Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 8
8 FRÉTTIR
mínútur undir snjófarginu.
Talsverð umræða spratt upp
í kjölfar flóðsins um hlutverk
og rekstur Ofanflóðasjóðs,
sem komið var á í kjölfar
mannskæðra snjóflóða 1995
þar sem 34 létu lífið. Ofan-
flóðasjóður var upphaflega
fjármagnaður með sérstöku
gjaldi sem lagt var á allar
brunatryggðar fasteignir
á landinu. Tekjur sjóðsins
námu 2,5 milljörðum árið
2019. Ljóst var að ekki hefur
öllum þeim fjármunum sem
safnast hafa verið ráðstafað
í ofanflóðavarnir, sem olli
titringi í samfélaginu. Sagði
meðal annars Halldór Hall-
dórsson, stjórnarmaður í Of-
anflóðasjóði og fyrrverandi
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar:
„Við sem þjóð myndum aldr-
ei fyrirgefa okkur ef það yrðu
slys á stöðum sem enn eru
óvarðir og við með ofanflóða-
sjóð bólginn af peningum,“ og
gagnrýndi seinagang í upp-
byggingu varnargarða.
Náttúran hlífði þó ekki
öllum, en tveir ferðamenn,
ungt par, urðu úti á Sólheima-
sandi í nágrenni við flug-
vélarbrak sem er vinsæll
ferðamannastaður. Skjálfta-
virkni var einnig mikil víða
á landinu, einkum á Reykja-
nesi. Almannavarnir lýstu
yfir óvissustigi vegna landriss
vestan við fjallið Þorbjörn og
var haldinn íbúafundur með
Grindvíkingum um viðbrögð
ef til eldgoss kæmi.
Fréttablaðið sagði frá því í
lok mánaðarins að Guðmund-
ur Gunnarsson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar, hefði komist
að samkomulagi um starfs-
lok sín við bæjarstjórn. Síðar
kom í ljós að uppsögnin hefði
verið til komin vegna mikilla
samstarfsörðugleika á milli
bæjarfulltrúa og Guðmundar.
Guðmundur hefur nú gefið
kost á sér í framboð fyrir Við-
reisn í Norðvesturkjördæmi.
Það voru þó ekki einu starfs-
lokin sem vöktu athygli í
janúar en Birni H. Halldórs-
syni var sagt upp störfum
sem framkvæmdastjóra Sorpu
bs. Uppsögnin kom í kjölfar
skýrslu innri endurskoðunar
Reykjavíkur, sem sýndi fram
á 1,4 milljarða framúrkeyrslu
í framkvæmdakostnaði vegna
byggingar gas- og jarðgerðar-
stöðvar í Álfsnesi og móttöku-
stöðvar í Gufunesi.
Á fyrsta þingfundi eftir
jólaleyfi spurði Bjarni Bene-
diktsson fjármálaráðherra
hvort Íslendingar kynnu ef
til vill ekki að búa við jafn-
vægi. Vísaði Bjarni þar til
þess að verkalýðsleiðtogar
höfðu kynnt kröfur sínar í
komandi kjaraviðræðum og
væntanlegri yfirferð á stöðu
lífskjarasamningsins. Orð
Bjarna reyndust fyrirboði um
það sem koma skyldi: átök,
verkföll og loks lagasetningar.
Hæst fór fyrir kröfum og
baráttu Eflingar, en meðal
krafna stéttarfélagsins var
380.000 króna desemberupp-
bót og nær fjórföldun á or-
lofsuppbót. Sólveig Anna
Jónsdóttir gerði jafnframt þá
kröfu að félagið myndi semja
beint við Dag B. Eggertsson
borgarstjóra. Bíll merktur
Eflingu ók á milli vinnustaða
og safnaði atkvæðum í verk-
fallskosningu stéttarfélagsins.
Það hófst svo í febrúar.
Það sama var uppi á ten-
ingnum hjá BSRB, sem boðaði
atkvæðagreiðslu um verkfall í
mánuðinum.
Að utan bárust þau átakan-
legu tíðindi að íslenskur
maður væri grunaður um að
hafa banað sambýlismanni
móður sinnar á vinsæla ferða-
mannastaðnum Torrevieja á
Spáni. Maðurinn, Guðmundur
Freyr Magnússon, var hand-
tekinn grunaður um morð
að yfirlögðu ráði, sem og að
hafa sömuleiðis reynt að bana
móður sinni.
Það voru þó heldur stærri
tíðindi frá útlöndum sem áttu
athygli þjóðarinnar í janúar.
Skæð veira var farin að dreifa
úr sér í heiminum á ógnvekj-
andi hraða. Af því tilefni fund-
uðu heilbrigðisráðherra og
sóttvarnalæknir um stöðuna
og viðbrögð við veirunni, þeg-
ar hún óhjákvæmilega næmi
land á Íslandi. Í kjölfar fundar-
ins var sagt að ekki kæmi til
greina að loka landinu. Raunin
átti þó eftir að vera önnur um
mánuði síðar, þegar kórónu-
veiran kom til Íslands.
Febrúar
Víðtæk verkföll Eflingar
hófust í byrjun febrúarmán-
aðar og höfðu þau strax víða
áhrif. Leikskólum var víða
lokað og voru aðgerðirnar
sagðar hafa áhrif á leikskóla-
dvöl 3.500 leikskólabarna, af
þeim 5.100 sem eru skráð í
leikskóla í Reykjavík. Tæp-
lega tvö þúsund starfsmenn
Reykjavíkurborgar lögðu
niður störf í verkfallinu. Auk
leikskóla hafði verkfallið áhrif
á mötuneyti, ræstingu, sorp-
hirðu og snjó- og hálkuvarnir
í borginni. Fyrsta verkfallið
stóð í hálfan dag.
Annað verkfallið stóð svo
í heilan dag og það þriðja
lengur. Ótímabundið verkfall
hófst svo um miðjan mánuð-
inn. Ljóst er að verkfallið
hafði mikil áhrif á skólakerfi
borgarinnar í heild sinni.
Samhliða yfirstandandi
verkfallsaðgerðum Eflingar,
kusu fjölmörg önnur stéttar-
félög með því að hefja aðgerð-
ir. Þar á meðal Landssamband
slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna, Sjúkraliðafélagið
og BSRB.
Sigruðu heiminn
Í blálok febrúarmánaðar
sögðu fjölmiðlar frá því að
sá möguleiki að loka landinu
vegna útbreiðslu kórónuveir-
unnar væri í skoðun. „Vaxandi
líkur á að veiran berist til
landsins,“ sagði Morgunblað-
ið. Þann sama dag greindist
fyrsta tilfellið hér á landi.
En á meðan til umræðu kom
að loka landinu þá var það
ungur maður sem vakti mikla
athygli á landinu erlendis.
Daði Freyr Pétursson og fé-
lagar hans í Gagnamagninu
unnu Söngvakeppnina með
laginu Think About Things.
Myndbandið við lagið fór líkt
og eldur í sinu um netheima
og átti lagið eftir að verða
með vinsælli lögum á árinu.
Fjölmargir, hvaðanæva úr
heiminum birtu myndbönd af
sér á YouTube þar sem þeir
tóku sporin með Daða og Ís-
lendingar réðu sér ekki fyrir
stolti. Stefnan var sett á sigur
á Eurovision í Rottedamn.
Keppnin var þó blásin af
vegna veirunnar skæðu áður
en Ísland gat gripið sigurinn
heim. En margir muna eftir
árinu 2020 sem árinu sem Ís-
land hefði átt að vinna Euro-
vision. Í sárabætur ákvað
RÚV síðar á árinu að fela
Daða að vera fulltrúi þjóðar-
innar í keppninni árið 2021.
Fleiri Íslendingar vöktu at-
hygli á litla landi elds og ísa.
Hildur Guðnadóttir tónskáld
átti sannkallaða sigurgöngu á
erlendum verðlaunahátíðum
og má segja að sú ganga hafi
náð hámarki þegar Hildur
varð, fyrst Íslendinga, þess
heiðurs aðnjótandi að hreppa
sjálf Óskarsverðlaunin fyrir
tónlist sína í kvikmyndinni
um Jókerinn, enda vel að því
komin. Bæði tónlistin í kvik-
myndinni Jókerinn sem og í
þáttaröðinni Chernobyl hafði
fengið einróma lof gagnrýn-
enda, sem endurspeglaðist í
Óskarsverðlaunum, BAFTA-
verðlaunum, Golden Globe-
verðlaunum, Emmy-verðlaun-
um og Grammy-verðlaunum
svo aðeins séu dæmi tekin.
Innrás veirunnar
Náttúran hélt áfram að stríða
þjóðinni og nú bættust rauðar
viðvaranir við þær appelsínu-
gulu og gulu. Íslendingar tóku
þeim viðvörunum ekki með
stóískri ró heldur fjölmenntu
í matvöruverslanir og birgðu
sig upp líkt og kjarnorkustríð
væri í vændum.
Kórónuveiran hélt áfram
að dreifast um heiminn og
nálgaðist landið óðfluga.
Fréttir bárust af Íslending-
um í sóttkví erlendis vegna
smits og ljóst að veiran væri
á leiðinni upp á Leifsstöð með
einum eða öðrum hætti. Al-
mannavarnir ákváðu að blása
til blaðamannafundar með
sóttvarnalækni og landlækni.
Varð það fyrsti blaðamanna-
fundurinn af fjölmörgum
slíkum sem settu svip sinn á
samfélagið þetta árið, sem og
komu hinu víðfræga þríeyki á
kortið.
Aðeins tveimur dögum eftir
fundinn var greint frá því að
Íslendingur sem nýlega hafði
komið úr skíðaferð á Ítalíu
hefði greinst með kórónuveir-
una og aðeins nokkrum vikum
síðar var allt samfélagið kom-
ið á hliðina.
Mars
Fljótlega eftir fyrstu smitin
fóru línurnar að skýrast hvað
framhaldið varðar. Hugtök
eins og sóttkví, sýnataka, og
einangrun urðu hluti af dag-
legu tali Íslendinga. Á mið-
nætti 15. mars tóku fyrstu
samkomutakmarkanir gildi,
en slíkar takmarkanir höfðu
legið í loftinu um nokkurra
daga skeið. Kynnt var til sög-
unnar tveggja metra reglan og
ekki máttu fleiri en hundrað
koma saman.
Daði Freyr og Gagnamagnið slógu í gegn en fengu þó ekki að keppa í Eurovision. MYND/MUMMI LÚ
30. DESEMBER 2020 DV
Skæð veira var farin að
dreifa úr sér í heiminum
á ógnvekjandi hraða.