Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 79

Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 79
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Upphaflega hugmynd-in var að gera sam-fellur og boli í stíl þannig að foreldri og barn gætu farið út fyrir kassann og verið töffarar í stíl saman,“ segir lista- og heimilisiðnaðarmaðurinn Róbert Stefánsson, sem framleiðir stuttermaboli og ungbarnasam- fellur skreyttar með höfuðkúpum húsdýra. Róbert segir að hugmyndin hafi kviknað þegar hann eignaðist son fyrir rúmum tveimur árum. „Ég fór að sanka að mér samfellum áður en að strákurinn fæddist og þetta eru allt bara einhverjir bílar og bangsar á þessu. Sól og tungl og eitthvað svona voða barnalegt allt og pælingin var að vera ekki bara með gröfur og bangsa út um allt,“ segir Róbert, sem rak sig þá á að flest barnaföt voru of krúttleg, eins og hann orðar það. Bleyjutöffarar Róbert sá því fulla ástæðu til að hrista aðeins upp í barnafata- markaðnum. „Það er ekkert endi- lega þannig að allir foreldrar vilji aðeins hafa börnin sín í fötum með myndum af teiknimyndafígúrum eða lituðu mynstri þvert og endi- langt,“ segir Róbert. „Ég er mikill bolaáhugamaður og held ég eigi hundrað boli með alls konar fyndnu dóti og mikið af hljómsveitabolum. Af hverju er ekki hægt að fá töff hljómsveitabol eða samfellu á tveggja ára krakka? Kannski eru þeir til en ég hef ekki séð þá,“ segir Róbert um hvernig bolirnir byrjuðu að rúlla. Rokkaður heim- ilisiðnaður „Ég teiknaði upp nokkr ar hauskúp- ur og breytti íbúð- inni tímabundið í litla bolaverksmiðju og setti nautið á bol, sam- fellu og er líka með það í listaverki. Það er alveg pæling að gera listaverk með f leiri dýrum en ég er með geit í þessu, hrút og hrein dýr,“ segir Róbert, sem hefur fengist lengi við listsköp un og haldið nokkrar sýningar á verkum sínum. „Þetta er bara heimilisiðnaður og pínu vesen, þannig séð, að vera að gera þetta heima. Vegna þess að þetta er nokkurt vandaverk sem krefst lagni og góðs rýmis,“ segir Róbert, sem selur framleiðsluna í vefversluninni solidroadkill.com. „Þar er hægt að kaupa varning og listaverk með hauskúpum og nafnið á líklega að gefa til kynna að hér er ekki verið að versla með krúttlega bangsa. Ætli hugmyndin sé ekki að vera pínu ögrandi og út fyrir kass- ann.“ Heilabrot í hauskúpu „Fyrsta pælingin var sem sagt að gera hauskúpur á barnasamfellur. Það er enginn að gera þetta og mér fannst þetta alveg brilljant hug- mynd. Það virðist enginn vera að pæla í því að krakkarnir mega vera rokkarar og svolítið töff líka. Þau vilja kannski vera í eins fötum og foreldrar þeirra,“ segir Róbert og fer í heilabrot um hauskúpurnar sem táknmyndir. „Það er rokk í þessu þótt þetta sé þannig séð ekkert endilega bara fyrir þá sem hlusta á eitthvað þunga- rokk,“ segir Róbert, sem sjálfur hallar sér að því þyngsta í þeirri deild. Hvernig hafa viðtökurnar verið? Er markaðurinn stærri en þú sjálfur og sonur þinn? „Það er kannski svolítið erfitt að negla niður ákveðinn markhóp og það er erfitt að ná beint til þessara foreldra,“ segir Róbert um foreldr- ana sem hann deilir smekk með og er viss um að leynist víða. Bændur og stjörnumerki „Þannig að það er í rauninni miklu meiri sala í fullorðinsbolunum. Þeir rjúka meira út og ég hef reyndar tekið eftir því að það er eins og landsbyggðin sé meira að taka þetta,“ segir Róbert og veðjar á nátt- úrutenginguna. „Kannski eru þetta meira bænd- urnir eða einhver þannig tenging við dýrin. Hrúturinn hefur verið að koma svolítið sterkur inn þannig að kannski er þetta fólk sem er í hrúts- merkinu. Eða nautsmerkinu. Ég er ekki með greiningu á því en bolirnir hafa svolítið verið að fara út á land. Það er mjög skemmtilegt að sjá að það er bara einhver frá Siglufirði að panta þetta.“ toti@frettabladid.is Hauskúpusamfellur fyrir töffarabörnin Stuttermabolir og hauskúpur eru Róbert Stefánssyni hugleikin og þegar hann eignaðist son fyrir tveimur árum byrjaði hann að þrykkja kúpur á samfellur svo þeir feðgar gætu verið töff í stíl. „Mér finnst hauskúpur bara svo spennandi. Þær geta verið mjög flottar og heillandi og eru líka mikilvægur hluti líkamans og passa heilann,” segir samfelluprentarinn Róbert sem er í stíl við soninn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Róbert leggur áherslu á að hann noti aðeins líf- ræna bómull. „Þannig að þetta eru góðar og mjúkar samfellur fyrir börnin. Það er alveg hugsað um það.” landsmanna 30 ára og eldri horfa reglulega á Hringbraut í hverri viku* landsmanna 50 ára og eldri horfa reglulega á Hringbraut í hverri viku* *MMR. 15-22 nóv 2019 Við miðlum af reynslu! FRÉTTAUMRÆÐA, MENNING, HEILSA, NÁTTÚRA OG LÍFSREYNSLA ÞÚ ERT AÐ HORFA Á HRINGBRAUT 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.