun Unity árið 2004 og var forstjóri til ársins 2014, á 10,4 milljónir hluta í félaginu eða sem samsvarar fjög- urra prósenta hlut. Unity var skráð á markað um miðjan september á þessu ári þar sem útboðsgengið var 52 dalir á hvern hlut. Gengið stendur nú í 164 dölum sem þýðir að auðæfi Davíðs, sem nema um um 218 milljörðum króna, hafa þrefaldast á þremur mánuðum. Annar í dómnefndinni segir hann erfitt að líta fram hjá Davíð við val á viðskiptamanni ársins þrátt fyrir að hann hafi hætt öllum afskiptum af Unity. „Hann hafði mörg tækifæri til að innleysa mikil verðmæti. Hann gerði það ekki. Hann stóð með hugmyndinni. Hann hafði ekki efni á leigubíl út á Leifsstöð 2017, tók rútuna frá BSÍ, en hefði á sama tíma getað verið milljarðamæringur, í krónum talið. Nú er hann það í alvöru mynt,“ bætir hann við. „Árið 2020 er uppskeruár Davíðs Helgasonar. Ekki nóg með að skrá Unity í kauphöllina í New York þá sýnir gengisþróun félagsins að væntingarnar voru ekki byggðar á sandi og gerðu Davíð að einum ríkasta Íslendingum,“ segir einn af þeim sem skipa dómnefndina. Hann er jafnframt sagður hafa stimplað sig inn sem „ einn far- sælasti viðskiptamaður landsins“. „Fæddur er nýr milljarðamær- ingur sem fáir þekktu áður,“ segir enn annar álitsgjafi og bendir á að eignarhlutur Davíðs í Unity sé töluvert verðmeiri en næstverð- mætasta fyrirtækið í kauphöllinni, Arion banki, og haldi bara áfram að hækka í kauphöllinni í New York. „Kórónaði svo árið með því að kaupa eitt glæsilegasta einbýlis- hús landsins, fyrir minni fjárhæð en verðmætaaukningin milli daga mældist,“ bætir hann við. Húsið, sem var áður í eigu Skúla Mo- gensen, er á Seltjarnarnesi og nam kaupverðið yfir 500 milljónum. Frumkvæði Ásgeirs batt enda á gengisveikingu 3. Ásgeirs Jónsson hefur látið til sín taka í starfi sínu sem seðlabankastjóri. Vaxtalækkanir og tilþrif á gjaldeyrismarkaði urðu til þess að Ásgeir hafnaði í þriðja sæti í vali dómnefndar Markaðarins á manni ársins í viðskiptalífinu. „Kom eins og stormsveipur inn í bankann og þorði að taka ákvarð- anir í miðju COVID sem forveri hans hefði aldrei lagt í,“ segir einn af álitsgjöfunum. „Það má með sanni segja að hann hafi verið sá sem bjargaði hruni á fasteignamarkaði með lækkun vaxta auk þess sem mörg fyrirtæki og heimili landsins eiga honum að þakka nýjan ís- lenskan veruleika með vaxtastig.“ Annar segir Ásgeir hafa sýnt að hann hafi næmt auga fyrir tækifærum í samningum. „Samn- ingur Seðlabankans við bandaríska eignastýringarsjóðinn Bláaflóa [Bluebay Asset Management] um kaup á krónum að fjárhæð a.m.k. 40 milljarðar króna á fáeinum brettum í september og október batt snöggan enda á veikingu íslensku krónunnar og þar með óvissu og óheillaþróun fyrir fjöl- mörg fyrirtæki og heimili,“ segir í rökstuðningi álitsgjafans. „Einstakt framtak og frumkvæði sem hafði veruleg áhrif á hagsmuni tugþús- unda landsmanna.“ Ásgeir hefur sjálfur sagt að hann hafi þurft að hafa bein samskipti við erlenda eigendur ríkisskulda- bréfa. „Við höfðum ekki val um annað en að taka þennan erlenda aðila út og enduðum á því að tala við hann beint,“ sagði Ásgeir. Annar álitsgjafi nefnir hvernig Ásgeir tók á erlendu sjóðunum. „Hann lét þá ekki knýja sig, ekki frekar en innlenda spákaupmenn sem gerðu mikinn aðsúg að bank- anum fyrir að halda ekki betur við krónuna og kaupa ekki skuldabréf, þegar þeim hentaði,“ segir hann. „Nú er krónan að styrkjast og búið er að taka út veikustu aðilana á markaði, með afslætti. Öllum landsmönnum til heilla.“ Enn annar álitsgjafi fagnar að Ásgeir hafi sett umræðuna um 3,5 prósenta lögbundið viðmið lífeyr- issjóða á dagskrá. „Boltinn er farinn að rúlla og nánast engin viðskipti í landinu ósnert af tilkomu Ásgeirs í stól seðlabankastjóra,“ segir enn fremur í rökstuðningnum. Þá er Ásgeir sagður hafa byggt upp traust og trú á Seðlabankanum sem skipti miklu fyrir atvinnulífið. „Ekki gallalaus, en hver vill vera það?“ veltir álitsgjafinn fyrir sér. Aðrir sem voru tilnefndir menn ársins í íslensku viðskiptalífi Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri Davíð Helgason, einn stofnenda Unity 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.