Fréttablaðið - 30.12.2020, Page 45
Frá því að COVID byrjaði hef ég verið að útbúa myndbönd með háls- og bakæfingum á mis-
munandi álagsstigum og útkoman
er fjarþjálfun hjá bakskolinn.com,“
segir dr. Harpa Helgadóttir, Ph.D. í
líf- og læknavísindum, sjúkraþjálf-
ari og sérfræðingur í greiningu og
meðferð á hrygg- og útlimaliðum.
Harpa hefur kennt háls- og bak-
leikfimi í yfir þrjátíu ár.
„Hvert námskeið er þrír mán-
uðir með aðgangi að þjálfunar-
gátt þar sem nýjar æfingar (2x30
mínútur), auk fræðslu, koma á þitt
svæði í hverri viku. Hægt er að
horfa eins oft og maður vill, það er
alltaf hægt að gera hlé á æfingum
og byrja þar sem frá var horfið,“
útskýrir Harpa.
Hæfilegt og rétt álag
BETRI LÍÐAN Í HÁLSI OG BAKI eru
námskeið þar sem hægt er að velja á
milli þriggja álagsstiga.
„Til að bæta líðan og byggja upp
betri starfsemi í hálsi og baki þarf
Betri líðan í baki heiman úr stofu
Breiðu bökin kynna þriggja mánaða námskeið í fjarþjálfun sem stuðla að betri líðan í hálsi og
baki. Hægt er að byrja hvenær sem er og er unnið með álagsstig sem hentar hverjum og einum.
Hér má sjá dr.
Hörpu Helga-
dóttur kenna
góðar og gagn-
legar bakæf-
ingar sem hægt
er að stunda
heima í stofu.
MYND/AÐSEND
álagið að vera hæfilegt og
má ekki aukast of hratt
ef mikil viðkvæmni
er í vefjum. Því er gott
að vera raunsær og
byrja að æfa á réttu
álagi. Engin lóð eru
notuð á stigi 1 en á stigi
2 eru notuð létt lóð sem
þyngjast svo á stigi 3,“ upplýsir
Harpa.
Stoðkerfið byggt upp
BACKSMART með lóðum er nám-
skeið ætlað fólki sem vill byggja
sig upp með styrkjandi og liðkandi
æfingum.
„Álagsstigið er á bilinu 2 til 4 og
er unnið með lóð og eigin þyngd.
Farið er í æfingarnar frá grunni en
álagið eykst hraðar á þessu nám-
skeiði sem er eins konar hraðbraut
og ekki hugsað fyrir þá sem hafa
mikla viðkvæmni í hálsi eða baki,“
segir Harpa sem fékk dætur sínar
í lið með sér við að útbúa þetta
námskeið.
„Á öllum námskeiðum er
unnið markvisst að því að
bæta tækni í æfingum svo
að álagið sé uppbyggi-
legt fyrir hrygginn. Ekki
er nóg að bæta aðeins
starfsemi í hálsi eða baki,
heldur þarf að byggja stoð-
kerfið upp sem heild. Það
þarf að styrkja fótleggjavöðva og
bæta starfsemi mjaðma og brjóst-
hryggs til að jafna álagið svo ekki
verði ofálag á viðkvæma liði,“
útskýrir Harpa.
Fræðsla er einnig mikilvæg þar
sem rýna þarf í daglegar athafnir
og venjur.
„Heilbrigður lífsstíll skiptir
miklu máli fyrir stoðkerfið og
regluleg hreyfing eins og rösk
ganga í um 30 mínútur á dag skil-
ar betri árangri en lengri, erfiðari
og óreglulegri göngutúrar.“
Allara nánari upplýsingar er að
finna á bakskolinn.com
Gerður Jensdóttir ákvað löngu fyrir tvítugt að stunda útivist og líkams-
rækt alla tíð. Undanfarna áratugi
hefur hún stundað göngur, spilað
golf, átt svig-, fjalla- og göngu-
skíði, stundað sund og hjólreiðar
svo það helsta sé upp talið. Í dag
er hún 72 ára og hvergi hætt enda
eykur öll þessi hreyfing hreysti og
lífsgleði að hennar sögn.
Hún segir útivistina vera sér
í blóð borna. „Foreldrar mínir
fóru með okkur í tjaldferðalög
á sumrin frá því ég var eins árs
gömul. Faðir minn, Jens R. Páls-
son, var leigubílstjóri og móðir
mín, Kristín J. Eiríksdóttir, var
húsmóðir á þessum tíma. Þannig
að þegar lítið var að gera í akstr-
inum var brunað út úr bænum.“
Skíðin bætast við
Þegar Gerður var tvítug giftist hún
Böðvari Baldurssyni og eignuðust
þau þrjú börn á þremur og hálfu
ári. „Ég skráði okkur hjónin í
Ferðafélag Íslands um tvítugt og
hvert sem við fórum um landið
voru ferðafélagsbækur um svæðin
með í för. Landakortin voru tekin
með og það tryggði að við vissum
um alla áhugaverða staði að skoða.
Böðvar ók, ég var á kortinu og með
tilheyrandi bók í fanginu.“
Hjónin héldu útivistinni áfram
eftir að börnin bættust í hópinn.
„Við fórum í margar tjaldútil-
egur með börnin fyrstu árin í lífi
þeirra. Um þrítugt fengum við
okkur svigskíði og skíðaferðir í
Hengilinn eða Bláfjöll urðu fastur
liður á veturna. Fermingargjafir
barnanna voru tveggja vikna
skíðaferðir til Austurríkis.“
Útivist allt árið
Þegar börnin stækkuðu fóru
hjónin að ferðast meira ein eða
í hópum. „Skíðaferðir erlendis
urðu oftar á dagskrá hjá okkur.
Hálendisferðir bættust við þegar
við keyptum okkur Lapplander-
jeppa og við fórum líka í nokkrar
spennandi gönguskíðaferðir upp
á hálendi og á fjöll.“
Í tilefni fertugsafmælisins fengu
hjónin sér allan búnað sem þurfti
til að ganga með allt á bakinu
dögum saman. „Við byrjuðum
auðvitað að ganga hinn svokall-
aða Laugaveg á eigin vegum og
eftir það varð ekki aftur snúið.
Um fimmtugt bættist svo golfið
við þannig að allan ársins hring
höfðum við útivist sem hentaði
hverjum árstíma.“
Böðvar lést árið 2006 en
f ljótlega eftir það fór hún með
nokkrum fjölskyldumeðlimum á
Eyjafjallajökul og síðar á Hvanna-
dalshnjúk með Ferðafélagi
Íslands. „Í raun hef ég bara ekki
stoppað síðan. Árið 2009 gekk ég
í gönguhópinn Toppfara og þar er
ég enn.“
Spennandi göngur
Það er óhætt að segja að Gerður
hafi komið víða við á svo langri
og viðburðaríkri ævi, bæði heima
og erlendis. „Meðal eftirminni-
legra gönguferða innanlands
má nefna sex daga gönguferð
umhverfis Langasjó um Fögrufjöll
að Skælingum og Eldgjá að Nyrðri
Ófæru, göngu yfir Skeiðarárjökul
frá Skaftafelli að Núpsstaðaskógi,
einstaka göngu um Snæfellsnes-
fjallgarð, sex daga gönguferð um
Friðland að fjallabaki, göngu frá
Hornvík í Ingólfsfjörð sem tók níu
daga, göngur á Þverártindsegg,
Miðfellstind, Herðubreið, Kverk-
fjallajökul og Dyrfjöll svo fá eitt sé
talið upp.“
Hún hefur líka gengið margar
spennandi gönguleiðir erlendis.
„Nokkrar eftirminnilegar ferðir
eru meðal annars ferðin til Perú
árið 2011 þar sem ég gekk til
dæmis Inca trail til Machu Picchu,
gekk um Cordillera Blanca fjalla-
garðinn og um Colca gljúfrin. Ég
hef líka heimsótt Nepal en þar
gekk ég um Anna Purna svæðið.
Í Jórdaníu gekk ég svo þekkta
gönguleið sem endaði í fornu
borginni Petra.“
Kilimanjaro eftirminnilegast
Langmesta fjörið segir hún þó
vera í skíðaferðunum til Austur-
ríkis og Ítalíu og í nokkrum ofur-
göngum um Fjallabak og Þórs-
mörk með einkahópi. „Sterkastar
eru samt minningar úr nokkrum
hrakningaferðum um landið
okkar sem allar enduðu vel og er
of langt mál að segja frá hér.“
Af mörgum eftirminnilegum
göngum um ævina stendur þó
ein upp úr en það var ganga á
Kiliman j aro, hæsta fjall í Afríku.
„Fjallið er 5.895 metra hátt en
það kleif ég á 70 ára afmæli mínu
í nóvember 2018. Fjallið kom
mjög á óvart vegna mikillar
náttúrufegurðar alla leið og ég
heillaðist gjörsamlega af útsýninu
frá toppnum yfir magnaðar risa
ísblokkir sem höfðu losnað frá
tindinum. Ég slapp við öll ein-
kenni háfjallaveikinnar og trítlaði
léttfætt niður.“
Ný ævintýri í vændum
Það styttist í nýtt ár og er Gerður
að sjálfsögðu farin að huga að
næstu ævintýrum. „Það er ýmis-
legt sem ég er að skoða þessa dag-
ana. Ég á til dæmis sunnanverða
Austfirði eftir og gæti hugsað
mér að mæta á Gönguvikuna í
Fjarðabyggð næsta sumar. Síðan
langar mig á Tungnafellsjökul og
Hágöngur, Skefilsfjöll og Klukku-
tinda og einnig Lómagnúp. Það er
endalaust eftir sem betur fer.“
Útivist eykur hreysti og lífsgleði
Í rúma hálfa öld hefur útivist og líkamsrækt verið órjúfanlegur hluti af lífi Gerðar Jensdóttur. Hún
er hvergi hætt enda eykur öll þessi fjölbreytta hreyfing hreysti og lífsgleði að hennar sögn.
Gengið á Loðmund í Kerlingarfjöllum árið 2013. MYNDIR/AÐSENDAR
Á toppi Kilim-
anjaro, hæsta
fjalls Afríku, á
sjötugs afmæli
sínu árið 2018.
Gerður er fyrir
miðri mynd í
rauðri skyggju.
MYND/ÁGÚST
RÚNARSSON
Á toppi Kirkjufells á Snæfellsnesi
sumarið 2013 í fallegu veðri.
18 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA