Fréttablaðið - 30.12.2020, Síða 50
Hjá okkur hefur margt gott gerst í kórónafaraldrinum þótt ástandið hafi líka verið
erfitt. Við tókum stofuna í gegn
með hjálp leigusalans, og hún er
orðin svakalega falleg, og ég hef
getað útvegað viðskiptavinum
okkar vörur til að gera vel við sig
heima. Ég hef líka verið svo lánsöm
að Weyergans-vélarnar okkar í
Skandinavíu hafa blómstrað á
þessum erfiðu tímum og ég gerði
sömuleiðis frábæran samning
við fyrirtækið Wellness USA og
tók í gagnið svokallaðan verndar-
hjúp (e. cocoon fitness pod),“ segir
Sandra Lárusdóttir, eigandi Heilsu
og útlits og umboðsaðili þýsku
fegrunar- og lækningatækjanna
Weyergans á Norðurlöndunum.
Framúrskarandi tækni
Verndarhjúpurinn býr yfir
framúrskarandi tækni sem hjálpar
einstaklingum að viðhalda kjör-
þyngd á meðan þeir slappa af í
gufu nuddæfingatæki sem umvefur
þá sem verndarhjúpur.
„Hugtakið vellíðan nær nýjum
hæðum í verndarhjúpnum og teyg-
ir sig út fyrir veggi líkamsræktar-
og jógastöðva. Verndarhjúpurinn
færir okkur aftur inn í kjarna
gamalgróinna, náttúrulegra og
heildrænna vellíðunaraðferða.
Maður leggst einfaldlega niður og
getur valið um mismunandi með-
ferðir, eins og líkamsrækt, slökun
og þyngdarstjórnun,“ upplýsir
Sandra.
„Margir bíða þess í ofvæni að
vera með þeim fyrstu til að dekra
við sig og ýmist færa sig nær, eða
viðhalda heilbrigðum og náttúru-
legum lífsstíl, sem og vellíðan.“
Verndarhjúpurinn byggir á
háþróaðri tækni sem framkallar
vellíðan með hjálp samsettra
ytri þátta á borð við þurran hita
(innrauða orku), nudd, ilmmeð-
ferð, saltloft og jade-steina sem
eru samsettir af tveimur náttúru-
legum steinefnum, annars vegar
jadeite (natríum, áli og kísil) og
nefrít (kalsíum, magnesíum og
kísil).
„Verndarhjúpurinn veitir alhliða
vellíðan með því að sameina í
einni og sömu meðferðinni virkni
vöðvaspennu, innrauðra ljósa,
heilnudds og ilmkjarnameðferða.
Hann veitir slakandi og endurnær-
andi meðferð fyrir huga, líkama og
sál,“ segir Sandra.
Svifið um á orkuskýi
Bólstrað nuddkerfi verndarhjúps-
ins gerir að verkum að varmaorka
sem fæst úr steinefnum sem liggja
að innri veggjum verndarhjúpsins
nýtist fullkomlega.
„Líðanin er eins og maður svífi
um á dúnmjúku orkuskýi. Stein-
efnin senda frá sér innrauða orku
þar sem 20 prósent orkunnar hita
andrúmsloftið í verndarhjúpnum
en um 80 prósent orkunnar skila
sér djúpt inn í líkamann,“ útskýrir
Sandra og heldur áfram:
„Það sem innrauður hiti hefur
umfram hefðbundið gufubað er að
orka og hiti innrauðra geisla skilar
sér mun dýpra inn í húð og líkama
við tiltölulega lágt hitastig. Þá efla
þeir upptöku næringarefna, auka
blóðflæði og styrkja hjarta- og
æðakerfi líkamans. Innrauðir
geislar eru rafsegulgeislar með
lengri bylgjulengd en sýnilegt
ljós. Þeir gefa ekki frá sér hættu-
lega UV-geisla sólarljóssins og því
stafar ekki af þeim nein hætta.“
Hvernig vinnur
verndarhjúpurinn?
Í Verndarhjúpnum er hitastýri-
kerfi sem gestir geta stillt að vild,
allt frá stofuhita og upp í 90°C.
„Við getum hækkað líkams-
hitann með því að stunda háhita
(e. hyperthermic) sem styrkir
ónæmiskerfið og vil ég ítreka að
fólk lesi sér til um meðferðirnar
á síðunni hyperthermicwell-
ness. com þar sem margar rann-
sóknir liggja að baki,“ segir Sandra
til upplýsingar.
„Kostir þess að hafa slíkt kerfi
er að hærri hiti veitir aukinn
bruna hitaeininga með tilheyr-
andi þyngdartapi. Þó svo að
þyngdartap vegna vatnsmissis
sé tímabundið er ávinningur og
vellíðan tvímælalaus og virkar
sem hvatning til að viðhalda
heilbrigðum lífsstíl. Meðferðin
hjálpar aukinheldur við að hreinsa
óhreinindi úr líkamanum og hún
örvar efnaskipti sem leiðir til
varanlegs þyngdar- og ummáls-
missis,“ útskýrir Sandra.
Hægt er að gera æfingar til að
tóna líkamann á meðan verndar-
hjúpurinn nuddar hann allan.
„Upplifun og vellíðan eykst enn
frekar þegar andað er að sér fersku,
hreinsuðu lofti sem er blandað
með Himalaya-saltkristöllum.
Kristallarnir aðstoða náttúrulega
getu líkamans við að draga djúpt
andann og slaka á. Þegar rakastig
andrúmslofts er eðlilegt dregur
loftið að sér saltagnirnar sem
mýkja húðina og opna öndunar-
veginn. Saltið hjálpar einnig við
að opna ennis- og kinnholur, og
stuðlar að hugarró. Þá er jafnframt
boðið upp á meðferð með hreinum
ilmkjarnaolíum til að auka enn
á slökun og vellíðan,“ upplýsir
Sandra.
Ráðlagður meðferðartími í hvert
skipti er frá 15 til 60 mínútna,
tvisvar til þrisvar í viku, og svo
vikulega til að viðhalda árangri.
„Notkun innrauðra geisla til að
auka kjarnhitastig líkamans hefur
jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan
auk þess sem slík hitameðferð
getur reynst íþróttamönnum
vel til að ná auknum árangri.
Með verndarhjúpnum getum við
hækkað líkamshitann og styrkt
ónæmiskerfið.“
Sandra segir alla geta komið
í dekur og bataferli hjá Heilsu
og útliti, án þess að það þarfnist
mikillar snertingar.
„Við erum einnig með full-
komnustu súrefnismeðferðir í
heimi fyrir andlitið og Hollywood-
stjörnurnar notast allar við sömu
meðferðir og við notum á okkar
viðskiptavini. Þá bjóðum við einn-
ig upp á flottasta kínverska nuddið
í bænum, að við teljum. Í janúar
fáum við líka annan verndarhjúp
til að mæta eftirspurninni sem
við höfum ekki annað til þessa og
hlökkum mikið til.“
Heilsa og útlit er í Hlíðarsmára 17
í Kópavogi. Sími 562 6969. Allar
nánari upplýsingar á heilsaogut-
lit. is. Sjá einnig hyperthermicwell-
ness.com
Vellíðan nær nýjum hæðum
Verndarhjúpur er nýtt heilsu- og fegrunartæki í Heilsu og útliti. Hann veitir endurnærandi og slak-
andi meðferðir fyrir huga, líkama og sál og líðanin er eins og svifið sé á dúnmjúku orkuskýi.
Sandra Lárusdóttir er eigandi Heilsu og útlits. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í kófinu notaði Sandra tímann til að gera gagngerar endurbætur á stofunni sem fengið hefur glæsilega upplyftingu.
Verndarhjúpurinn veitir einstaka heilsubót og vellíðan sem er engri lík.
Margvíslegur heilsufarslegur
ávinningur fæst í einni og sömu
meðferð verndarhjúpsins. Þar
á meðal:
n Róandi, vöðvaslakandi
hitanudd
n Brennir hitaeiningum
n Stuðlar að þyngdarmissi og
minnkun á ummáli
n Eykur blóðrás
n Eykur súrefnisupptöku
n Eykur brennslu
n Eykur hreyfigetu
n Eykur liðleika
n Er verkjalosandi
n Endurmótar líkamann
n Afeitrar
n Endurnærir húðina
n Framkallar afslöppun /
veitir hugarró
n Kemur jafnvægi á magn
kortisóls (kortisól er
hormón sem hjálpar við
slökun og jafnvægi í að-
stæðum streitu og álags)
n Stuðlar að andlegu jafn-
vægi og ró
n Hjálpar við svefnleysi
n Veitir húðinni raka
n Hreinsar öndunarveginn
n Hjálpar gegn árstíða-
bundnu ofnæmi/frjó-
kornaofnæmi
n Hefur góð áhrif sem með-
ferð við berkjubólgu (sjá
heimasíðu Halotherapy
fyrir frekari upplýsingar)
KYNNINGARBLAÐ 23 M I ÐV I KU DAG U R 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 HEILSA