Fréttablaðið - 30.12.2020, Side 77

Fréttablaðið - 30.12.2020, Side 77
3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ Það eru ófáir sem hlakka jafnvel enn meira til áramóta en jóla, en þá er líklega besta tæki-færið til að klæða sig upp á og fara alla leið í fatavalinu. Stórar veislur hafa þó verið blásnar af vegna ástandsins í þjóðfélaginu, en það þarf þó ekki að stoppa neinn frá því að klæða sig almennilega upp. Er ekki kjörið að fara í sitt fínasta púss eða fjárfesta í fallegri íslenskri hönnun, og kveðja þetta fordæmalausa ár með stæl? steingerdur@frettabladid.is Fordæmalaust ár kvatt með stæl  Gamlárskvöld verður líklega með breyttu sniði hjá flestum lands- mönnum í ár. Það er þó um að gera að láta það ekki stoppa sig í því klæða sig upp á, þótt það sé einungis fyrir mann sjálfan. Maria Rosaria Rizzo í kjól sem glamúrinn lekur af. Glitur og glimmer er alltaf jafn vinsælt á gamlárskvöld, þótt maður sé bara einn uppi í sófa. Verslanir fyllast oft af kjólum í þessum stíl fyrir áramót. MYND/GETTY IMAGES Það gerist varla áramótalegra en þetta fallega sett frá EYGLO. Fæst í Kiosk Granda. MYND/DÓRA DÚNA Nýjasta lína Anítu Hirlekar hefur slegið í gegn fyrir glaðleg blóma- mynstur. Þessi kæmi vel út á áramótunum. Fæst í Kiosk Granda. MYND/RUT SIGURÐARDÓTTIR Það er líka hægt að klæða sig upp í flotta dragt, hvort sem hún er glitrandi eða ekki. MYND/GETTY IMAGES Fagur- grænn og áramótalegur kjóll frá H&M. Þessi fallegi kjóll frá Hildi Yeoman heitir því viðeigandi nafni The Fireworks dress, þannig að hann er kjörinn fyrir gamlárskvöld. Fæst í verslun hennar við Laugaveg. MYND/SAGA SIG Svartur kjóll með skemmti- lega öðruvísi ermum frá H&M. Þýska tískugyðjan Alexandra Lapp í dragt frá Marc Cain. MYND/ GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.