Fréttablaðið - 30.12.2020, Qupperneq 41
14 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA
Kristjana er einkaþjálfari hjá World Class, auk þess sem hún kennir í hópatímum
hjá líkamsræktarstöðinni. Þar
fyrir utan stundar hún námi í
viðskipta- og markaðsfræði við
Háskólann á Bifröst og vinnur
hjá Öryggismiðstöðinni við að
keyra COVID-19 sýni í greiningu.
Frá sextán ára aldri hefur Krist-
jana þjálfað og keppt í fitness.
Næringardrykkurinn Teygur er í
miklu uppáhaldi hjá henni. „Mér
finnst Teygur góður á bragðið og
Næring á
núll einni
Kristjana Huld Kristinsdóttir hefur æft
og keppt í fitness í meira en áratug
með góðum árangri. Hún mælir með
að drekka Teyg eftir æfingar til að ná
endurheimt hraðar til vöðvanna.
Kristjana Huld æfir fitness og kennir hópatíma hjá World Class. Hún segir Teyg frábæran næringardrykk sem sé
góður á bragðið og gott að grípa með sér út í daginn. Drykkurinn gefur góða næringu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
hann er frábær næring til að grípa
með sér út í daginn. Fyrir mér er
mikilvægt að næra líkamann og
halda brennslunni gangandi yfir
daginn og því tek ég Teyg með mér
þegar ég fer á æfingar eða þegar
ég veit ég verð lengi í burtu frá
heimilinu,“ segir Kristjana.
Teygur, sem er 100% vegan, er
annars vegar unninn úr hafra-
mjólk og hins vegar möndlumjólk.
Einungis er notast við baunapró-
tein í drykkinn, en það er talið
vera eitt besta prótein sem hægt er
að fá úr jurtaríkinu.
Millimál og morgunmatur
„Ég elska að fá mér Teyg eftir
erfiðar æfingar til að ná endur-
heimtinni hraðar til vöðvans en
þá er tilvalið að fá prótein beint
í skrokkinn. Prótein er vöðva-
fóður og mitt markmið er að
byggja upp vöðva. Ég drekk Teyg
oftast innan við 30-40 mínútum
eftir æfingar, því þá fer próteinið
hraðar inn í vöðvana en ég fæ mér
hann líka oft í millimál eða með
morgunmatnum. Teygur er frábær
næringardrykkur í passlega stórri
fernu, sem kemst auðveldlega í
veskið þegar ég er á ferðinni. Einn-
ig finnst mér mjög gott að setja
Teyg út í grautinn eða á morgun-
kornið,“ segir Kristjana, en það er
einmitt kjörið að hafa drykkinn
með sér í útivistina, fjallgöngur,
bústaðinn eða einfaldlega eiga í
bílnum þar sem Teygur þarf ekki
að vera í kæli.
En er Teygur drykkur sem
hentar fyrir alla eða er hann aðal-
lega fyrir fólk sem æfir mikið?
„Teygur er hannaður fyrir alla í
fjölskyldunni og hentar fyrir alla
aldurshópa. Mér finnst mikil-
vægt að fá góð næringarefni inn
í daginn. Teygur kemur mér á
hverjum degi inn í daginn,“ segir
Kristjana.
Hún segist mæla heils hugar
með því að drekka Teyg reglulega.
„Þetta er góður, næringarríkur
drykkur og það er þægilegt að
grípa hann með sér á æfingar eða
með sér út í daginn,“ segir hún.
Bragðgóður næringardrykkur
Markmiðið með hönnun Teygs
var að framleiða bragðgóðan nær-
ingardrykk sem einnig uppfyllti
alþjóðlega staðla sem næringar-
dykkur (e. nutrition shake). Við
þróun á drykknum var kapp-
kostað að nota hágæðahráefni og
raða saman hagstæðum nær-
ingarefnum og hæfilegu magni af
próteini. Teygur er ekki eingöngu
fyrir íþróttafólk heldur alla sem
vilja góða næringu. Hægt er að
velja um fjórar tegundir af Teyg:
Möndluteyg með súkkulaði og
kókosbragði, Möndluteyg með
súkkulaði, Hafrateyg með súkku-
laði og kókosbragði og Hafrateyg
með súkkulaðibragði.
Fyrir mér er mikil-
vægt að næra
líkamann og halda
brennslunni gangandi
yfir daginn og því tek ég
Teyg með mér þegar ég
fer á æfingar eða þegar
ég veit ég verð lengi í
burtu frá heimilinu.