Fréttablaðið - 30.12.2020, Side 53

Fréttablaðið - 30.12.2020, Side 53
Rósakál er líklega það græn­meti sem hefur átt eina tilkomumestu endurkomu á sjónarsviðið síðastliðin ár. Áður fyrr á Íslandi var þetta skelfilega grænmeti yfirleitt gufusoðið, og kom þá gjarnan beint úr frystikistunni. Eftirvæntingunni eftir þessu slepjulega og litdapra soðna græn­ meti mátti líkja við eftirvænt­ ingunni eftir samnefndri frænku margra. Lyktin og bragðið minnti mest á viðrekstur sem fær mann til þess að setja stórt spurningar­ merki við þá staðreynd að þetta var borið fram á tyllidögum ár eftir ár á íslenskum heimilum, við­ kvæmum bragðkirtlum barna til ómældrar óánægju. Ástæðan hefur líklega með hefðir að gera og tæknilega séð þá er desember vaxtartíð „brussel­ sprotanna“ svokölluðu úti í heimi. Þá er enn fremur talið að þessir smákálhausar séu langbragðbestir eftir fyrsta frostið sem hefur gert þá að auðfúsugesti á hátíðar­ borðum Vesturlanda. En sú hefð að sjóða þessa litlu, sætu kálhausa er ja, langt frá því að vera besta leiðin til þess að matreiða þá, því rósakálið nýtur sín allajafna best annaðhvort ofnbakað eða steikt á pönnu. Þá eru þeir einnig góm­ sætir ferskir og rifnir niður í salat. Eftir nokkra hríð í frystiskúff­ unni hafa því margir brugðið á það ráð að færa brusselsprotana á matarborðið að nýju, en í stað þess að gufusjóða þá frosna eru verslanir sem betur fer byrjaðar að bjóða upp á þetta gómsæta og holla grænmeti í sínu ferska formi. Til þess að gera rósakálið að stjörnumeðlæti á hátíðaborðinu þarf ekki mikið meira en olíu, salt, pipar, heitan ofn og nóg pláss á ofnplötunni. Bragðgóðir brusselsprotar Hitaðu ofninn í 220°C (200°C ef blástur). Byrjaðu á því að f letta af þeim laufum sem virka ógirnileg og skerðu neðsta partinn af stilknum af. Skerðu næst hvern rósakálhaus í 2­4 hluta, eftir stærð. ½ kg ferskt rósakál 3-4 msk. ólífuolía Ca. 1 tsk. salt Ca. ½ tsk. nýmalaður svartur pipar 1 msk. gott balsamedik 2 msk. hunang Næst er rósakáli, olíu, salti og pipar blandað saman í skál. Passið að allt kálið sé nægilega húðað olíu og notið meira ef þarf. Dreifið vel á ofnplötu og bakið í ofninum í alls um 30 mínútur. Hrærið í ofn­ skúffunni við 15 mínútna markið. Þegar rósakálið er orðið gullin­ brúnt er það tekið úr ofninum og blandað saman við balsamedikið og hunangið. Smakkið til með salti og pipar. Einnig er gott að dreifa smá af stökku, steiktu beikonkurli eða granateplafræjum yfir ef vill. Undanfarin ár hefur átak sem kallast þurr janúar (e. dry January) notið sífellt meiri vinsælda en það á rætur sínar að rekja til Bretlands. Því var hleypt af stokkunum þar í landi árið 2013 og um 4.300 manns ákváðu að taka þátt. Árið 2020 hafði þátt­ takendum fjölgað til muna og meira en 4 milljónir skráðu sig til leiks. Átakið snýst um að drekka ekkert áfengi í janúar en ýmislegt bendir til þess að það hafi góð áhrif á heilsuna. Á meðal þess sem áfengislaus janúar ætti að hafa í för með sér er betri svefn, minni kvíði, lægri blóðþrýstingur og fallegri húð, svo eitthvað sé nefnt. Hver dagur telur En getur einn mánuður virkilega haft einhver áhrif á heilsuna? Já, því hver vika telur þegar fólk vill breyta um lífsstíl. Samkvæmt rannsókn sem gerð var við háskól­ ann í Sussex kom í ljós að sjötíu prósent þeirra sem tóku þátt í þurrum janúar fyrsta árið breyttu áfengisneyslu sinni til betri vegar með því að drekka minna og sjaldnar yfir árið í heild. Þessar niðurstöður eru einkar ánægju­ legar í ljósi þess að alkóhól er heilsuspillandi. Það hef ur til dæmis slæm áhrif á lifrina, truflar svefn, getur leitt til hærri blóð þrýstings og aukið líkur á kvíða og þunglyndi, svo fátt eitt sé nefnt. Ráð fyrir betri árangur Ef þú vilt taka þátt í þurrum janúar er ýmislegt sem þú getur gert til að ná árangri. Fyrsta skrefið er að taka ákvörðun um að vera með og Ef þú vilt taka þátt í þurrum janúar er ýmislegt sem þú getur gert til að ná árangri. Fyrsta skrefið er að taka ákvörðun um að vera með og setja sér mark- mið. Eftir nokkra hríð í frystiskúffunni hafa því margir brugðið á það ráð að færa brussel sprotana á mat- arborðið að nýju. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Gleðilegt ár! Þurr janúar heilsunnar vegna Þurr janúar felur í sér að hætta allri neyslu áfengis í heilan mánuð og jafnvel eitthvað lengur. Margir nota tækifærið, tileinka sér heilsusamlegri lífsstíl á þessu tímabili og setja sér markmið. Í staðinn fyrir að hella víni í glas eftir erfið- an vinnudag er hægt að fá sér óáfengan drykk í fallegu glasi og bragðbæta með sítrónu, límónu eða myntu. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Enduruppgötvun aldarinnar Rósakál er ljúffengt ofnbakað eða steikt á pönnu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY. setja markmið. Gott er til dæmis að hlaða niður Try Dry appinu, sem er frítt, en það hjálpar þér að fylgjast með hvernig gengur. Í gegnum app­ ið getur þú fengið hvetjandi pósta og tilkynningar sem halda þér við efnið. Í appinu eru margs kon ar upplýsingar um alkóhól og fjöldi góðra ráða, sem þú getur nýtt þér til að halda janúar þurrum, auk þess sem þú getur sett þér markmið fyrir allt árið. Það er líka margt sem hver og einn getur gert upp á eigin spýtur. Sem dæmi er gott að taka einn dag í einu, eða viku fyrir viku, frekar en að hugsa of langt fram í tímann. Þannig verður átakið yfirstígan­ legra, ekki síst fyrir þá sem eiga erfitt með að sleppa áfenginu alveg. Þú getur líka fengið vini þína með þér í átakið en það er alltaf gott að fá stuðning frá öðrum. Þið gætuð til dæmis stofnað hóp á samfélagsmiðlum til þess að heyra hvernig hinum gengur og deila eigin reynslu. Prófaðu líka að brjóta upp rútínuna og gera eitthvað nýtt. Í staðinn fyrir að hella víni í glas eftir erfiðan vinnudag er hægt að fá sér óáfengan drykk í fallegu glasi. Það má bragðbæta vatn með sítrónu, límónu eða appelsínu og það er líka gott að setja gúrkusneiðar eða myntu út í vatn. Ef það er ekkert að gera fyrir þig er hægt að finna fjöl­ margar uppskriftir að óáfengum kokteilum á netinu. Losaðu þig við allt áfengi á heim il inu til að falla ekki í freistni. Finndu þér nýtt áhugamál sem tengist ekki áfengisdrykkju. Það getur verið hreyfing af hvaða tagi sem er, bakstur, eldamennska eða tungumálanámskeið á netinu. Njóttu þess að vera laus við áfengi, þótt ekki sé nema í einn mánuð á nýja árinu. 26 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.