Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 36
Þá er einnig mikilvægt að gera sér grein fyrir hverjar ástæður þínar eru fyrir því að vilja
hætta að reykja. Gott er að minna
sig á þessar ástæður reglulega, til
dæmis þegar reykingalöngun gerir
vart við sig.
Ráðgjöf fagaðila í reykleysismeð-
ferð og hjálparlyf, eins og nikótín-
lyf, eru dæmi um stuðningsmeð-
ferðir. Rannsóknir hafa sýnt að
samþætting faglegs stuðnings og
lyfja gefur góðan árangur.
Nikótínlyf
Þegar þú hættir að reykja hættir
þú að útvega líkamanum nikó-
tín og þá getur þú fundið fyrir
ýmiss konar vanlíðan sem kallast
fráhvarfseinkenni. Með notkun
nikótínlyfja getur þú komið í veg
fyrir eða dregið úr þessari vanlíðan
og löngun til að reykja. Það er vegna
þess að þú heldur áfram að útvega
líkamanum lítið magn af nikótíni
í stuttan tíma á meðan hann er að
venjast nikótínleysinu.
Nikótínlyf fást án lyfseðils í
apótekum. Til eru margar gerðir af
nikótínlyfjum svo hver og einn geti
fundið nikótínlyf við sitt hæfi.
Það tekur innan við mínútu fyrir
nikótínið að frásogast inn í líkam-
ann frá því að maður dregur að sér
sígarettureyk. Nikótínið fer upp í
heila og losar þar taugaboðefnið
dópamín, sem framkallar vellíðan.
Það eru þessi áhrif sem reykinga-
menn sækjast eftir og ánetjast. Í
ljósi þess hversu fljótt nikótínið frá-
sogast inn í líkamann telur Sigrún
Sif, lyfjafræðingur hjá Icepharma/
LYFIS, að skjótvirk hjálp geti verið
lykilatriðið í að hætta að reykja.
Zonnic – taktu stjórnina!
Zonnic pepparmint munnholsúði
er skjótvirk hjálp gegn reykinga-
löngun
„Þegar reykingalöngunin er
mikil getur verið gott að fá hjálp
sem fyrst. Zonnic nikótínúði er
með piparmintubragði og virkar
á aðeins einni mínútu,“ segir Sig-
rún Sif. „Úðaglasið er með úðastút
sem beinir nikótínúðanum á milli
kinnar og tanna þar sem nikótínið
frásogast hratt inn í líkamann.
Með því að beina úðanum á
milli kinnar og tanna frásogast
nikótínið í munnholinu, sem lág-
markar það magn nikótíns sem
berst niður í háls og maga, þar sem
það getur valdið ertingu,“ upplýsir
Sigrún Sif.
Ertu að hugsa um að hætta?
Fólk fer mismunandi leiðir að reyklausu lífi. Til að forðast bakslag er mikilvægt að kynna sér
hvaða úrræði og stuðningsmeðferðir eru í boði áður en ákveðið er að hætta að reykja.
Hverjar eru þínar ástæður fyrir því að vilja hætta að reykja? Rannsóknir hafa sýnt að samþætting faglegs stuðnings og lyfja gefur góðan árangur fyrir þá sem vilja hætta reykingum.
Zonnic munn-
holsúði inni-
heldur 1 mg
af nikótíni í
hverjum úða
og er ætlaður
til meðferðar
við tóbaksfíkn
og auðveldar
þannig fólki
að draga úr
reykingum eða
hætta að reykja.
Zonnic úðinn
fæst í öllum
apótekum.
Sigrún Sif Kristjánsdóttir lyfjafræð-
ingur hjá Icepharma/LYFIS.
Hvernig á að nota
Zonnic pepparmint?
Snúið úðastútnum til hliðar.
Úðið á milli kinnar og tanna.
Notið einn skammt (1-2 úðar)
þegar reykingalöngun gerir
vart við sig.
Finndu þann skammt sem
hentar þér. Hámarksskammtur
er 64 úðar á dag.
Lesið vandlega upplýsingar
á umbúðum og í fylgiseðli
fyrir notkun lyfsins. Leitið til
læknis eða lyfjafræðings sé
þörf á frekari upplýsingum
um áhættu og aukaverk-
anir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á serlyfja skra.is.
Niconovum AB. NIC201208 –
Desember 2020.
KYNNINGARBLAÐ 9 M I ÐV I KU DAG U R 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 HEILSA